Luxus - 01.12.1984, Blaðsíða 23
TværJyjTverandifeg- þetta tvöfalda er ítalsk' og kemur frá Armani. Franskra áhrifa
urðardrottningar okkar gætir einnig. Antikbleikar/brúnbleikar buxur og dress. Bóm-
íslendinga, Unnur ullarkakí. Leður - svart leður. Kápurog jakkar, leðurbolir/
Steinssen og Guðrún topp;i?' og bein, þröng pils. Sídd 10 cm eða 20 cm frá
Möller. Unnur íkjólfrá ökklabeini og ekkert þar á milli. Blazerjakkar. Uppreimaðir
Fanný og Guðrun i ökklaskór. Stíf, bein leðurstígvél með nýja hælnum sem nú
^^Maríunum ^allar ögn inn á við. A la kúrekahællinn. Stretsbuxur, lausar
um sig. Svartar, rákaðar sokkabuxur. Breið mjaðmabelti.
Ekki er allt búið enn. „Hvíta línan verður sterk í vetur,“
segir Margrét í versluninni Sonju á Laugaveginum. Beinhvítt/
vetrarhvítt frá hviríli til ilja. Mótorhjóla-/derhúfur; treflar,
vettlingar og grifflur. Sjöl, blússur, pils, vesti og samfestingar
í beinhvítu. Bómullarefni og silki. Sportleg, þægileg og víð
föt er vetrarboðskapurinn frá Skandinavíu. Koksgrátt, ljós-
brúnt og rauðbrúnir litir fylgja fast í kjölfarið ásamt brúk-
legum leðurfatnaði. Fóðraðar leðurbuxur, leðuijakkar og
-úlpur með nýstárlegum rennilásum og tilþrifum.
Alger stakkaskipti verða sé vikið að kvöldklæðnaðinum.
Hér gildir allt, sem er yfirmáta kvenlegt og elegant. Silki. Fín,
þunn efni eins og thaisilki, siffon, taft og satín. Opin hálsmál.
„Kvöldklæðnaðurinn er flottur," segja María og Fanný ein-
róma. Flegnir ökklasíðir kjólar og támjóir, háhælaðir skór.
Svart, hvítt, kóngablátt, hárautt, gult og jafnvel neonlitir
koma til greina. Blúndusokkabuxur, aðallega í svörtu. Sokkar
með saumum að aftan. Bundin blúnduræma um hárið er ný
fluga. Pelsar, bæði ekta og óekta. Svartir rykfrakkar, með
stórum ekta pelskrögum er kvöldelegans frá Lauren. Norma
Kamali stingur í stúf, sem fyrr, með frottékápum og eftirlík-
ingu af persneskum pelskrögum. Til nánari glöggvunar á
samkvæmiskjólum komandi árstíðar má geta þess að
mjaðmalínan verður í brennidepli. Vasar, aukavídd og löf auk
litaskipta sem miðast við mjaðmirnar. Skartgripir eru aftur
í hávegum hafðir. Stórir, hangandi eyrnalokkar úr semelíu-
Steinum. Glimmersteinar, pallíettur og perlur - þetta með
perlurnar er dálítið einstrengingslegt. Perlur skulu vera ekta.
Efri mynd: Fanný. Neðri mynd: Anna í Quadro.
KVENFATNAÐUR LUXUS 23