Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 Fróðleikur Það eru ekki bara fossar, eldfjöll og náttúrulaugar sem vekja áhuga hjá erlendum ferðamönnum hér á landi. Þessi tók sér tíma til að kynna sér sögu landsins í miðbænum í gær. Árni Sæberg Fyrir skömmu fjallaði ég um breytingarreglu stjórnarskrár- innar í grein hér í blaðinu. Annars vegar vitnaði ég til umfjöllunar Kristrúnar Heimisdóttur um mik- ilvægi núgildandi reglu og hins vegar vék ég að tillögu nokkurra stjórnarandstöðuflokka á þingi um breytingar í þessu sambandi. Ég tel ríkt tilefni til að ræða þetta nánar, enda er við því að búast að umræðurnar haldi áfram í aðdrag- anda kosninga. Núgildandi regla hefur reynst vel Áður en lengra er haldið vil ég ítreka það sjónarmið, að núgild- andi breytingarregla hafi reynst vel. Hún felur í sér innbyggða varnagla gagnvart því að stjórn- arskránni sé breytt í miklum ágreiningi, án fullnægjandi und- irbúnings eða í fljótræði, en er þó á sama tíma þannig að stjórn- arskrárbreytingar eru vel mögu- legar, eins og fjölmörg dæmi sanna. Ef talin yrði ástæða til að breyta breytingarákvæðinu væri því grundvallaratriði að viðhalda ákveðnum þröskuldum, til að tryggja sömu meginsjónarmið um málsmeðferð, umþóttunartíma og hvata til víðtækrar samstöðu, en þó auðvitað þannig að vandaðar stjórnarskrárbreytingar verði áfram raunhæfur möguleiki. Tilefni til breytinga á ákvæðinu? Í gagnrýni á nú- verandi fyr- irkomulag hafa þrenns konar sjón- armið einkum verið færð fram. Í fyrsta lagi er því haldið fram að núgildandi fyrirkomulag sé of þungt í vöfum og feli í sér of miklar hindranir. Í öðru lagi að reglan um að rjúfa skuli þing og efna til kosninga strax að lokinni fyrri samþykkt Alþingis búi til of mikla pólitíska pressu í lok kjörtímabils og sé þannig sjálfstætt vandamál þegar kemur að því að leiða stjórnarskrárbreytingar til lykta. Í þriðja lagi er svo oft nefnt, að eðlilegt sé að þjóðin eigi að eiga beina aðkomu að endanlegri af- greiðslu stjórnarskrártillagna og best fari á því á að því það gerist með því að úrslitin ráðist í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Það á að vera erfitt að breyta stjórnarskrá Eins og áður hefur komið fram get ég alls ekki tekið undir að ferlið samkvæmt núgildandi reglu sé of þungt í vöfum eða geri stjórnarskrárbreytingar óeðlilega erfiðar. Til þess að stuðla að stjórnskipulegri festu þarf að vera erfiðara að breyta stjórnarskrá en öðrum lögum og það er í sjálfu sér æskilegt en ekki óæskilegt að það ferli sé þannig úr garði gert að breytingarnar krefjist meiri aðdrag- anda og fleiri skrefa í málsmeðferð en al- mennt gerist um laga- setningu. Samhliða er auðvitað mikilvægt að málsmeðferðarregl- urnar hvetji til samstöðu um breytingar frekar en sundrungar. Varnagla má ekki fjarlægja nema aðrir komi í staðinn Varðandi þá röksemd, að æski- legt sé að rjúfa tengsl stjórn- arskrárbreytinga við þingrof og kosningar, er mikilvægt að horfa á samhengi hlutanna. Núverandi fyrirkomulag felur það í sér, að þingmeirihluti, sem vill breyta stjórnarskrá, verður að vera tilbú- inn til þess þegar í stað að bera verk sín undir kjósendur og afla sér umboðs til starfa á nýju kjör- tímabili, meðal annars til að af- greiða stjórnarskrárbreytingarnar aftur í óbreyttri mynd. Þetta hef- ur meðal annars þau áhrif, að dregið er úr líkum á umdeildum stjórnarskrárbreytingum. Jafnvel þótt kosningar snúist um margt annað en stjórnarskrárbreytingar þá er engu að síður ljóst, að meirihluti þings myndi að jafnaði hika við að fara í stjórnarskrár- breytingar, sem gætu mætt veru- legri andstöðu kjósenda í kosn- ingum, og að krafan um að nýtt þing samþykki tillögurnar óbreyttar að kosningum loknum felur líka í sér ríkan hvata til víð- tækrar samstöðu; samstöðu sem getur haldist milli kjörtímabila. Ef þessum tengslum við þingrof og kosningar er kippt úr sam- bandi er óhjákvæmilegt annað en að setja í staðinn önnur skilyrði, sem líkleg eru til að stuðla að sömu markmiðum. Þar væri meðal annars hægt að hugsa sér kröfu um aukinn meirihluta á þingi og/ eða þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem gerð væri krafa um lág- marksþátttöku kjósenda eða lág- marksstuðning við viðkomandi breytingar. Það má með öðrum orðum ekki kippa þessum var- úðarreglum úr sambandi öðruvísi en að aðrar, jafngóðar eða betri, komi í staðinn. Einföld þjóðaratkvæða- greiðsla nægir ekki Af þeim sjónarmiðum, sem færð hafa verið fram gegn núverandi fyrirkomulagi, hef ég mesta sam- úð með hugmyndinni um að breyt- ingarferlið eigi að enda á bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú er það auðvitað svo, að í núverandi breytingarreglu felst að þjóðin hefur, eða getur haft, úrslitaáhrif á það hvort stjórnarskrárbreyt- ingar nái fram að ganga eða ekki. Þegar stjórnarskrárbreytingar eru háðar samþykki tveggja þinga með þingrofi og kosningum á milli, er auðvitað verið, að minnsta kosti með óbeinum hætti, að leita til kjósenda og fá fram af- stöðu til breytinganna. En það má líka gera með beinum hætti í þjóðaratkvæðagreiðslu. En þá væri að mínu mati alveg afdrátt- arlaus krafa að annaðhvort væri krafist lágmarksþátttöku í at- kvæðagreiðslunni eða ákveðins lágmarksstuðnings við breyting- arnar. Leið stjórnarandstöðunnar um einfaldan meirihluta á þingi og einfalt samþykki í þjóðaratkvæða- greiðslu, án frekari skilyrða, er að mínu mati alveg ófær í þessu sam- bandi. Eftir Birgi Ármannsson » Það má ekki kippa stjórnskipulegum varúðarreglum úr sam- bandi öðruvísi en að aðr- ar, jafngóðar eða betri, komi í staðinn. Birgir Ármannsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Það á að vera erfitt að breyta stjórnarskrá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.