Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 17

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Side 17
læsilegt fyrir augum skoðandans. Þetta eru þjál hús og þola vel breytingar, að mati þeirra sem í þeim búa. Og alls ekki dýr. Um þetta tvennt ber þeim saman, Kristjáni Dav- íðssyni, listmálara, í Barðavogi 13, og Gunn- ari Bernhard, sem býr í einu af elstu einbýlishúsum Manfreðs að Langholtsvegi 78. Gunnari líkaði svo vel samvinnan við arkitektinn, að hann fékk hann til að teikna fyrir sig bílaumboð sitt, Honda. Fyrir ókunnuga liggur hlutverk Barða- vogs 13 hins vegar alls ekki í augum uppi við fyrstu sýn, en það stendur fyrir ofan Elliða- voginn og lyftir bláum vængjum í tvær áttir. Þó hygg ég að einhverjir muni skynja nær- veru listamanns. Og er menn vita hver eig- andinn er, opinberast markmið vængjanna: að hleypa Ijósi úr tveimur áttum inn í vinnu- stofu málarans. Barðavogur 13 hefur einnig til að bera „sviP‘, sem er e.t.v. aðalsmerki Manfreðs. Það verður til m.a. vegna hinna léttu, jafnvel gagnsæju efna sem hann velur einatt í hús sín: timbur, gler og málmplötur, og þó aðal- lega í samstillingu hinna ýmsu byggingar- efna. Þeim er raðað saman þannig að við sjáum öll samskeyti, hvar burðurinn liggur og hvar ekki. Allt kallast á, lágum rómi en ákveðið: timbur nemur við striga sem nemur við steypu, eða þá að gróf áferð á furu og steinsteypu myndar mótvægi við lakk, gler og fjörugrjót. Efni eru ekki dulbúin, heldur koma til dyranna eins og þau eiga að sér að vera. Inn í þetta hófstillta samræmi koma svo allt í einu hárfínir lit-effektar: rauðir listar utan á Honda-umboðinu, rauðir súlu- oddar (nú svartmálaðir) á Laugarásvegi 40, bláir Ijósastaurar fyrir utan Mávanes 4 — eins og glaðlegar trillur í Ijóðasöng. Þrátt fyrir þessar hörðu kröfur til efni- viðar og umbúnaðar, hefur Manfreð ekki orð á sér fyrir að vera tilætlunarsamur gagnvart vinnuveitendum sínum. „Ég held að hann hafi skilið þarfir okkar hjóna betur en við sjálf,“ segir Kristján Davíðsson. „Þó veit ég ekki til þess að hann hafi áður teiknað fyrir listmálara.“ Gunnar Bernhard bætir við: „Það má segja að Manfreð sé seinvirkur. En hann er ákaflega vandvirkur. Hann hættir ekki að velta hlutunum fyrir sér fyrr en hann hefur dottið niður á réttu lausnina.“ Hinar látlausu, opnu byggingar Manfreðs virðast stundum eins og viðkvæm austurlensk blóm innan um víggirðingarnar sem margir Islendingar láta steypa utan um sig og sína. Ég brydda upp á þessari líkingu við Manfreð, sem tekur henni fagnandi. „Ég held ég hljóti að þafa verið Japani í fyrra lífi,“ segir hann. „Á námsárum mínum í Sví- þjóð höfðu myndir af japönskum húsum mikil áhrif á mig. Og þegar ég kom heim og reisti mér eigið hús, Smiðshús á Álftanesi, tók ég mér til fyrirmyndar ýmislegt úr jap- anskri húsagerð: hið opna rými, létta milli- veggi, rennihurðir, virðingu fyrir náttúru- legum efnivið. Þessi áhrif hafa fylgt mér síðan.“ Manfreð kímir við frostrósunum á gluggunum. „Nú má segja að hinn létti aust- urlenski byggingarmáti henti ekki allskostar íslenskri verðráttu. Mér flýgur það í hug, þegar vetrarstormarnir berja utan stóru gluggana heima hjá mér. En svo birtir á ný, og þegar birtan smýgur inn í hvern krók og kima á húsinu, þá sannfærist ég um réttmæti þessa byggingarstíls.“ Ég ber undir Manfreð þau orð banda- ríska arkitektsins Philips Johnson, að alla arkitekta þyrsti í ódauðleika og sá þorsti væri undirrót að sköpun þeirra. Manfreð er hugsi um stund. „Þetta á ekki við um mig,“ segir hann svo. „Ég er fyrst og fremst sonur föður míns, sem var trésmiður og notaði aðeins góð tré og vönduð vinnubrögð. Ég er í raun að reyna að gera það sama og hann. Ég hef engan tíma til að hugsa um ódauðleikann.“ Skíðaskálinn í Bláfjöllum, teiknaður 1980 (með Þorvaldi S. Þorvaldssyni). Tilgangur byggingarinnar og staðsetning kalla á náttúru- leg efni og lögun hennar og svart þakiö tekur mið af fjöll- unum í kring. Við samsetn- ingu hússins liggur hlutverk hinna ýmsu efna í augum uppi. Samskeyti eru ekki falin og burðarstoðir eru auðsjá- anlegar. Hverju smáatriði er gefinn gaumur, en samtímis er heildin fastmótuð. Arki- tektinn notar mjög oft við- arsvalir eða verendur viö hús sín, þó svo að þau séu steypt, þar sem þær hreinsa sig aö mestu leyti sjálfar. 15
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.