Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 62
60
HEILSUVERND
mikið af félagsgjöldum útistandandi vegna veikinda gjaldkera á
árinu, en frá áramótum til aðalfundar hefir verulegur hluti þeirra
verið innheimtur.
Bókaútgáfan. Tekjur umfram gjöld urðu rúmar 12 þús. krónur, en
skuldlaus eign í árslok rúml. 100 þús. krónur. Þar af eru í bókabirgð-
um hjá útgáfunni rúmar 42 þúsundir og útistandandi hjá bóksölum
og öðrum útsölumönnum (bókabirgðir og ógreiddar bækur) rúmar
50 þúsundir.
Matstofan. Tekjur matstofunnar (selt fæði og vextir af bankainn-
stæðum) námu kr. 515.330.00, og varð rúmlega 19 þús. króna hagn-
aður á árinu. Skuldlaus eign matstofunnar í árslok nam tæpl. 120 Þús.
krónum.
Afmœlissjóður Jónasar læknis Kristjánssonar. I honum voru í
árslok kr. 16.404.84. Fjórum fimmtu hlutum af vöxtum sjóðsins má
verja til að styrkja lækna eða læknaefni. sem vilja kynna sér nátt-
úrulækningar erlendis. I stjórn sjóðsins eru: Jónas Kristjánsson (sjálf-
kjörinn formaður), 2 menn tilnefndir af stjórn NLFl (Björn L.
Jónsson og Hjörtur Hansson) og 2 tilnefndir af stjórn Heilsuhælis-
sjóðs (frú Svava Fells og Kristmundur Jónsson). Sjóður þessi
var stofnaður á sjötugsafmæli Jónasar Kristjánssonar og hefir enn
ekki verið veitt fé úr honum.
Heilsuhælissjóður. 1 fjarveru gjaldkera sjóðsins, frú Guðrúnar Þ.
Björnsdóttur, las Björn L. Jónsson upp reikninga hans. Tekjur sjóðs-
ins umfram gjöld námu á árinu kr. 83.600.97. Stærsti tekjuliðurinn
var happdrættið, sem skilaði rúmum 63 þúsundum i sjóðinn við ára-
mót. Gjafir og áheit voru tæpar 10 þús. kr., merki og minningarspjöld
tæpl. 1900 krónur, ágóði af skemmtun og bazar kr. 6360.50 og af-
gjald eftir Gröf rúml. 3500 krónur. Skuldlaus eign sjóðsins var í
árslok kr. 138.020.01.
Samtals hefir velta félagsins, fyrirtækja þess og sjóða numið kr.
667.672,51, og skuldlausar eignir í árslok voru kr. 430.075,32.
Eftir að reikningarnir höfðu verið bornir upp og samþykktir, var
samþykkt samhljóða tillaga frá stjórnum félagsins og Heilsuhælis-
sjóðs um breytingu á skipulagsskrá sjóðsins, þess efnis, að bætt verði
inn því ákvæði, að sjóðurinn og væntanlegt heilsuhæli verði háð
eftirliti heilbrigðisstjórnarinnar. Var þetta skilyrði, sem menntamála-
ráðuneytið setti fyrir því, að félagið Þyrfti ekki að greiða skemmtana-
skatt af þeim skemmtunum, sem haldnar eru til ágóða fyrir sjóðinn.
Frummælandi (B. L. J.) gat þess, að forráðamenn félagsins hefðu
alltaf hugsað sér, að hælið væri rekið í samræmi við gildandi lög um
sjúkrahús og heilsuhæli, sem öll stæðu að sjálfsögðu undir eftir-
liti heilbrigðisstjórnarinnar.