Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 30
28
HEILSUVERND
auðvelt er að koma í veg fyrir hverskonar jurtasjúkdóma
með því einu að nota réttar ræktunaraðferðar og undir-
búa jarðveginn á réttan hátt. Orsakir jurtasjúkdómanna
eru því ekki bakteríur, vírusar, sveppir eða skordýr, eins og
flestir halda, heldur eiga þeir frumorsakir sínar í jarð-
veginum. Heilbrigður og rétt undirbúinn jarðvegur gefur
heilbrigðar jurtir, sem standast árásir hverskyns sjúkdóma.
Eina rétta leiðin til að forðast jurtasjúkdóma og útrýma
þeim er því að undirbúa jarðveginn á réttan hátt. Þá þarf
enginn neitt að óttast, engin þörf lyfja, engin rýrnun upp-
skeru af völdum sjúkdóma, og það sem betra er, jurtirnar
verða betri næring handa mönnum og skepnum. Það sann-
aði Howard einnig með tilraunum þarna austur í Indlandi,
og verður sagt frá þeim í næsta hefti, um leið og lýst verð-
ur þeim ræktunar- og áburðaraðferðum, sem gáfu honum
svo góða raun og farið er að nota í Englandi, um Norður-
lönd og víðar með sama ágæta árangrinum.
NÁMSKEIÐ ARE WAERLANDS I SVÍÞJÓÐ
Are Waerland hefir námskeið í sumar fyrir þá, sem vilja setja sig
til hlítar inn í kenningar hans og lifnaðarhætti. Sjálfur kennir hann
á námskeiðinu og stjórnar því, en meðal kennara verða læknar og
einn þekktur jarðyrkjufræðingur, og hann mun kenna ræktunar-
aðferðir í samræmi við rannsóknir Sir Alfred Howards, sem skýrt
er frá á öðrum stað hér í heftinu. Framkvæmdastjóri NLFt, Björn L.
Jónsson, og kona hans, Halldóra Guðmundsdóttir, munu sækja fyrri
hluta námskeiðsins 1. til 15. ágúst, og mun verða frásögn af Því i
næsta hefti.
ÍSLENZKAR NYTJAJURTIR.
Lesendur HEILSUVERNDAR eru minntir á, að nú er heppileg-
asti tíminn til neyzlu ýmsra heilnæmra og ljúffengra íslenzkra nytja-
jurta. Hér í heftinu er sagt frá innlendum tejurtum og í fyrri heftum
ritsins, aðallega í 1.-2. hefti I. árg., er sagt frá notkun nokkurra
innlendra ætijurta. Þá er í „Nýjum leiðum 11“ ítarleg grein um þetta
efni, „Nýtt grænmeti allt árið“. Þessar leiðbeiningar ættu menn að
kynna sér rækilega og fara eftir þeim, sérstaklega þar sem annað
grænmeti er ófáanlegt.