Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 5
HEILSUVERND
3
flúenzu. Sýkill sá, sem orsakar þessa veiki hefir verið ó-
þekktur til þessa og heyrir sennilega til flokks þeirra, sem
► kallaðir eru vírus eða huldusýklar, og eru ennþá engin
örugg ráð fundin til þess að forðast hann. En það hefir
. þó úrslitaþýðingu að menn taki þennan sjúkdóm réttum
tökum, er hans verður vart. Fyrstu einkenni mænusóttar
eru svipuð öðrum næmum sóttum. Þau eru: Höfuðverkur,
• beinverkir og þá helzt verkir í baki, rígur aftan í hálsi og
upp í höfuð, samfara hitasótt. Börn og unglingar fá oft
uppköst, ber jafnvel á krampa í ungbörnum. Eymsli í öll-
um líkamanum við snertingu, tregar hægðir, en þó stundum
niðurgangur. Stundum tekur þessi veiki menn strax svo
hörðum tökum, að þeir fá þegar óráð.
Það varðar miklu, að menn leggist strax í rúmið og að
þeir forðist að taka lyf, ekki sízt hitastillandi lyf, vegna
þess að þau valda tjóni á blóðinu og veikja því lífsaflið.
Ráð til bóta.
Það fyrsta sem menn ættu að gera, er að hreinsa líkam-
ann sem bezt og mest, en nota til þess aðeins náttúrleg ráð
og heilsustyrkjandi aðferðir eins og við aðra næma sjúk-
dóma.
1. Fyrsta höfuðatriði meðferðarinnar er að fasta. Taka
enga fæðu nema þá helzt náttúrlegan, ósætan og ómeng-
aðan aldinsafa, svo sem appelsínu- eða grapesafa blandaðan
vatni eða sítrónusafa í heitu vatni eða vel volgu: Kamomille
te, fremur þunnt, eða heitt vatn og te af íslenzkum jurtum.
Þá mætti og nota volgt vatn, blandað litlu af gömlu, súru
skyri. Það er bæði hollur og hressandi drykkur.
Að neyta fæðu undir þessum kringumstæðum er blátt
áfram hættulegt, vegna þess að þegar sótthiti hefir gripið
menn, myndast sama sem enginn meltingarvökvi. Fæðan
fúlnar og rotnar í meltingarfærunum. Við slíka rotnun
lk myndast eiturefni, sem valda tjóni á blóðinu og draga úr
varnármætti líkamans gagnvart sóttinni og þeim sóttkveikj-
um, sem henni valda.
1*
S: