Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 51

Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 51
HEILSUVERND 49 ótvíræðan vott um sjaldgæfa orku og samvizkusemi, að telja enga fyrirhöfn eftir sér til að gera allt sem bezt. Og þegar þess er gætt, að Waerland hafði mjög ófullnægjandi tilsögn, þegar hann hóf íslenzkunám sitt, þá er árangurinn glæsilegur vottur þess, að þrátt fyrir hinn háa aldur stend- ur andlegt atgervi og námshæfileikar Waerlands enn í full- um blóma. Þannig hafa margir, þar á meðal málfræðingar, sem hlýddu á útvarpserindi Waerlands, „Nýjar leiðir“, sem hann flutti daginn áður en hann fór, látið í ljós við mig undrun sína og aðdáun á hinum skýra og lýtalausa fram- burði og flutningi. Við sem ferðuðumst með honum, sáum þess einnig fleiri merki, hvílíkur afkastamaður hann er, t. d. við ritstörf. Útvarpserindið samdi hann t. d. dagstund eina úti í garði læknisins á Blönduósi. Á ferðalaginu öllu flutti hann ritvél sína með sér og var sístarfandi, þegar tóm- stund gafst, sem sjaldan kom þó fyrir nema snemma morg- uns. Waerland byrjar daginn snemma, venjulega kl. 4 að morgni. Ritstjóri einn á Akureyri, sem bjó í næsta herbergi við Waerland á Stúdentagarðinum seint í júní, sagði okkur, að það hefði komið fyrir, að hann heyrði til Waerlands um fjögurleytið — og einu sinni um kl. 3 eftir miðnætti — og var hann þá kominn á fætur og byrjaður að æfa sig í flutningi fyrirlestursins. Sjálfsagt mun þessi áætlun hafa raskast í ferðalaginu, vegna þess hve seint við fórum jafn- an að hátta. En víst er það, að hversu snemma sem við lögð- um af stað — og það var oftast kl. 8 að morgni og stundum kl. 7 — þá stóð aldrei á Waerland, og aldrei þurfti að vekja hann. Waerland dáðist mikið að íslenzkri náttúrufegurð. Því miður var hann óheppinn með veðrið, einkum meðan hann dvaldi sunnanlands. En meðal þeirra staða, sem honum þótti mest til koma má nefna Ásbyrgi, Dettifoss, útsýnið til Herðubreiðar, Hólsfjallaöræfin, siglingaleiðin frá Viðfirði til Norðfjarðar. Og glóandi Hekluhraunið kvað hann stór- fenglegasta náttúruviðburð, sem hann hefði nokkru sinni 4

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.