Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Page 76

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Page 76
74 3. Starfsskýrsla 1951 og 1952. a. Framkvœmdir 1951. Byggð voru fjárhús, með þurrheys- og votheyshlöðum. Stærð bygg- ingarinnar er að grunnfleti því sem næst 28 X 28 metrar. Fjárhúsin eru 8 talsins og taka alls 560—600 fjár. Hlaðan er að grunnfleti (innan- mál) 27.7 X 7.5 m. I henni eru tvær votheysgryfjur við bakvegg, fyrir miðju. Þær eru að grunnfleti (innanmál) 3 X 3.5 m, með hálfs meters steypu úr hornum. Hæðin er 5.6 m. Einfalt járnþak á langböndum er á allri byggingunni. Steyptur áburðarkjallari er undir grindum í helmingi húsanna, og er 0.8 m hæð undir grindur. Bygging þessi er mjög mikið mannvirki, en henni varð ekki með öllu lokið. Verkið hófst um 20. júní, og var unnið að þessu til nóvemberloka, með þriggja vikna hléi um gangnaleytið. — Yfirsmiður við bygginguna var Sveinlaugur Helgason, byggingameistari á Seyðisfirði. Kostnaðarverð byggingarinnar við árslok 1951 var kr. 374.022.17. — Nánari grein er gerð fyrir byggingunni og kostnaðinum við hana í grein í Frey, sem birtist þar vorið 1952. Skurðgrafa vann að áframhaldi framræslunnar, og voru grafnir 6800 lengdarmetrar, sem eru 22.542 m3. Þar er talinn með áveituskurður úr Jökulsá yfir VaJþjófsstaðarnes, sem Skriðuklaustur kostaði að öllu, 698 m í landi Valþjófsstaðar, suður fyrir landamörk Skriðuklausturs, og að hálfu móti Valþjófsstað úr því, en allur er áveituskurðurinn 1632 metra langur. En hlutur Skriðuklausturs í áveituskurðinum er tekinn með í ofangreindum tölum um framræsluna á Skriðuklaustri í heild, bæði um lengd og rými. Kostnaðarverð á grafinn rúmmetra varð kr. 2.48. Skurð- gröfustjórar voru Kristinn Jónsson frá Þverspyrnu, Árnessýslu, búfræði- kandidat frá Hvanneyri, og Ellert Tryggvason, frá Stað í Reykhólasveit. Á Kirkjutúninu var jafnað úr skurðruðningum, gömlum garðbrotum og sáð í 1 ha grasfræi. Jafnað var kringum fjárhúsin um miðjan nóvem- ber og fyllt að bakvegg hlöðunnar. Einnig var jafnað úr skurðaruðning- um á suðurtúninu, í nátthögunum og inn á Hamtóarmýrum. Ennfremur var jafnað allmikið meðfram skurði neðst í Haganum. Alls vann jarð- ýtan í 90 stundir. Var síðast unnið með ýtunni 1. desember, en þá var orðið nokkuð frosið og tíð tekin að spillast. Jarðýtustjóri um haustið var Stefán Jónsson frá Torfastöðum í Jökulsárhlíð. Dálítið var unnið að girðingum meðfram vegi að neðan, frá túngirð- ingu á Hamborgarmörk og þaðan niður í skurð á merkjum Hamborgar og Skriðu.

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.