Luxus - 01.12.1984, Blaðsíða 84
SMOTTERI
Aðalsvlð Norðurlandahússins er hátt til lofts og vítt til veggja enda er
Konsertsalurinn hinn myndarlegasti. A sviðinu eru fulltrúar íslands á
jazzhátíðinni.
Islenskujassistunum
vel tekið í Færeyjum
Ein mesta jazzhátíð á Norður-
löndum var haldin í Færeyj-
um í sumar. Þórshöfn var
öll undirlögð af lifandi tónlist um
miðjan ágústmánuð. Hugmyndina
að hátíðinni, „Tórshavn jazz, fólka
og blues festival" átti Brandur Öss-
ursson, einn færasti jazzleikari Fær-
eyja. Hann rak um árabil eina af
umfangsmestu skemmtikraftaskrif-
stofum á Norðurlöndum; Skandin-
avisk Musik Bureau í Kaupmanna-
höfn og er kunnur víða um lönd sem
hljóðfæraleikari.
Fulltrúar Islands ájæreysku jazz-
hátíðinni (frá vinstri]: Árni
Schevíng, Kristján Magnússon,
Guðmundur Steingrímsson og Jón
Páll Bjarnason. Annar íslendingur,
trommuleikarinn Guðmundur
Steinsson sem er búsettur í
Þórshöjn, kom einnig við sögu á
hátíðinni og lék með Jæreysku be-
bop hljómsveitinni Hans Jensens
kvintet.
Um 30 hljómsveitir og skemmti-
kraftar komu þarna fram, s.s. Blast
frá Danmörku, Cornelius Vreeswijk
frá Svíþjóð, Hans Brunckholst frá
Þýskalandi, Heikki Keskinin frá
Finnlandi, Kvartett Kristjáns Magn-
ússonar frájglandi, Lillian Butté frá
Bandaríkjunum, Svend Asmundsen
Group frá Danmörku og Yggdrasil
frá Færeyjum.
Nýja Norðurlandahúsið í Þórshöfn
var aðalvettvangur hljómleikanna.
Þar voru allir salimir undirlagðir
(Konsertsalurinn, Amfipallurinn og
Dansistovan) og einnig leikið í garð-
inum en auk þess var spilað undir
beru lofti í höfuðstaðnum, í Útvarps-
höllinni og SMS-Magasín. Fólk
þyrptist á hljómleikana og er talið að
ekki færri en 5.000 hafi komið.
Hærri tölur hafa líka heyrst. Flestir
komu reyndar frá eyjunum 18 en
auk þess gerðu nokkur hundmð
erlendra ferðamanna sér sérstaka
ferð til Færeyja í tilefni hátíðarinnar.
Langflestir þeirra komu með Norr-
öna en þar var hægt að fá dálítið
forskot á sæluna því að flestir af
erlendu hljóðfæraleikumnum vom
um borð og spiluðu á leiðinni.
A sjálfri jazzhátíðinni fengu ís-
lendingamir hvað bestar móttökur
en auk þeirra vöktu bandaríska
söngkonan Lillian Butté, ásamt
hljómsveit, og danska 16 manna
hljómsveitin Blast líka verðskuldaða
athygli.
Annars var stemmningin með ein-
dæmum góð alla hátíðina og gleðin
í algleymingi enda hefur þegar verið
ákveðið að taka þráðinn upp aftur
næsta sumar.
ROCHAS KYNNIR LUMIERE_
Blómailmur í tísku
Hugmynd Helenu Rochas að nýja
ilminum, LUMIERE, fjallaði um
hönnun á frumlegu Eau de Parfum,
sem væri byggt á hvítum blómum,
fullu fangi af hvítum blómum. En á
sama tíma átti ilmurinn að vera
ferskur og léttur. Rochas fannst
blómvöndurinn hvíti eiga vel við af-
kastamikla konu. Hún átti að vera
umvafin ilminum frá morgni til
kvölds. Blómailmur er í tísku. Lum-
iere er hannað með tilliti til þess.
„Fyrirmyndarinnar að Lumiere
leitaði ég í hinum ýmsu blæbrigðum
ljóss, fyrstu geislum sólarupprásar,
hvítu ljósi hádegis, mildum bleik-
rauðum tónum sólarlags," segir Hel-
ena Rochas. Og hún heldur áfram:
„I garðinum mínum í París ilmar
loftið af yndislegri lykt hvítra blóma.
Þar eru liljur, túberós, jasmín og
gardenía. I huga mínum er ilmur
þessara blóma hin sýnilega túlkun
Lumiere um leið og hún inniber
geisla ljóssins. í þessu nýja Eau de
Parfum álít ég þig geta skynjað hug-
takið ljós, sérstætt ljós, hina skæru
dagsbirtu sameinast mildum kvöld-
roðanum, þeim sem gerir París svo
töfrandi við sólarlag.“
Ilmhönnuðurinn Nicholas Mam-
ounas hjá Rochas gefur eftirfarandi
skýringu á samsetningu Lumiere:
„Fyrsti tónninn er Honeysuckle (vaf-
toppur), blómailmur með ofurlítið
grænum ferskleika. Aðaltónninn er
úr Jasmine frá Grasse héraðinu,
Gardeni, Magnolia (tré af japanskri
ætt) og vottur af Tuberose (rósarteg-
und) og Orange Blossom (blóm-
knappur appelsínutrjáa). Öll stafa
þau frá sér þokkafullum, hvítum
blómailmi."
„Þessi ilmur þurfti einnig að vera
sérstæður og á sama tíma bæði stíl-
fagur og fágaður í samræmi við aðrar
vörur frá Rochas," segir Mamounas
ennfremur. JUlur blómailmur á það
sameiginlegt, að endast skamman
tíma nema hann sé yfirþyrmandi
þungur. Þess vegna hafði ég einnig
ofurlítið Coriander í Mumiere til
þess að fyrsti tónninn stæði lengur
ferskur við. Á sama tíma notaði ég
Amber í undirtóninn, til þess að
veita ilminum styrk, ávala mýkt,
sem ásamt ferskum tónum gefur
Lumiere dýpt og endingu.1'
Lumiere var kynnt samtímis a
íslandi og í Frakklandi, en sjaldgæft
er að nýjar snyrtivörur séu sam-
stundis komnar á markaðinn hér.
Það er Klassík sf. sem annast inn-
flutning þessarar vörutegundar.
Frá blaðamannajundi þarsem Lumiere varkynnt. Fulltrúar Rochas, Jessy
Daniel og Martin Flan, ásamt Heiðarí Jónssyni snyrti og Sigrúnu Sævars-
dóttur, Jramkvæmdastjóra Klassík. ljósm.: magnús hjörleifsson
Mjúk skinn til heimasaums — og þau má þvo heima
Lítil en athyglisverð leður- og
skinnaverslun tók til starfa fyrir
skömmu við Laugaveg 20 undir nafn-
inu Leðurbiakan. Þar verða á boð-
stólum alhliða vörur úr leðri og
skinnum, jafnt föt, töskur, veski,
skór og skinn tii sauma.
Nýstárlegustu vörumar em skinn,
til að þjóna sívaxandi áhuga á
heimasaumi. Þetta em mjúk skinn,
sem hægt er að sauma í venjulegum
saumavélum í heimahúsum. Og þá
er það einnig í frásögur færandi, að
meirihlutann af skinnunum má
handþvo í volgu vatni og sápuspæn-
um eða hársjampói. Sum má einnig
þvo í þvottavél.
Eigendur verslunarinnar em þær
Hallbjörg Thordarson, sem verður
verslunarstjóri, og Hulda Gránz.
LJÓSM.: MAGNÚS HJÓRLEIFSSON