Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 55

Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 55
HEILSUVERND 53 úr rúminu og hreyfa mig, enda þótt fæturnir væru svo máttlitlir, að þeir risu naumast undir mér. En eina ósk mín var sú að komast aftur út í lífið og náttúruna og heim til fólksins míns, og eg lét einskis ófreistað til að ná kröftum. Loks var eg útskrifaður hinn 17. júní 1937 og mér leyft að fara heim. Og eg fékk yfirlýsingu um það, að eg væri ófær til allrar vinnu ævilangt, og auðvitað einnig til herþjónustu. Og sannarlega var eg veikur og þreklaus, já, svo máttlaus var eg, að þegar eg kom inn í svefnvagn- inn, þá komst eg ekki upp í efra rúmið, sem mér var ætl- að, heldur lagðist eg endilangur á gólfið. Maðurinn, sem svaf í neðra rúminu, sá aumur á mér og hafði rúmaskipti við mig. Og þegar eg kom á leiðarenda, varð að flytja mig liggjandi á vagni frá járnbrautarstöðinni heim til mín. Þegar heim kom, kynntist eg nokkrum ,,sólvíkingum“, sem lifðu á waerlandsfæði. Þeir lánuðu mér tímaritið ,,Frísksport“ með ritgerðum Are Waerlands. Eg lét mér bendingar þeirra að kenningu verða og fór að reyna sól- víkingafæðið. Varð mér svo gott af því, að mér fór óðum fram. Eftir sex mánuði á þessu viðurværi var eg orðinn eins og nýr maður. Og er árið var liðið, frá því eg fór af sjúkrahúsinu, þá var eg ekki einasta algerlega laus við liða- gigtina, hjartasjúkdóminn og alla aðra kvilla, heldur frísk- ari, hraustari og vinnuhæfari en eg hafði nokkru sinni verið á ævi minni. Eg fékk nú atvinnu hjá bændum, sem voru sólvíkingar, og hefi síðan unnið hjá þeim. Eg vissi sem var, að þar fengi eg þann rétta mat. Síðan hefi eg unnið baki brotnu, við skurðgröft og plægingar, í hvaða veðri sem er, oft gegn- drepa, en aldrei verið lasinn eða illa fyrirkallaður á nokk- urn hátt. Þvert á móti hefi eg aldrei verið heilsuhraustari og hafði aldrei látið mér til hugar koma, að hægt væri að öðlast slíka heilsu. Með þessu viðurværi gengur þyngsta erfiðisvinna eins og leikur. Maður þreytist aldrei, er alltaf í góðu skapi, og það er dýrðlegt að lifa.

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.