Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 65
63
fóðrunar lianda kúm stöðvarinnar. Þessi ræktun hefur alltaf reynzt ör-
ugg og sparað talsvert af fóðurbæti frá því um miðjan ágúst og fram yfir
miðjan október. Með því að nota ertur og fóðurflækjur með böfrum fæst
notadrýgra grænfóður, auk þess sem það sparar köfnunarefnisáburð að
mestu við ræktunina, næst í eggjahvítuauðugt og notadrjúgt fóður fyrir
mjólkurkýrnar. Muna verður eftir því, að smita fræið áður en því er sáð,
svo að ræktunin takist veh
g. Heymjölsframleiðsla.
Bæði árin befur verið framleitt beymjcil og það selt til Sambands ísl.
samvinnufélaga. Árið 1951 voru framleiddar 24.5 smálestir og árið 1952
28.5 smálestir. Þessi framleiðsla er gerð með of seinvirkum vélum, svo
að nota befur þurft útiþurrkun á grasið til þess að ná mesta raka þess
burt, áður en hraðþurrkun hefst. Af þessum orsökum og fleiri hefur
mjölið ekki verið eins eggjahvíturíkt og erlent belgjurtamjöl. Hins vegar
liafa rannsóknir sýnt það, að bægt er að búa til eins gott mjöl og það,
sem inn hefur verið flutt, en til þess þarf fljótvirkari vélar og betri út-
búnað á ýmsan hátt. Athuganir, sem gjörðar hafa verið á karotinmagni í
íslenzku grasi, hafa bent til þess, að hér haldist það lengur í grasinu en
t. d. danskar rannsóknir hafa sýnt þar í landi. Þessi framleiðsla er vanda-
söm og þarf miklu betri og fullkomnari útbúnað, til þess að framleiðslan
jafnist fyllilega á við erlent ,,alfalfa-mjöl“. íslenzka 'mjölið hefur verið
lyktargott, og það ilmar meira en erlent mjöl. Kýr hafa verið mjög fíkn-
ar í það. — Allt er enn í óvissu um það, hvort unnt verður að umbæta
þessa framleiðslu stöðvarinnar á næstu árurn, en reynt verður að halda
framleiðslu og rannsóknum á heymjöli áfram.
h. Aðrar framkvœmdir.
Af öðrum störfum, sem unnin hafa verið nndanfarin tvö ár, má nefna
ræktnn í sandgirðingu stöðvarinnar á Rangárvöllum. Þar hefur verið sáð
byggi og höfrum til þroskunar og til grænfóðurs. Einnig hefur verið
ræktað þar dálítið af kartöflum. Einnig sáð þar grastegundum til fræ-
ræktar, aðallega túnvingli og hávingli. Öll ræktun á sandinum þessi tvö
sumur hefur gefið verri raun en áður, og valda því aðallega þurrkarnir.
Korn hefur að vísu þroskazt þar en gefið litla uppskern, en þroskunin
liefur orðið 8—10 dögum fyrr en á Sámsstöðum og kornið verið fullt
eins þungt.
Þá hafa verið gerðar athuganir á áhrifum skjóls á kornþroskun, og