Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 57

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Page 57
Úr æviminningum Kristjáns Jónssonar Vopna Hallormsstað, á besta aldri [1885, 34 ára]. Það getur enginn um það sagt hvað mikið Austfirðingar misstu þegar hann féll frá, en það er augljóst að hefði honum enst aldur og heilsa þá væri hann sjálfkjörinn foringi í öllum framfaramálum. Ég þekkti það að hann lét sig allt þessháttar miklu skipta, með brennandi áhuga og góðri yfirsýn yfir gang málanna. Ég var í fræðsluleit þegar ég réðist til Páls að Hrafnsgerði. Ég vissi að hann var vanur að hafa pilta til kennslu á vetrum. Það samdist svo að ég fengi kennslu í þeim frístundum sem ég hafði frá öðrum verkum. Annað kaup hafði ég ekki. Hjá honum var ég í tvö ár með þessum skilmálum. Páll var ágætur kennari. Það var heimskur maður sem ekki gat haft gagn af tilsögn hans. Hann keypti öll helstu blöð og tímarit, sem þá voru gefm út, og hélt því fast að okkur unglingunum að lesa það allt. Þá varísafoldað byrja að koma frá Bimi Jónssyni. Ég heyrði þá lærðu mennina hafa mestu tröllatrú á honum og blaði hans. Þegar ég á gamals aldri renni augunum yfír liðinn tíma, þá undrast ég það hvað menn á þeim tíma voru yfirleitt nægjusamir. Ég vil taka Hrafnsgerðisheimilið til dæmis í þessum efnum. Það mátti teljast með stærri heimilum. Þar bjó lærður maður, sem hafði á hendi rit- stjóm blaðsins Austra og kenndi piltum ýmsar fræðigreinir. Þar bjó og prestsfrú, sem maður skyldi ímynda sér á nútíma mælikvarða að hefði gert nokkrar kröfur til þæginda lífsins. Húsakynnum í Hrafnsgerði var þannig háttað, að það var baðstofa, byggð uppi og niðri. I öðmm enda baðstofunnar uppi var ofurlítil húskytra, um 3 álnir á lengd. Þetta var kallað skólahús. Þar kenndi Páll piltum sínum, þetta 2 til 3 klukkutíma að vetrinum til, en plássið var ekki meira en það, að sjálfur varð hann alltaf að standa, gat aðeins hreyft sig ofurlítið aftur og fram. Svo kom miðbað- stofan, þar sem fólk sat við vinnu sína. í hinum enda baðstofunnar var íbúð þeirra Páls og frú Guðríðar, stjúpu hans, ásamt Björgvin syni hennar. Ég geri ráð fyrir að þetta hafí verið um 5 álna herbergi á lengd. Á herberginu voru 2 tveggja rúðu gluggar, heldur í stærra lagi. Við stafn, undir öðrum glugganum, var rúm Páls, og við það stóð skrifpúlt um 1 alin á breidd. Á móti hans rúmi, undir hinni hliðinni, svaf Björgvin hálfbróðir hans, en bak við hurðina var rúm frú Guðríðar. Mig minnir að í herberginu væri einn stóll. Þetta var íbúð og skrifstofa þessarar heldri ijölskyldu um 1880. Við þetta púlt skrifaði hann ritstjórnargreinar í Austra, og á því lágu blöð og tímarit sem honum voru send. Niðri var baðstofan þiljuð í tvennt; fyrir framan var herbergi sem piltar sváfu í, en fýrir innan stofuhús af sömu stærð og íbúðin uppi. Frammi í bænum var bæjardyraloft, sem notað var til geymslu á hirslum og fatnaði. í baðstofunni var enginn ofn og engin eldavél; um það leyti voru þær ekki komnar. Allt eldað á hlóðum í frammieldhúsi. Matarskömmtun fór fram í búri, og hverjum einum borinn sinn matur í skálum og diskum. Ekkert sameigin- legt borðhald. Margir áttu homspæni, en þar var ekki nema einn askur sem skammtað var í; hann tók víst 4 merkur og var kallaður Bobbi. Átti karl hann á heimilinu, sem Ámi hét. Um þetta leyti var byrjað ofurlítið að nota olíu til ljósa. í baðstofunni var einn lítill hengilampi; mun hafa verið 8 lína flatbrennari, sem kallað var. Hann var náttúrulega aldrei verkaður, og ósaði þessvegna, svo menn voru oft hræddir um sprengingar. Svo hafði Páll leslampa (fótlampa með hvítum postulíns- kúppli, heldur lítinn). Frammi við voru alltaf notaðar kolur. Um það leyti var byrjað að hafa bankabygg í grauta í stað rúgmjöls, og talsvert notað af ijallagrösum. Kaffíbrauð var ekki notað annað en pönnukökur og kleinur. Jólabrauð þekktist ekki fyrr en þær komu austur systur, frú Soffía á Ási, kona 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.