Morgunblaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Gelísprautun
• Gefur náttúrulega fyllingu
• Grynnkar línur og hrukkur
• Sléttir húðina
Gelísprautun
er náttúruleg
andlitslyfting án
skurðaðgerðar
sem framkvæmd
er með náttúrulegu
fjölsykrunum frá
Neauvia Organic.
Tímapantanir í síma 533 1320
Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking.
Það er ekki að ástæðulausu að brúðkaupið
var kallað brúkaup aldarinnar á sínum tíma.
Prinsinn átti að erfa krúnuna og Díana að
verða drottning hans. 750 milljónir manna
horfðu á hinn 32 ára gamla Karl kvænast
Díönu sinni í sjónvarpi. Kossinn frægi á svöl-
um Buckingham-hallar var á forsíðum blaða
um allan heim. Á þessum degi var fátt sem
benti til þess harmleiks sem hjónabandið
reyndist vera.
Eftirvæntingin var mikil þegar Díana kom
með hestvagni að kirkjunni rétt fyrir hádegi
á miðvikudegi í fylgd föður síns. „Hvernig er
kjóllinn,“ var spurningin sem var á allra
vörum. Kjóllinn sem Díana klæddist olli ekki
vonbrigðum en ekki var mánuður liðinn síð-
an hún hélt upp á tvítugsafmæli sitt. Brúð-
arkjóllinn er nú tímabundið til sýnis í Kens-
ington-höll en synir Díönu og Karls, Harry
og Vilhjálmur, eiga kjólinn.
Fyrrverandi hjónin David og Elizabeth
Emanuel hönnuðu kjólinn. Kjóll Díönu ber
þess merki að hafa verið hannaður snemma
á níunda áratug síðustu aldar. Á kjólnum
voru stórar og miklar ermar og kjólnum
fylgdi tæplega átta metra langt slör. Svo fyr-
irferðarmikill var kjóllinn að hann krump-
aðist í hestvagninum á leiðinni í brúðkaupið.
Elizabeth og David Emanuel rifjuðu upp
vinnuna við kjólinn í viðtali við BBC rétt fyr-
ir brúðkaup Katrínar og Vilhjálms árið 2011.
Þau voru svo að segja nýútskrifuð þegar
Díana hringdi í þau og fól þeim verkefnið.
„Þetta var ótrúlegt. Við vonuðumst til þess
að fá verkefnið en gerðum ekki ráð fyrir því
af því við vorum að keppa við mjög reynda
hönnuði.“ Hjónin fengu þrjá mánuði til þess
að hanna kjólinn og voru að vinna að honum
þangað til kvöldið fyrir brúðkaupið.
Brúðkaup þeirra Díönu og Karls var
vissulega eitt stærsta brúðkaup 20. ald-
arinnar. Karl bíður hins vegar enn eftir
starfinu sem hann var fæddur til þess að
gegna og Karl og Díana skildu að borði og
sæng árið 1992 og formlega árið 1996. Segja
má að skilnaður þeirra hafi líka verið skiln-
aður síðustu aldar. Lát Díönu ári seinna var
ekki síður hörmulegra, en hún lést í bílslysi í
París. Karl gekk í hjónaband með Camillu
Parker Bowles árið 2005 og var sú athöfn
töluvert látlausari en brúðkaupið fyrir 40 ár-
um.
40 ár frá brúðkaupi aldarinnar
Í dag eru 40 ár frá því að Díana prinsessa og Karl Bretaprins gengu í hjónaband í Dómkirkju heilags Páls í Lundúnum.
Brúðarkjóll Díönu er án efa eftirminnilegasti brúðarkjóll 20. aldar en sumir vilja meina að þennan örlagaríka dag í lok júlí
árið 1981 hafi Díana heillað heimsbyggðina meira en manninn sem hún játaðist.
AFP
Brúðarkjóll
Ermarnar voru
mjög stórar.
Brúðkaup Slörið var tæp-
ir átta metrar að lengd.
Koss Brúðkaupið
vakti heimsathygli.
Örlagaríkur dagur
Líf Díönu breyttist
á einni nóttu.
Hönnunin
Emmanuel-
hjónin hönn-
uðu kjólinn.