Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 41

Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 41
HEILSUVERND 39 Líkama manna og dýra hefir verið líkt við vél. En samlíkingin er röng að öllu öðru leyti en því, að bæði líkaminn og vélin þurfa eldsneyti til þess að framleiða þá orku, sem hiti og hreyfing krefur. En vélin getur ekki endurnýjað sig sjálf. Hún getur tekið við smurningsolíu inn um eina rauf og peningum inn um aðra og skilað miða og skiptimynt með meiri hraða en nokkur maður. Vélin slitnar og gengur úr sér, en að öðru leyti verður engin breyting á henni. Og hún getur ekki endurnýjað eða gert við skemmdir, sem á henni verða. En lifandi líkami nærist, vex, endurnýjar sjálfan sig og gerir við skemmdir. Efnið í líkamanum er stöðugt að breytast og endurnýjast. Þótt líkaminn virðist alltaf sá sami, þá er ekki svo. Það er að- eins formið, sem er varanlegt, en efnið sjálft er forgengi- legt. Gerð líffæranna og starf helzt óbreytt, og hin ósýni- lega og hárfína bygging vefjanna og eggjahvítusameind- anna í frumum og blóði. Þetta form gengur að erfðum til afkvæmanna. Hinsvegar verður enginn að nauti af því að borða nautakjöt. Daglega streymir efni gegnum líkama vorn og út úr hcnum. Það er byggt upp af jörð, lofti, vatni og sólskini, íklæðist um stund formi beina, holds, blóðs og heila, til þess að þjóna vilja vorum, og þessi form eru einatt hin sömu. Síðan yfirgefur efnið líkama vorn á ný og heldur áfram hinni endalausu hringferð sinni milli hinnar lifandi og dauðu náttúru. Frá sólu og vatni, jörð og lofti til aldina og grænna blaða, frá grasi og korni til kjöts og mjólkur, og að lokum aftur til jarðar og vatns og lofts. Þessi stöðuga rás er gefin til kynna í orðum Kristhna hins indverska: ,,Ef eg nem staðar eitt andartak, mun heimurinn líða undir lok.“ En hvað verður af þessu hverfula efni, sem um skeið var verkfæri mannsandans? Jurtirnar nærast á þeirri kolsýru og vatni, sem lungun gefa frá sér með andar- drættinum og hverfur út í andrúmsloftið. Þar sem náttúr- an fær að ráða, falla laufblöð og greinar til jarðar, verða

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.