Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Síða 16

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Síða 16
Múlaþing vanda ljóðagerð sína.5 En lítið hefur verið birt af ljóðum Sigfusar. Aðeins tvö smákver, „Kappaslagur“ og „Glámsrímur“ sáu prentsins svertu og eru mjög fágæt. Er hvortveggju býsna torskilið á köflum. Þriðju ljóðabókina ritaði hann upp og nefndi „Netlu“ en hún kom aldrei út - nema ef vistun á handrit.is má kalla „útgáfu“. Sama gildir um „Gryllur", „Óra“ og vasabók án titils er inniheldur kvæði um fornkappa. Nokkrar vísur eftir hann eru í „Stuðlamálum“; safni lausavísna eftir íslensk alþýðuskáld. Einnig munu örfá kvæði hafa birst í „Oðni“, „Nýjum kvöldvökum“ og fleiri blöðum og tímaritum, einkum austfírskum. Þótti Sigfus á köflum býsna níðskár. Kvaðst hann vera andlega skyldur Bólu-Hjálmari og dáði mjög kvæði Hjálmars. Einnig taldi hann sig vera ákvæðaskáld - og vera má að eitthvað hafi verið til í því. I hinum tilvitnuðu textum hér að framan kemur fram biturð Sigfusar, sem og fýrmefnd minnimáttarkennd sem víða örlar á hjá honum andspænis „lærðum mönnum“. A skólabekk í Möðruvallaskóla settist hann ekki fyrr en 34 ára gamall og urðu það ekki langar stúdíur (1889-1891). Hvað biturð áhrærir má segja að Sigfus hafí haft nokkra ástæðu til, enda var lífsstarfí hans lítill og síðbúinn sómi sýndur. Jafnvel drógu sumir dár að honum fyrir- drauga og forynjusagnasöfnun - að ekki sé minnst á hjátrú hans6. Alkunn er þessi vísa hans- sem einnig er lýsandi fyrir orðþrótt hans: 5 Af Héraði og úr jjörðum bls. 79. 6 Hér má færa til ffásögn Eiríks Eiríkssonar frá Dagverðargerði í viðtali við Valgeir Sigurðsson í TÍMANUM 4. des. 1977: „Mig langar að segja hér frá atburði sem varð í einni heimsókn Sigfúsar til foreldra minna...Ekki veit ég nákvæmlega hvaða ár þetta var, en hitt er víst að systir mín, sem er eldri en ég, var þá bam að aldri, líklega fimm ára eða svo. Eitthvað mun henni hafa fundist karlinn fomeskjulegur, því hún varð hrædd við hann og fór að gráta. En nú var Sigfúsi öllum lokið. Hann hélt að þetta væri ekki einleikið og að barnið sæi á sér feigð. Mátti nú ekki á milli sjá hvort skelkaðra var, óvitinn eða Sigfus!“ Því hef eg mig við fárra fellt flysjungs kjaftaglingur. Mig hefur líka lengi elt lygi og misskilningur. Vera má þó að álit samtímamanna á sagna- þulinum hafí að einhverju leyti verið verð- skuldað því hann virðist ekki hafa lagt sig eftir vinsældum. Sigrún Dagbjartsdóttir fræðaþulur frá Vestdalseyri lýsir honum svo: Ég man hann frá æsku minni á Vestdalseyri í Seyðisfírði, þá var hann kominn hátt á sjötugsaldur. Mér fannst hann vera smáskrýtinn í háttum og ekki fríður. Stórt bogið nef setti mikinn svip á holdgrannt andlitið. A nefninu voru gleraugu sem oftast voru niðri á nefbroddi. Yfir þau horfði hann skáhallt á þann sem hann talaði við og stundum ærið hvasst. Ekki hafði ég vit á því þá, að hann hallaði svona á vegna þess að hann var blindur á öðru auganu.7 í sömu heimild hefur Sigrún einnig lýst bamslegri hjátrú Sigfúsar og er það kátleg lesning: Hann Sigfús sagni mun hafa komið á Vestdalseyrina í kringum 1924, þá var ég sex ára. Fyrst hafði hann herbergi í litlu húsi á Eyrinni er Bergþórshús nefndist en fluttist síðar til hjónanna í Pálshúsinu, þeirra Bjargar og Hermanns. Björgu var honum í mestu nöp við og kallaði hana „Ólund“ en húsið „01undíu“. Því var eftir honum haft: Ef einhver spyr mig hvar eg bý,8 hann heyri það og lesi: Eg á heima í Olundí úti á Rakkanesi! 7 Huldumál - hugverk austfirskra kvenna - útg. Pjaxi / Samband austfirskra kvenna 2003 bls. 280 8 Líklega á línan að vera svona: „Hyggi að einhver hvar eg bý...“ 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.