Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 65

Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 65
HEILSUVERND 63 Á að „bæta“ brauðin? Eins og kunnugt er, þá en livítt hveiti framleitt á þann hátt, að við mölun hveitikornsins er hýði og kim skilið frá en hinn hvíti kjarni gerður að fínu livítu mjöli. Hýði og kími fylgja verðmætustu efni kornsins, svo að segja öll fjörefnin, megin- hluti málmsaltanna, fitan, beztu eggjahvítuefnin og grófefnin. Hvíta hveitið er því með allra einliæfustu fæðutegundum, sem þekkjast. Til þess að ráða nokkra hót á efnaskorti hvíta hveitisins, hef- ir i sumum löndum verið gripið til þess ráðs, að bæta Bi-fjör- efni, kalki og járni í það, þegar búin eru til úr því brauð. Um j>essa ráðstöfun hefir mikið verið rætt og ritað, og sýnist sitt hverjum.NáttúruIæknar og margir merkir næringarfræðingar hafa jafnan haldið því fram, að beztu brauðin séu þau, sem/bökuð eru úr nýmöluðu mjöli, ösigtuðu, eða 100% mjöli, eins og það er nefnt. Þeir segja að allar ,,uppbætur“ séu kák eitt. Þessari skoð- un virðist vera að aukast f.vlgi mcðal lækna, ef dæma má af eftirfarandi ummælum úr aðallæknablaði Englendinga, „Lancet“. Þar segir svo 19. jan 194(5: Allt sem við vitum i liffræði og næringarfræði mælir gegn því, að matvæli, t. d. livitt hveiti, séu „bætt“ með tilbúnum fjör- efnum eða steinefnum, þvi að það er ekki hægt að skila mat- vælunum aftur öðrum efnum en þeim, sem þekkt eru og vitað er, að hafi verið tekin burt. Það væri æði djarft af malara, að þykjast geta bætt upp allar þær verðmætu amínósýrur, öll þau steinefni og fjörefni, sem liýði og ytri hlutar hveitikornsins liafa að geyma. „Menn verða að viðurkenna, að þegar leggja skal grundvöll að heilbrigði og réttri næringu, dugir ekki að treysta á tilbúin eða samanþjöppuð fjörefni. Þegar allt kemur til alls, hlýtur rétt næring að byggjast á hæfilegri neyzlu nátt- úrlegra fæðutegunda“. (.Boudreau 1945). Efni næsta heftis verður m. a. þetta: Ferðasaga Jónasar læknis Kristjánssonar. Skemmtileg og stórfróðleg grein um heilbrigðustu þjóð i heimi. Saga af auðveldri fæðingu. Saga af manni, sem læknaðist með mataræði af „ólæknandi“ skjaldkirtilbólgu. Rit- dómur um Bókina um manninn. Munurinn á náttúrulækning- um og almennum lækningum. Uppskriftir.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.