Morgunblaðið - 29.07.2021, Síða 31

Morgunblaðið - 29.07.2021, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Gelísprautun • Gefur náttúrulega fyllingu • Grynnkar línur og hrukkur • Sléttir húðina Gelísprautun er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar sem framkvæmd er með náttúrulegu fjölsykrunum frá Neauvia Organic. Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. Það er ekki að ástæðulausu að brúðkaupið var kallað brúkaup aldarinnar á sínum tíma. Prinsinn átti að erfa krúnuna og Díana að verða drottning hans. 750 milljónir manna horfðu á hinn 32 ára gamla Karl kvænast Díönu sinni í sjónvarpi. Kossinn frægi á svöl- um Buckingham-hallar var á forsíðum blaða um allan heim. Á þessum degi var fátt sem benti til þess harmleiks sem hjónabandið reyndist vera. Eftirvæntingin var mikil þegar Díana kom með hestvagni að kirkjunni rétt fyrir hádegi á miðvikudegi í fylgd föður síns. „Hvernig er kjóllinn,“ var spurningin sem var á allra vörum. Kjóllinn sem Díana klæddist olli ekki vonbrigðum en ekki var mánuður liðinn síð- an hún hélt upp á tvítugsafmæli sitt. Brúð- arkjóllinn er nú tímabundið til sýnis í Kens- ington-höll en synir Díönu og Karls, Harry og Vilhjálmur, eiga kjólinn. Fyrrverandi hjónin David og Elizabeth Emanuel hönnuðu kjólinn. Kjóll Díönu ber þess merki að hafa verið hannaður snemma á níunda áratug síðustu aldar. Á kjólnum voru stórar og miklar ermar og kjólnum fylgdi tæplega átta metra langt slör. Svo fyr- irferðarmikill var kjóllinn að hann krump- aðist í hestvagninum á leiðinni í brúðkaupið. Elizabeth og David Emanuel rifjuðu upp vinnuna við kjólinn í viðtali við BBC rétt fyr- ir brúðkaup Katrínar og Vilhjálms árið 2011. Þau voru svo að segja nýútskrifuð þegar Díana hringdi í þau og fól þeim verkefnið. „Þetta var ótrúlegt. Við vonuðumst til þess að fá verkefnið en gerðum ekki ráð fyrir því af því við vorum að keppa við mjög reynda hönnuði.“ Hjónin fengu þrjá mánuði til þess að hanna kjólinn og voru að vinna að honum þangað til kvöldið fyrir brúðkaupið. Brúðkaup þeirra Díönu og Karls var vissulega eitt stærsta brúðkaup 20. ald- arinnar. Karl bíður hins vegar enn eftir starfinu sem hann var fæddur til þess að gegna og Karl og Díana skildu að borði og sæng árið 1992 og formlega árið 1996. Segja má að skilnaður þeirra hafi líka verið skiln- aður síðustu aldar. Lát Díönu ári seinna var ekki síður hörmulegra, en hún lést í bílslysi í París. Karl gekk í hjónaband með Camillu Parker Bowles árið 2005 og var sú athöfn töluvert látlausari en brúðkaupið fyrir 40 ár- um. 40 ár frá brúðkaupi aldarinnar Í dag eru 40 ár frá því að Díana prinsessa og Karl Bretaprins gengu í hjónaband í Dómkirkju heilags Páls í Lundúnum. Brúðarkjóll Díönu er án efa eftirminnilegasti brúðarkjóll 20. aldar en sumir vilja meina að þennan örlagaríka dag í lok júlí árið 1981 hafi Díana heillað heimsbyggðina meira en manninn sem hún játaðist. AFP Brúðarkjóll Ermarnar voru mjög stórar. Brúðkaup Slörið var tæp- ir átta metrar að lengd. Koss Brúðkaupið vakti heimsathygli. Örlagaríkur dagur Líf Díönu breyttist á einni nóttu. Hönnunin Emmanuel- hjónin hönn- uðu kjólinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.