Luxus - 01.12.1984, Page 35
Samkvæmt upplýsingum bandaríska nóbelsverðlaunaskáldsins Johns
Steinbeck er ekki sama hvernig farið er að því að biðja um stóra krús af
bjór með mjólk saman við á bar í suðausturríkjum Bandaríkjanna. Þetta
er óvenjulegur drykkur og vekur viðbjóð margra við fyrstu sýn. Þess vegna þýðir
ekki að biðja um hann umyrðalaust, sértu t.d. staddur á bar í Texas eða Alabama.
Þú værir sennilega álitinn ruddi, öfgasinni eða öfuguggi og senniiega hent út á
stundinni. Ef þú segðir barþjóninum hins vegar í trúnaði (veiklulegur í framan)
að þú sért magaveikur og drekkir mjólkurblandaðan bjór samkvæmt læknisráði
þá horfir málið öðruvísi við. Þú fengir jafnvel ókeypis bjór og heilmikla samúð
þótt drykkurinn sé jafn ruddalegur eftir sem áður.
Mörgum finnst fjarstæðukennt að blanda mjólk saman við áfengi og halda
líklega að hún hlaupi í kekki við það eða súrni upp. Það er alger misskilningur.
Mjólk súrnar ekki í áfengi þótt hún sé geymd í því mánuðum saman og þeir sem
hafa drukkið mjólkurblönduð vín hafa komist að raun um að mjólkin hefur
einmitt mildandi áhrif á bragðið. Til eru frægir mjólkurkokkteilar og
samkvæmisdrykkir með þeyttum rjóma eins og t.d. Alexander og Grasshopper.
‘V/g y s % • ,tl Uf* , / ' 'V
' *//jrypj’y )'.( y t’O't' '' \
, , , < • t f ,
' í: