Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 11

Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 11
HEILSUVERND 9 menningu, sem hvílir á úrkynjun og sjúkri nautnasýki og fíkn í eiturnautnir. Vaxandi sjúkdómar spá ekki góðu um framtíð þjóðar vorrar og sjálfstæði hennar. Hver ber á- byrgðina á allri tregðunni gegn því að fá innfluttar ómal- aðar korntegundir, heldur fornmalað mjöl, hýðislaust hvít- bleikt, dautt hveiti, hvítan anilinlitaðan sykur, rándýrar og dauðsoðnar vörur? Allar eru þessar aðfluttu matvörur hinar lélegustu að kostum og óhjákvæmileg og áreiðanleg orsök sjúkdóma. Það eru fremur ófrjó vísindi að ætla sér að ráða bót á vaxandi heilsuleysi þjóðar vorrar með því einu að byggja ný sjúkrahús, þótt stærri og fínni séu, meðan ekki er tekið fyrir orsakir sjúkdómanna og þær ekki þekktar eða við- urkenndar. Á yfirvöldum vorum hvílir þung ábyrgð á heilsufari þjóðar vorrar. Þjóðin á heimtingu á því að vita hið sanna í hverju máli og þá ekki sízt því, er varðar heilsu manna og ráð til verndar henni. Eg get ekki séð, að þjóð vorri sé að borgnara, þótt vel sé fyrir því séð að flytja inn sterk- eitraða vindlinga og státað sé af þeirri frammistöðu og ætíð sé vel séð fyrir nægum vínbirgðum handa hinum þorstlátu alkóhólistum, meðan ferskra ávaxta er ekki kost- ur nema af skornum skammti fáeinar vikur alls ársins. NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG ÍSAFJARÐAR var stofnað hinn 11. maí, og telur deildin um 50 félaga. Framkvæmda- stjóri NLFl ætlaði að sitja fundinn, en það fórst fyrir vegna veðurs. Lög voru samþykkt samhljóða lögum hinna deildanna. t stjórn voru kosin: Formaður frú Guðmundína J. Helgadóttir og meðstjórnendur: Jónas Magnússon, kaupmaður, M. Simson, ljós- myndari, Ragnar Bárðarson, byggingameistari og Sigurður Hannes- son, bifreiðarstjóri. Varastjórn: Halldór Guðjónsson, verkamaður, Jón- as Guðjónsson, húsgagnasmíðam., og frú Karlinna Jóhannesdóttir. Endurskoðendur: Harald Aspelund, bifreiðaeftirlitsmaður, og Jónas Tómasson, bóksali.

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.