Heilsuvernd - 01.04.1948, Qupperneq 13
HEILSUVERND
11
Rannsóknir síðustu áratuga hafa varpað skæru ljósi yfir
orsakasambandið milli krabbameinsins og iífnaðarhátta
hinna siðmenntuðu þjóða.
Orsakir krabbameinsins eru ekki neinar bakteríur eða
vírusar, sem læknarnir hafa verið svo lengi að leita að
árangurslaust.
Krabbameiniö er afleiðing af eitrun likamans, sem á rót
sína að rekja fyrst og fremst til rangra lifnaðarhátta.
Hér tala eg auðvitað almennt, því að mér er fullkunnugt
um, að krabbamein getur, í einstökum tilfellum, orsakazt
af ytri áverkum, svo sem höggum, fleiðrum, sárum o. fl.
En hér er það jafnvel efa undirorpið, hvort þessir ytri á-
verkar mundu hafa leitt til krabbameins, ef lífskraftur og
mótstöðuafl vef ja þeirra, sem fyrir áverkanum urðu, hefði
ekki áður verið lamaður af eiturefnum í blóðinu.
Hvað veldur því, að eiturefni myndast í líkamsvefjum
okkar? Rangt mataræði og rangir lifnaðarhættir ásamt
þarafleiðandi ófullnægjandi innvortis hreinsun líkamans —
og efst á blaði má þar nefna þýðingarmesta hreinsunartæki
iíkamans: Ristilinn.
Það hefir aldrei verið til þess ætlazt, að líkami okkar
væri gerður að lifandi sorpræsi fyrir rotnandi úrgangs-
efni. En þetta höfum við gert og með því kallað yfir okkur
hersingu af sjúkdómum, sem allir eiga einn og sama upp-
runa: Sjálfseitrun (auto-intoxication).
Við borðum þrisvar á dag — eða oftar. Ristillinn ætti
að téema sig að minnsta kosti eins oft á sólarhring og
máltíðir eru margar.
Dýrin þurfa ekki á neinum leiðbeiningum að halda um
þetta, og hinn frumstæði maður ekki heldur. Og það er
hneyksli, að hinn siðmenntaði maður, sem ætti að vera
hátt hafinn yfir hinn frumstæða mann í öllu, er snertir
verndun líkamans og alla heilbrigðishætti, skuli þurfa á.
tilsögn að haida í þessum efnum.
.Við borðum of oft og losum okkur alltof sjaldan við úr-
gangsefnin. Við það framleiðast eiturefni innan líkamans,