Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 64

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 64
62 Vaxtartími Grómagn Hektólítri Þyngd 1000 dagar % þyngd kg korna í g Flöjabygg ................. 110 100.0 63.4 36.8 Sv. Orion hafrar .......... 142 98.0 50.8 37.6 Sv. Samehafrar............. 137 100.0 46.8 39.4 r Af framangreindu yfirliti má sjá, að bygg og hafrar hafa náð góðurn þroska og reynzt með mjög góðu grómagni og kornþyngd. Eins og venjulega, var selt kornútsæði, bæði bygg og hafrar, vorin 1951 og 1952. Vorið 1951 voru seld 4543 kg bygg og 1585 kg af höfrum i 43 staði víðs vegar um landið, en rnest af þessu fór í Arnes- og Rangár- vallasýslur, en einnig á stöku staði norðanlands. — Vorið 1952 var seld í 40 staði; 3029 kg af byggi og 2002 kg af höfrum, allt ætlað til þroskunar. Samtals hefur þá verið selt fyrra árið í rúma 30 ha og síðara árið í 25 ha akurlendi, fyrir utan þá 11 ha, sem stöðin ræktaði heima á Sámsstöðum. Bæði þessi ár hafa orðið vanhaldasöm fyrir kornrækt stöðvarinnar, og allvíða hefur kornið ekki náð fullum þroska vegna tíðarfarsins fyrst og fremst. Fyrra árið urðu vanhöldin vegna vorklakans en síðara árið vegna frosta í ágúst, er tóku fyrir áframhaldandi þroskun. Þó að undanfarin tvö ár hafi eigi verið hagstæð fyrir akuryrkju, þá má það ekki hamla áframhaldandi viðleitni til kornyrkju, því að það er ekkert einsdæmi, þótt vanhöld verði ár og ár á kornrækt hér á landi, því svo hefur það verið í hlýrri löndum, án þess að hætt hafi verið. Þar er staðfastlega haldið álram, og þannig jtarf það að verða einnig hér á landi voru. Með bættum ræktunarskilyrðum, skjólgirðingum og betri afbrigðum getur kornyrkjan fest rætur í atvinnulífi landsins. Hún er nú 30 ára á sl. hausti. Hefur hún oftast gefið góðan árangur, þegar vandað liefur verið til framkvæmdanna og tíðarfarið verið í meðallagi eða betra. e. Grasfrœrœktin. Grasfræræktin hefur verið með minnsta móti bæði árin, en verður nú aukin nokknð. Fræræktin hefur aðallega verið af háliðagrasi og tún- vingli og framleiðslan verið lítil. Fræ stöðvarinnar hefur gróið allvel bæði árin og verið selt til túnræktar með íblöndun af erlendu fræi. Hefur fræið reynzt vel, og þeir, sem það hafa keypt, sækjast eftir því að fá það aftur. /. Grœnfóðurrœktin. Hún hefur eingöngu verið belgjurta -og hafragrænfóður til síðsumar-

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.