Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2015, Blaðsíða 73
Hjörleifur Guttormsson
Kirkjugripir frá Skriðuklaustri
til Hjaltastaðar
Afdrif kirkjugripa frá fyrri öldum sem
og annarra fornminja eru oft ráðgáta
sem erfítt getur verið að leysa úr.
Þar á meðal eru prédikunarstólar sem ekki
virðast hafa orðið algengir í kirkjum hérlendis
fyrr en allnokkru eftir siðbreytingu þegar
prédikunin varð langtum mikilvægari hluti
guðþjónustu en áður var. Elsti varðveitti
prédikunarstóll hérlendis er talinn smíðaður
fyrir Guðbrand Hólabiskup í Þýskalandi árið
1594 (Þjms. Víd. 1). Hér er greint frá tveimur
prédikunarstólum, sem báðir gegndu hlutverki
í kirkjunni á Hjaltastað í Utmannasveit, sem og
ljósahjálmi (ljósakrónu) sem þangað barst frá
Skriðuklaustri. Annar prédikunarstóllinn var
smíð Jóns lærða Guðmundssonar frá því stuttu
eftir 1640 og hefur líklega enginn slíkur verið
fyrir þar í kirkju. Entist stóll þessi til ársins
1796 að honum var fargað. Þá áskotnaðist
Hjaltastaðakirkju í staðinn prédikunarstóll og
ljósahjálmur frá klausturkirkjunni á Skriðu í
Fljótsdal sem hafði verið aflögð formlega árið
1792. HjörleifurÞorsteinsson sóknarprestur á
Hjaltastað 1800-1827 gaf í fornleifaskýrslu
1818 lýsingu á prédikunarstól þar í kirkjunni
og hefur lýsing hans fram til þessa verið talin
eiga við stól Jóns lærða. Nú er hins vegar
ljóst að um var að ræða prédikunarstól úr
klausturkirkjunni á Skriðuklaustri, sem þar
var í notkun að minnsta kosti frá árinu 1641.
Báðir þessir gripir eru nú horfnir sjónum, þótt
ekki sé útilokað að stóllinn ffá Skriðu leynist
einhvers staðar. Hér eru rakin afdrif þessara
prédikunarstóla og ljósahjálmsins frá Skriðu,
aðallega eftir vísitasíubókum þótt prentaðar
heimildir komi einnig við sögu.
Um prédikunarstól Jóns lærða
Jón Guðmundsson lærði (1574-1658) fluttist
ásamt Sigríði Guðmundsdóttur konu sinni
úr eins konar nauðungarvist í Bjamarey á
Héraðsflóa yfir í Utmannasveit skönnnu eftir
að Brynjólfur Sveinsson varð biskup í Skálholti
árið 1639. Sonur Jóns lærða, Guðmundur,
sem sviptur hafði verið kjól og kalli með
dómi 1630 að tilstuðlan Bessastaðamanna,
varð aðstoðarprestur á Hjaltastað um 1640
og þar fékk faðir hans það verkefni á fyrstu
árum sínum í Utmannasveit að skreyta
sóknarkirkjuna. Þegar Brynjólfur biskup var
í sinni fyrstu heimsókn á Hjaltastað 1645
er fært í vísitasíubókina m.a. : „Altari með
gráðu, lítil brík máluð ný, og prédikunarstóll
málaður."1 Fullvíst er talið að Jón lærði
Vístasíubók Brynjólfs Sveinssonar um AustfirðingaQórðung.
Bps. A. II. 8, s. 186. Eftir myndum á Ámastofnun, fært til
nútímastafsetningar.
71