Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Page 83
81
sömu og árið 1951. Um sumarið var 12 manns í heimili. Við fjárhúsin
og aðgerðir heima vann um sumarið Einar Jónsson frá Litlu-Grund.
k. Verkfceri og tœki.
Verkfæra var nokkurra aflað á árinu, auk súgþurrkunartækjanna.
Keypt var heyhleðsluvél, lítið notuð, stórt ávinnsluherfi, auk allmikils
af smærri áhöldum og varahlutum. Aflvél búsins var tekin upp til gagn-
gerðrar aðgerðar. Varahlutir og viðgerð á bílnum kostaði um 9.800 kr.
Alls var varið til verkfæra á árinu um 35 þúsund krónum, auk nokkurrar
vinnu heimamanna. — Tæki til tilrauna voru keypt fyrir rúmlega 2000
krónur. Var það sterkjuvigt, þurrknet fyrir heysýnishorn og grasbor til
að taka þurrksýnishorn.
I. Fjdrhagur og fjárframlög.
Rekstursfé úr ríkissjóði var veitt á árinu 130 þús kr. og stofnfé 125
þús. kr. Skuldir jukust enn urn rúmlega 20 þúsund krónur, enda voru
enn fjárfrekar framkvæmdir á döfinni. F.r nú náð allmikilsverðum áfanga
í framkvæmdum, þar sem nú má heita að lokið sé við fjárhúsin og hey-
geymslunar, og rafmagnsþörfin leyst, að minnsta kosti um nokkurt ára-
bil. Enda liggur nú fyrir að greiða skuldirnar og treysta grunninn og
hefja tilraunastarfsemina af fullum krafti, sem nú fyrst eru að skapast
skilyrði til þess að framkvæma, bæði vegna þess, að mikil framkvæmda-
hviða er gengin hjá, og land undirbúið til tilraunastarfsemi.
(5