Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 10

Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 10
8 HEILSUVERND Hrörnunar sjúkdómar, svo sem tannveiki, meltingar- kvillar, magasár, botnlangabólga og krabbamein eru bein- ar afleiðingar dauðrar og ónáttúrlegrar næringar og ann- arra óeðlilegra lifnaðarhátta. Með þessu höfum við alið upp mænusóttina og gert tiltölulega meinlausan, huldan sýkil eða vírus að þeim djöfli, sem vér skjálfum á beinun- um fyrir og höfum engin ráð til að hindra. Fyrir hvað er mænusóttin, sem áður var fágæt og tiltölulega meinlítil, orðin sá vágestur, sem hún er nú? Er það ekki ónáttúr- leg næring og ónáttúrlegir lifnaðarhættir, brot á því lög- máli, sem lífinu er áskapað? Er það ekki þetta, sem hefir svipt og rænt menningarþjóðirnar hinu meðfædda ónæmi gegn sjúkdómum. Ef reynt væri að útrýma þessum orsökum þá væri um leið útrýmt f jölda næmra og ónæmra sjúkdóma. Eg tel það misráðið að vara við sundi og annarri líkams- stælingu. Bæði sund og leikfimi auka varnarmátt líkamans gegn næmum sjúkdómum. Hreint blóð er bezta varnarlyfið gegn öllum sóttum. Eg vík aftur að því, að þegar mænusóttinni er lokið og hún hefir unnið sitt eyðileggingarverk, byrjar nýtt iækn- ingastarf, það að vekja til lífs hina visnuðu vöðva. Líka þar er heita vatnið og rétt notkun þess bezta vopnið til varnar og sóknar. Bezta ráðið er hæfilega heit böð með köldum yfirhellingum á eftir, og vægilegum núningi og elting og hreyfingu á eftir. Jafnvel eftir margra ára kyrr- stöðu hefir þessi aðgerð stórbætt úr magnleysi visnaðra vöðva. En þar má sín ekki síður náttúrleg og lifandi fæða til þess að endurlífga hálfdautt hold. Ríkjandi menningarhættir. Eg er sannfærður um, að þeirra tíma er skammt að bíða, að augu manna opnist fyrir mörgum heilsuspillandi á- hrifum hinna ríkjandi menningarhátta. Gegn þessum ó- hollu menningarháttum verður hafin eða er þegar hafin uppreisn, sem ekki verður kæfð. Þó að hún fari hægt enn- þá, brýzt hún síðar fram svo hriktir i hinni spiltu sið-

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.