Morgunblaðið - 29.07.2021, Side 42

Morgunblaðið - 29.07.2021, Side 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 Smáauglýsingar Hljóðfæri Gítarinn ehf. Stórhöfði 27 Sími 552 2125 www.gitarinn.is $+*! '(! %&&*% )"# Mikið úrval Hljómborð á tilboði Gítarinn ehf. Stórhöfði 27 Sími 552 2125 www.gitarinn.is Gítarar í miklu úrvali $+*! '(! %&&*% )"# Kassagítar ar á tilboði Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 892-2367. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Húsviðhald LEKI RAKI MYGLA VIÐGERÐ Nissan Leaf Tekna 40 kWh battery 10/2020 Ekinn aðeins 9.000 km. Allur búnaður sem hægt er að fá í þessa bíla. Verð: 3.490.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Bækur til sölu Guðspjallanna samhljómur, Hólar 1749, Þjóðsögur Sigfúsaar Sigfússonar 1-16, ib., Megas textabók, Ritsafn Kristmanns Guðmundssonar, The adventures of Huckleberry Finn, 1884 ,1. útg., Íslensk bygging Guðjón Samúlesson, Íslenskt fornbréfa- safn 1-14, ib., ób., Ný jarðabók fyrir Ísland 1861, Íslenskir Annálar 1847, Marta og María, Tove Kjarval 1932, áritað,1886, Skarðsbók, Ljóðabók Jóns Þorlákssonar, Bægisá, Svarfdæl- ingar 1-2., Árbækur Espolíns 1- 12, 1. útg., Aldafar og örnefni í Önundarfirði, Gestur Vestfirð- ingur 1-5, Stjórnartíðindi 1885- 2000, 130 bindi, Manntalið 1703, Kollsvíkurætt, Fjallamenn, Hæstaréttardómar 1920-1960, 40 bindi, Þjóðsögur Jóns Árna- sonar, Kvennablaðið 1.-4. árg, Bríet 1895, Ódáðahraun 1-3, Fritzner orðabók 1-4, Flateyjar- bók 1-4, Íslenskir Sjávarhættir 1- 5, Tímarit Verkfræðinga Íslands 1.-20. árg., Tímarit hins íslenska Bókmenntafélags 1-25, Árs- skýrsla sambands íslenskra Raf- veitna 1942-1963. Hín 1.- 44. árg., Töllatunguætt 1-4, Síðasti musterisriddarinn, Parceval, Ferðabók Þ. TH., 1- 4, önnur útg., Ættir Austfirðinga 1- 9, Heims- meistaraeinvígið í skák 1972, Landfræðisaga Íslands 1-4, Lýsing Íslands 1-4, plús minning- arbók Þ. HT., Almanak hins Íslenska Bókmenntafélags 1875 - 2006, 33 bindi, Inn til fjalla 1-3, Fremra Hálsætt 1-2, Kirkjuritið 1.- 23. árg., Bergsætt 1- 3, V-Skaftafellsslýsla og íbúar hennar, 1. útg. Náttúrfræðingur- inn 1.-60. árg., ób., Lestrarbók handa alþýðu á Íslandi 1874. Uppl. í síma 898 9475 Bækur ✝ Sigurður fædd- ist á Birnings- stöðum í Háls- hreppi S-Þing. 4. desember 1930. Hann lést lést 16. júlí 2021. Foreldrar voru Steinunn Sigurðar- dóttir og Indriði Þorsteinsson. Hann var yngstur sex systkina; systkini voru þau Árni, f. 1918, Bergljót, f. 1920, María, f. 1922, Þor- steinn, f. 1924, og Þórey, f. 1927, sem öll eru látin. Sigurður kynntist Rósu Krist- ínu Jónsdóttur um tvítugt. Þau gengu í hjónaband 31. maí 1952. Rósa lést hinn 6. október 1995. Börn þeirra eru: 1) Steinunn, f. 1954, gift Árna Bjarnasyni. Börn þeirra eru: Sigurður Gáki. í sambúð með Sigríði Kristínu Davíðsdóttur og þau eiga þrjú börn; Heimir Örn, kvæntur Mörthu Hermannsdóttur og loks á Skógum í Hálshreppi í Fnjóskadal þar sem Sigurður ólst upp frá tveggja ára aldri. 16 ára fluttist hann til Akureyrar og hóf störf á bílaverkstæði KEA. 17 ára réð hann sig á bif- reiðaverkstæði Þórshamars og starfaði við bifreiðaviðgerðir á Akureyri allt til ársins 1953, þó með hléum, s.s. til að fara á síld- arvertíð árið 1951. Þá hóf hann að leysa af á Bifreiðaeftirliti rík- isins og fékk loks fastráðningu og starfaði þar óslitið þar til eft- irlitið var lagt niður í lok árs 1989, þar af síðustu árin sem forstöðumaður. Sigurður var ráðinn sem prófdómari öku- prófa á Norðurlandi og starfaði þar til aldamóta eftir 11 ára starf, þá sjötugur að aldri. Sigurður var mjög virkur félagsmaður í Félagi harmonikuunnenda við Eyja- fjörð frá stofnun þess 1980 og lék með hljómsveit FHUE frá upphafi. Sigurður var í tvígang formaður FHUE. Auk þess var hann gjaldkeri Sambands ís- lenskra harmonikuunnenda og síðar varaformaður þeirra samtaka. Útförin fer fram í Akureyrar- kirkju, í dag 29. júlí 2021, klukk- an 13. eiga þau þrjú börn; Rósa María í sam- búð með Óttari Snædal Þorsteins- syni. 2) Jón Gunn- ar, f. 1958, kvæntur Sigrúnu Sig- urgeirsdóttur. Börn þeirra eru: Alda Kristín, í sam- búð með Einari Ei- ríki Hjálmarssyni, eiga fjögur börn; Sigurgeir, í sambúð með Mar- gréti Jóhannsdóttur og eiga þau þrjú börn; Gunnar Steinn, kvæntur Elísabetu Gunn- arsdóttur, þau eiga tvö börn. 3) Sigurður Unnsteinn, f. 1963, kvæntur Þórdísi Jónsdóttur Börn þeirra eru: Geir, kvæntur Stellu Bryndísi Karlsdóttur, þau eiga tvö börn; María, gift Valdi- mar Daníelssyni og eiga þau þrjú börn; Jón Heiðar. Fjölskylda Sigurðar bjó á Birningsstöðum, flutti og bjó í eitt ár á Vöglum í Hálshreppi og Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna við áttum með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Hvíl þú í friði elsku pabbi, Steinunn, Jón og Sigurður. Það mun hafa verið árið 1973 sem leiðir okkar Sigga tengda- föður míns lágu fyrst saman þegar ég fór að viðra mig upp við Steinunni einkadóttur hans. Það tók mig ekki langan tíma að skynja þá skilyrðislausu ást og umhyggju hann bar til dóttur sinnar. Ekki var heldur slegið af hjá afanum og síðar langafanum þegar kom að umgengninni við barnabörnin og barnabarna- börnin þegar þau komu í heim- inn eitt af öðru. Ljúfari afi er vandfundinn. Sama á fullkom- lega við um Rósu tengdamóður mína sem lést langt fyrir aldur fram árið 1995 og Siggi saknaði sárt til hinstu stundar. Óhætt er að fullyrða að harm- onikan hafi verið Sigga einkar kær um langt árabil og áhrifa- ríkt að sjá þá lífsfyllingu og hugarró sem hún gaf honum þegar frá nikkunni streymdu undurfagrir ljúfir, stundum dimmir, hljómar. Aldrei mun ég gleyma þeim stundum þegar við spiluðum saman í sumarbú- staðnum, þú af list á harmonik- una og ég glamraði undir á hljómborðið. Uppáhaldslag Rósu, Spönsku augun, var alltaf mjög ofarlega á lagalistanum. Minningarnar eru óteljandi, en einna eftirminnilegust er trúlega 30 daga frítúr á frysti- togara fyrir u.þ.b. 30 árum. Á yndislegum stað, austarlega í landi Skóga í Fnjóskadal, hafði verið tekin ákvörðun um að byggja sumarbústað. Bygging- arstæðinu var valinn staður á hæð á að giska rúma 100 m frá þjóðveginum en frá veginum var allt á fótinn og fremur torfarin leið. Við vorum fjórir ofurkapp- samir samherjar sem snerum saman bökum í þessu verkefni. Siggi Indriða verkstjóri, synir hans Nonni og Siddi auk und- irritaðs. Allt byggingarefnið var ýmist borið eða dregið frá veg- inum á byggingarstað og í minn- ingunni er illskiljanlegt hvernig við náðum að draga níðþunga ljósastaurana sem notaðir voru í undirstöður þessa leið með því að raða okkur upp í hlutverki dráttarklára. Óhætt er að full- yrða að vökulögin voru brotin á hverjum einasta degi þennan mánuð, bústaðurinn risinn og stemningin ógleymanleg. Ekki skemmdi fyrir þegar nágranni í nálægum bústað kom í heim- sókn og spurði hvar við hefðum keypt þetta fallega einingahús. Eitt er víst að aldrei á ævinni hef ég verið jafn feginn að kom- ast út á sjó eins og eftir þessa törn við sumarbústaðarbygg- inguna sem í dag er griðastaður stórfjölskyldunnar umvafinn trjám sem gróðursett voru sem græðlingar af tengdaforeldrum mínum. Í þau 33 ár sem ég stundaði sjómennsku þá voru það Siggi og Rósa, meðan hennar naut við, sem voru stoð og stytta Steinu og barnanna okkar og ég vona að sjómennirnir okkar eigi sem allra flestir jafn trausta og góða tengdaforeldra og mér hlotnuðust á sínum tíma. Árin líða eitt af öðru, upp og niður eins og gengur mér finnst sem milli okkar hafi myndast sterkur strengur, sannarlega þú reynst mér hefur mikill happafengur því bið Guð að ég njóti þess, mikið mikið lengur. Segja má að ég hafi svo sann- arlega verið bænheyrður þar sem tengdafaðir minn lifði við góða heilsu árum saman eftir að þessi bæn varð til. Nú þegar Sigurður Indriðason er látinn saddur lífdaga þá er okkur öll- um sem honum tengjast efst í huga endalaust þakklæti fyrir að hafa átt hann að á lífsins leið. Takk fyrir allt. Meira á: https://mbl.is/andlat/ Árni Bjarnason. Minn elskulegi tengdafaðir og vinur, Sigurður Indriðason, kvaddi þessa jarðvist 16. júlí sl. á 91. aldursári sínu. Ég þakka þér, elsku Siggi, öll árin og samverustundirnar sem við í Háalundarfjölskyldunni áttum með þér. Þær minningar eru okkur ómetanlegar. Þú varst einstakur maður, umhyggjusamur, hlýr og traust- ur. Það var fallegt að sjá hve vel þú fylgdist með þínum afkom- endum og vildir allt fyrir alla gera. Hvíl í friði, elsku vinur, og takk fyrir allt. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Þín tengdadóttir, Þórdís. Elsku afi Siggi, nú er komið að kveðjustund. Þú hefur alla tíð verið stór partur í lífi okkar systkinanna og fjölskyldu okk- ar. Fyrir okkur afabörnin mun ljúf minning um góðan og traustan vin, sem umvafði okkur væntumþykju og hugulsemi, lifa í hjörtum okkar alla tíð. Við munum sakna þín en við vitum að þú og amma Rósa munuð vaka yfir okkur nú þegar þið eruð saman á ný. Við sökn- um þín elsku afi. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Geir, María og Jón Heiðar. Gæfa er hverjum manni að kynnast góðu fólki og eiga sam- leið með. Mér hefur hlotnast sú ánægja í ríkum mæli á lífsgöngu minni, m.a. þegar ég starfaði hjá Umferðarráði. Þegar þeirri ágætu stofnun var falið að ann- ast ökupróf og málefni öku- kennslu í landinu árið 1992, fylgdu þeirri breytingu nýir samstarfsmenn, þ. á m. öðling- urinn og sómamaðurinn Sigurð- ur Indriðason á Akureyri. Fljótt fann ég hvern mann hann hafði að geyma. Traustur og pottþétt- ur á öllum sviðum, ljúfur í öllum samskiptum og átti það til að koma með hnyttnar athuga- semdir þegar svo bar undir, enda húmoristi eins og þeir ger- ast bestir. Sigurður átti langan og far- sælan feril á sviði umferðarör- yggismála. Var fastráðinn til starfa hjá Bifreiðaeftirliti ríkis- ins 1. maí 1955 og starfaði þar allt þar til Bifreiðapróf ríkisins tók við verkefnum ökuprófa af Bifreiðaeftirlitinu og síðan með okkur hjá Umferðarráði frá árinu 1992, þar til hann lét af störfum sjötugur að aldri, árið 2000. Við þau tímamót héldum við honum kveðjusamsæti á lög- reglustöðinni á Akureyri, að viðstöddum góðum hópi sam- starfsmanna hans þar, ökukenn- urum, sýslumanni og bæjar- stjóra, auk okkar frá Umferðarráði o.fl. Í ávarpi til Sigurðar sagði ég m.a.: „Allir sem það þekkja vita hversu miklu máli það skiptir að hafa menn í starfi sem hægt er að treysta í hvívetna. Þannig starfsmaður var Sigurður Indr- iðason í þau 45 ár sem hann gegndi störfum. Þau skipta þús- undum ungmennin sem hann hefur prófað á starfstíma sín- um.“ Nú, liðlega 20 árum síðar, vil ég fyrir hönd starfsfólks Um- ferðarráðs á þessum góðu árum, koma á framfæri sérstöku þakk- læti fyrir þann tíma sem við átt- um með Sigurði, og fyrir ein- staklega farsæl störf hans í þágu umferðaröryggismála í landinu. Sjálfur hef ég misst góðan vin. Sakna og jólakort- anna hans sem ávallt stafaði hlýja af, og sendi ástvinum hans öllum hluttekningarkveðjur. Farinn er góður drengur. Óli H. Þórðarson. Sigurður Indriðason Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTINS KRISTINSSONAR húsasmíðameistara, Álfhólsvegi 104. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grensásdeildar og hjúkrunarheimilisins Markar fyrir hlýhug og góða umönnun. Ásdís Þórarinsdóttir Sigrún Kristinsdóttir Hinrik Már Ásgeirsson Kristinn Gunnar Kristinsson Margrét Jóna Gestsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.