Luxus - 01.12.1984, Blaðsíða 98
98 LUXUS SMOTTERI
Hóist lífið á jörðinni
með óhreinum snjóbolta ?
Vísindamenn nútímans halda því
almennt fram að lífið á jörðinni hafi
byrjað fyrir 3-4 milljörðum ára með
samruna lofts, vatns, jarðefna og
elds í einhvers konar hrærigraut
frumefna (lofttegunda og kristallaðs
leirs í hafinu) og að heilmikið eld-
ingaél hafi kveikt í þessu fyrsta lífs-
neistann - en árið 1940 kom vís-
indamaður að nafni Sir Fred Hoyle,
prófessor í stjömufræði við Cam-
bridge háskólann, með nýja kenn-
ingu. Hún vakti ekki mikla athygli í
fyrstu en nýjar rannsóknir benda til
að hún geti átt við rök að styðjast.
Sir Fred heldur því fram að lífið sé
ættað frá einhvers konar rykskyjum
sem svífa um geiminn. í þeim eiga
að vera skilyrði til að örverur geti
myndast. Af og til gerist það að
halastjörnur draga þessi ský að sér.
Þá þéttastþau. frjósa ogfylgja halan-
um. Einhvern tímann hefur svo
halastjarna ruðst inn fyrir gufuhvolf
jarðar með svona „lífssæði".
Kenningin virðist nokkuð fjar-
stæðukennd en nýlega hafa vísinda-
menn fundið margt athyglisvert í
þessum rykskýjum sem svífa um á
milli stjarnanna, m.a. efni sem eru
nauðsynleg til lífkeðjumyndunar,
s. s. methyl-hlaðnar gastegundir. líf-
rænar sýrur og margt fleira - jafnvel
flókin efnasambönd skyld vínanda.
Nýlega tókst stjörnufræðingum að
sanna að í einu þessara skýja, Orion
Nebula, sé að finna tréni (sellulósa)
sem er eitt af grundvallarefnunum í
fjölda lífrænna sameinda.
Ef kenning Sir Hoyles er rétt er
ekki heldur loku fyrir það skotið að
líf sé að finna á öðrum stjörnum.
Hún gæti Hka skýrt margt annað -
t. d. þá gömlu hjátrú að halastjörn-
um íýlgi stundum plágur og drep-
sóttir...
Um 56 milljónir manna búa nú á
Stóra-Bretlandi og þar eru starf-
ræktar um 77 þúsund ölkrár. 1.
desember árið 1983 voru íslendingar
orðnir 238.175 talsins svo að miðað
við höfðatölu (og ef bjór væri leyfður)
gætu verið um 330 krár hér á landi.
Hér á eftir fer tafla, svona upp á grín,
um bjórkráafjölda á einhverjum 15
stöðum umhverfis landið:
Sauðárkrókur . .
Akureyri ........
Húsavík.........
Egilsstaðir......
Höfn í Hornafirði
Selfoss..........
Vestmannaeyjar .
Grindavík .......
Keflavík.........
Hafnarljörður . . .
3
20
4
2
2
5
7
3
10
17
Ein íítíl komma
kemur
Bandankjaforseta í vanda
Reykjavík................. 120
Borgarnes................... 3
Patreksfjörður ............. 1
ísafjörður.................. 5
Blönduós.................... 1
Samkvæmt þessu er Borgarnes
þriggja pöbba bær og Búðardalur
fengi einn pöbb - fyrir sig og nær-
sveitimar.
Það kom upp stórmál sem lítið
hefur verið rætt um á flokksþingi
repúblikana í þeirri frægu borg
Dallas, Texas í ágúst sl. Deilan sner-
ist um skattamál og kom upp þegar
borin var fram ályktun frá Hvíta
húsinu þess efnis að flokkurinn væri
„mótfallinn sérhverri tilraun til að
auka á skattabyrði sem gæti skað-
að efnahagslegar endurbætur og
snúið við þeirri uppbyggtngu sem
þegar hefur orðið á efnalegu ein-
staklingsfrelsi Bandarikjamanna. “
Málfræðingar og aðrirsem vit hafa
á þingskjölum tóku strax eftir því að
þetta er viðkvæm setning og líkleg
til mistúlkana. Þar sem þeir gerðu
ráð fyrir að repúblikanar væru ekki
á móti öllum sköttum. heldur aðeins
þeim sem gætu virst skaðlegir fyrir
efnahagslegar endurbætur, vildu
þeir láta breyta klausunni meðþviað
bæta einni lítilli kommu inn í hana.
Hún hefði þá orðið á þá leið að ílokk-
urinn væri „mófallinn sérhverri til-
raun til að auka á skattbyrði. . ..
sem gæti skaðað efnahagslegar
endurbætur og snúið viðþeirri upp-
byggingu sem þegar hefur orðið á
efnalegu einstaklingsfrelsi Banda-
ríkjamanna. “
Samkvæmt enskri málfræði er
setningarhlutinn fyrir aftan komm-
una nánari útlistun á hvers kyns
skattbyrði átt er við.
Hófust nú miklar deilur um bæði
afbrigði setningarinnar. Sumir vildu
láta afnema alla beina skatta en
aðrir vildu að hægt væri að grípa til
einhvers konar skatta ef á þyrfti að
halda. Loks var samþykkt að setja
kommuna á tilskilinn stað í setning-
unni með þeim fyrirvara að hana
mætti fjarlægja ef ástæða þætti til.
TiIIagan var samþykkt, en til að
fyrirbyggja að Walter Mondale gæti
gert sér mat úr þessu sagði einn af
nánustu samstarfsmönnum Reag-
ans. Drew Lewis, við blaðamann að
fundinum Ioknum: „Ég kann ágæt-
lega við kommur."
í Reykjavík væru 120 pöbbar ef þar væri sama hlutfall á móti
íbúajjölda og í Stóra-Bretlandi . . . ljósm.: magnúS hjörleifsson
Rothstein skuldaði Weiner fimm
þúsund krónur. Það var komið að
skuldadögum svo að hann fékk
fimm þúsund krónur lánaðar hjá
Spivak og borgaði Weiner. Viku síðar
fékk hann aftur, lánaðar fimm þús-
und krónur hjá Weiner til að borga
Spivak - og enn einni viku seinna
fékk hann sömu upphæð lánaða hjá
Spivak til að borga Weiner.
Þetta endurtók sig nokkmm sinn-
um þangað til hann kallaði báða
mennina á sinn fund og sagði: „Þetta
er allt of mikið vesen. strákar. Haldið
þið bara áfram að borga hvor öðrum
þessar fimm þúsund krónur í hverri
viku en haldið mér utan við það."
Og svo er hér að lokum einn úr
síðari heimsstyrjöldinni:
Berger, sem hafði falið sig ásamt
konunni sinni fyrir nasistum uppi a
háaiofti í gömlu húsi í Berlín, ákvað
að læðast út einn daginn og fá sér
ferskt loft. Meðan hann var úti að
spásséra mætti hann allt í einu
manni sem var enginn annar en
Adolf Hitler í eigin persónu.
Þýski nasistaforinginn dró fram
skammbyssu og benti með henni a
hrossaskítshrúgu á götunni.
„Jæja, gyðingur, éttu þetta eða ég
drep þig,“ öskraði hann.
Skjálfandi á beinunum gerði vesl-
ings Berger það sem honum var
skipað. Þá fór Hitler að hlæja svo
óstjórnlega að hann missti skamm-
byssuna. Berger náði henni, stóð
upp og sagði: ,Jæja karlinn. Ett þu
nú hrossaskítinn eða ég hleypi af og
stytti þér aldur.“
Nasistaforinginn fór niður á hend-
ur og hné og byrjaði að éta. Meðan
hann var að því laumaðist Berger a
braut, hljóp gegn um skuggasund,
stökk yfir girðingu og komst óséður
upp á loft til konunnar sinnar. Hann
skellti aftur hurðinni og læsti.
„Hilda, Hilda,“ hrópaði hann til
konunnar. „Gettu með hverjum ég
borðaði hádegismat í dag.“