Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 59
HEILSUVERND
57
ritum. Og danska blaðið Politiken hefir einnig nýlega birt frásögn
af tilraunum þessum og telur þær til stórtíðinda.
Það er vissulega betra seint en aldrei, að vísindaleg viðurkenning
fáist á staðreyndum, sem einstaka viðsýnir heilbrigðisfrömuðir meðal
lækna og leikmanna í ýmsum löndum hafa verið að prédika ára-
tugum saman án þess að læknar almennt eða þorri almennings
hafi gefið því nokkurn gaum og jafnvel dregið dár að. Það eru nú
meira en 30 ár liðin, síðan Jónas Kristjánsson byrjaði að prédika
hér á landi á móti hvíta hveitinu, sem einhæfri fæðutegund og bein-
línis skaðlegri vegna framandi eiturefna. sem í það væru sett.
Flestir hafa hrist höfuðið við þessari „firru“. En nú eru vísindin
loksins að átta sig, og þá geta neytendur ekki lengur borið því við,
að Jónas Kristjánsson eða náttúrulækningastefnan sé hér að flytja
einhverjar villukenningar.
1 umræðum um breytingar, sem gera þarf á mölun og meðferð
hveitis, til að ráða bót á þessu, hefir verið á það drepið að korn-
myllurnar hafi komið upp dýrum tækjum til þess að sprauta hinu
eitraða efni inn i mjölið. Nú verði þessi dýru tæki ónýt, og hver
á þá að bæta myllueigendunum tjónið?
Þetta er óneitanlega dálítið kátbroslegt sjónarmið. Kornmyllurn-
ar eru yfirleit stórgróðafyrirtæki. Og ekki sízt hafa þær grætt á
því að framleiða hvítt hveiti, sem eyðileggur heilsu manna, bæði
vegna skorts nauðsynlegra næringarefna og vegna hinna framandi
eiturefna. Það ætlast enginn til, að þær hætti að mala, heldur að þær
hætti að eyðileggja beztu eiginleika kornsins. Og fyrir þetta, fyrir það
að hætta að byrla almenningi eitur, á að greiða þeim skaðabætur!
Þess má geta, að Englendingar banna nú að skilja meira en 5%
frá hveitinu, þegar það er malað. Þeir nota m. ö. o. 95% heilhveiti,
sem segja má að innihaldi öll þýðingarmestu efni hveitikornsins.
Því ekki að fylgja þessu fordæmi Englendinga?
AÐALFUNDUR NÁTTÚRULÆKNINGAFÉL. ISLANDS.
Aðalfundur NLFl var haldinn í húsi Guðspekifélagsins við Ing-
ólfsstræti fimmtud. 29. april. Fundarstjóri var Sigurjón Pétursson,
en ritari Hannes Björnsson. Framkvæmdastjóri félagsins, Björn L.
Jónsson, gaf skýrslu um starf íélagsins á umliðnu ári, og fer hér á
eftir útdráttur úr henni.
FélagslífiÖ. Félagsfundir hafa aðeins verið 3 á árinu og auk þess
ársskemmtun 10. marz 1947. Stjórnin hefir hinsvegar haldið 18
fundi, þar af 7 með stjórn Heilsuhælissjóðs.