Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Blaðsíða 97
Tilvistarkreppa og hægfara dauðastríð
bréf til blaðstjómar þar sem hann gerir grein
fyrir stöðu blaðsins. Af bréfínu að dæma er
sameining blaðanna ekki lengur í bígerð.
Jömndur lýsir stöðu Anstra í stuttu máli svo að
áskrifendum fækki jafnt og þétt (að jafnaði um
2-3 á viku) og umbrotsmaðurinn sé að hætta.
Tölvukosturinn bili reglulega, viðgerðarkostn-
aður sé „óheyrilegur“ og endumýjun tölvu-
búnaðar verði mjög kostnaðarsöm. Síðan
segir Jörundur: „Eins og ég gat um á KSFA
þinginu er bullandi halli á blaðinu það sem
af er þessu ári. Þó svo að starfsmönnum hafí
verið fækkað, áskriftin hækkuð og reynt að
spara er ljóst að eitthvað þarf að koma til....
Eg fer ekki af þeirri skoðun að ef blaðið á að
koma áfram út verður Flokkurinn að leggja
blaðinu til vemlega styrki. Ef ekki, er langbest
að hætta útgáfúnni strax. Ekki safna meiri
vanda.“42 Bréfíð endar Jörundur á að minna
á að ráðningartími sinn sé að renna út og má
skilja af bréfínu að hann ætli ekki að halda
áfram. Þrátt fyrir ákveðna skoðun útgáfu-
stjórans (sem lét af störfum í maí 1998) var
rekstri blaðsins framhaldið og nýtt fólk kom
til starfa.
Sumarið 1999 cr tilvistarbarátta Austra
orðin afar erfíð. Þá ritar Ingólfur Friðriks-
son umbrotsmaður Austra blaðstjóm bréf
þar sem hann gerir grein fyrir stöðunni sem
blasir við honum. Blaðamennirnir séu báðir
að hætta á næstunni, sem og útgáfustjórinn
og bókarinn. Ingólfur segist ekki sjá betur en
að innan skamms verði hann eini starfsmaður
Austra. Hann vill því vita hvað sé framundan
í útgáfu blaðsins.43
Veturinn 1999-2000 voru forsendur fyrir
útgáfu Austra endanlega að bresta. A fúndi
blaðstjórnar 3. janúar 2000 var farið yfir
framtíðarhorfur og ijárhagsstöðu blaðsins
42 HerAust: Stofn 39, Fra 3 (6) [bréf er varða Vikublaðið Austra
frá tímabilinu 1997-2000]. Með skammstöfunni KSFA er hér
átt við Kjördæmissamband Framsóknarmanna á Austurlandi.
43 HerAust: Stofn 39, Fra 3 (6).
og samþykkt að skoða nánar sameiningu við
Austurland og útgáfu eins óháðs fféttablaðs.
Þann 24. mars er aftur haldinn blaðstjómar-
fundur og var þá fært til bókar að viðræður
Vib Austurlandh&fi ekki borið árangur. Fyrir
þeim fundi lá bréf frá Jömndi Ragnarssyni,
sem aftur var tekinn við sem útgáfustjóri.
Yfírskrift bréfsins er „Framtíð Austra“. í því
kemur ffam að halli var á rekstri ársins 1999
og þó tekjuöflun í nóvember og desember hafi
gengið vel hafí það ekki dugað til. Þrátt fyrir
að stöðugildum hafí fækkað úr fjórum í 2,4
sé samt ekki rekstrargrundvöllur. Askrifend-
um haldi áfram að fækka og stærstu auglýs-
endur séu farnir að horfa annað. Breytingar
á auglýsingamarkaði hafí leitt til að Austri
sitji eftir. Netsíður dragi til sín athygli og
þær, ásamt sérútgefnum auglýsingablöðum,
taki auglýsingarnar. Jömndi þykir enn skorta
vilja til að sameina Austurland og Austra í
eitt blað. Því er niðurstaða hans sú að leggja
beri útgáfuna niður sem fyrst, enda geri hún
ekki annað en að safna skuldum.44 Rúmum
mánuði síðar (30. apríl) ákvað blaðstjóm að
hætta vikulegri útgáfu blaðsins.45
Jóni Kristjánssyni farast svo orð um lok
útgáfu Austra:
Orsökin var hallarekstur og okkur tókst
ekki að fá nægar auglýsingatekjur til þess
að standa undir kostnaði. Þar að auki var
útgáfa tengd stjómmálaflokkum á undan-
haldi á þeim tíma sem Austri hætti og við
sem næst þessu stóðum gátum hugsað
okkur að fara í félag með öðrum um útgáfu
fjórðungsblaðs, sem við reyndar gerðum
því ég man ekki betur en að við höfum lagt
fram áskrifendaskrá okkar í Austurglugg-
ann á sínum tíma. Blaðið var eins og fram
44 Skjöl frá Jóni Kristjánssyni, fyrrum ritstjóra vikublaðsins Austra
[bréf Jörundar Ragnarssonar til blaðstjórnar Austra, dags.
13. mars 2000].
45 HerAust: Stofn 39, Fra 2 (2).
95