Luxus - 01.12.1984, Side 50
hún er ekki viss um hvort er viðeig-
andi að láta í ljós við svona tilfelli,
en beygir sig niður í fína melónurétt-
inn - og springur!).
Venus, ímynd kvenlegrar fegurð-
ar, er ríkjandi stjarna vogarmerkis-
ins sem ofangreind persónulýsing á
við. Fæddar í þessu merki eru marg-
ar af fegurstu konum heims, s.s.
Brigitte Bardot, Rita Hayworth, Britt
Ekland og Sarah Bernhardt, eða var
hún ekki falleg? (Sólveig byijar aftur
að hlæja!)
- Hvort ég er fædd í réttu merki
til þess að vera fegurðardrottning
veit ég nú ekki vegna þess að við
höfum átt svo margar fegurðar-
drottningar á liðnum árum. En, jú
ég held að þessi lýsing á mínu
stjömumerki eigi ágætlega við mig
þannig að merkið hlýtur að hafa sitt
að segja í þessu tilfelli.
- Huað erJegurð í augum Jegurð-
ardrottningar?
- Það er fyrst og fremst kvenleg
reisn og hæfileikinn til að koma . . .
vel fram. Kunna að bregðast rétt við
hlutum og kunna að klæða sig, ekki
endilega eftir tískunni, og
kunna...
- Spurningin er: Hvað erjegurð?
— Þetta eru svo erfiðar spurning-
ar! (Hlær)
- Fallegur persónuleiki, vegna
þess að fallegur persónuleiki hefur
ekki lítið að segja. Hann hefur mikið
að segja. Þú getur verið blíð, fín eða
gróf og hörð. (Eða allt samtímis?) -
Ekkert mál. (Hlær). Það fer eftir
aðstæðum. Erþettaekki komiðþá?!
- Svolítið meira. Hvað er . . ?
- Fegurð er fuglasöngur úti í nátt-
úrunni. Þegar og ef sú persóna sem
maður umgengst höfðar til manns.
Ég hef mjög gaman af því að ferðast,
því að ég hef gaman af að koma á
fallega staði. Eg leita eftir fallegum
stöðum. Eins finnst mér list mikil
fegurð. Til dæmis olíumálun, ég
mála sjálf. Málverk - þau eru heima
hjá mér. Ég hef nú ekki farið í
Myndlistarskólann, en ég hef þetta
svolítið frá móður minni vegna þess
að hún lærði þegar hún var ung og
hún málaði yfir 40 málverk sem eru
á víð og dreif um landið og í öðrum
löndum líka. Ég er svona ein af
þessum áhugamálurum þjóðarinn-
ar; þetta er eitt af mínum hobbíum
fyrir utan ferðalög og skíði náttúr-
lega. Ég hef nú ekki gefið mér tíma
til að mála mikið núna, en ég málaði
mikið á síðastliðnu ári. Ég set þetta
bara svona á korkplötu - teikniborð,
en ég á svo sem engar græjur. Ég tók
nokkra tíma hjá konunni sem
kenndi móður minni fyrir tuttugu
árum og hún er að kenna mér það
sem hún hefur þjálfað með sér í öll
þessi ár. Það er að blanda liti og . . .
- Þegar maður málar og ef maður
nær góðum kontakt við það sem
maður er að gera, þá kemur þetta
ósjálfrátt þegar maður er vel upp-
lagður eða í góðu formi þá getur
maður komið með hluti sem, sem
sagt, koma manni á óvart. Þá kemst
maður í stuð - þá er ég farin að
skapa, abstrakt og fleira. Mér finnst
gaman að því og einnig finnst mér
gaman að mála landslag og breyta
því kannski, en ekki of mikið.
- Þegar þú málar, Jinnst þér þú
þá vera að reyna að gera eitthvað
Jallegt -Jinnst þér þú reyna aðjá
Jram Jegurð?
- Já. Einmitt. Einhverja mýkt.
Ég er þannig að ég reyni að fá
einhverja mýkt fram; ekki einhveija
virkilega hvassa punkta, heldur
mýkt og mínir uppáhaldslitir, til
dæmis, eru blár, heiðblár eins og
himinninn, og líka gulur. Sólin og
himinninn. Þegar maður málar þá
kemur þetta frá manni sjálfum, það
er engin mynd eins, en eftirlíkingar
líst mér ekki á, segir Sólveig Þóris-
dóttir, en hún hlaut þann heiður að
vera kosin þriðja fegursta stúlkan í
fegurðarsamkeppninni í ár.
Þessar sem verða númer þijú fá
líka kórónu, en bara litla. Hver er
kominn til með að segja að það sé
eitthvað verra að fá fyrirferðar-
minnstu kórónuna? Það er eitthvað
hugljúft við litlar kórónur, eitthvað
óráðið við þær sem bera þær - sem
höfðu eitthvað, sem dómnefndin gat
ekki litið framhjá þrátt fyrir allt!
- Hvaða tækijæri haja þærjeng-
ið sem haja orðið númer þijú á
undan þér, Sólveig?
Stúdíómyndatökur
SMzt
I
%
Ljósmyndaþjónusta
Siguröur Þorgeirsson Ijósm.
Klapparstíg 16 Sími 14044
- Kristín Hrund Davíðsdóttir
(1980) fékk tilboð frá París um ljós-
myndafyrirsætustörf o.fl. Hún var
þar í u.þ.b. eitt ár og hefði getað
komist lengra ef hún hefði viljað, en
ég held að hún hafi sjálf ekki haft
neinn sérstakan áhuga. Líney Frið-
Jinnsdóttir tók þátt í keppninni
Ungfrú Evrópa 1962. Hún fór í
heimsferðalag við fatasýningar á
vegum Alheimsfegurðarsamkeppn-
innar, eða „Comité de Beaute Inter-
nationale", sem eru höfuðstöðvar
allra smærri keppnanna. Evrópu-
keppnin er aðeins deild út frá höfuð-
stöðvunum. Aðrar sem nefna mætti
hafa e.t.v. ekki farið sigurför um
heiminn sem fegurðardísir, en þær
hafa samt látið að sér kveða á ýmsan
annan hátt. Edda Jónsdóttirt 1958)
er myndlistarmaður, grafíklistar-
kona. Sigrún Sigurðardóttir (1960)
hefur verið mikið í fjölmiðlum og er
eiginkona Jónasar Jónassonar (kon-
an bak við manninn). Gígja Her-
mannsdóttir er gift séra Önundi
Björnssyni útvarpsmanni og er vel
þekkt sem leikfimikennari. Sonja
Egilsdóttir (1963) stofnaði verslun-
ina Sonju. Árið 1983 var breytt um
stúlku til Evrópukeppninnar, en þá
fór Steinunn Bergmann í keppnina.
Hún er ennþá sýningarstúlka hér
heima. Annars hefur það oft gerst
að þriðja sætið hefur fallið niður um
leið og fleiri hafa orðið um það sam-
tímis. Þá er aðeins kosin númer eitt
og númer tvö, en þijár eða fleiri
hljóta þriðja sætið.
- Hvers vegna tókstu þátt í þess-
ari Jegurðarsamkeppni?
- Hvers vegna ekki!? Þetta býður
upp á ýmis tækifæri. Mig langar til
að vinna sem ljósmyndafyrirsæta.
Frá því ég var 16-17 ára hefur fólk
spurt mig að því hvers vegna ég tæki
ekki þátt í svona keppni. Það var
einfaldlega bent á mig utan úr bæ.
Ég hef tekið þátt í einni keppni
áður. Það var fýrir keppnina Ungfrú
Útsýn 1981. í framhaldi af því ferð-
aðist ég til Lignano á Ítalíu og birtist
á Útsýnaralmanakinu í júlímánuði
árið 1982. 80% af lífi manns fer í
það að vinna, sofa o.s.frv. Þessi 20%
sem eftir eru vil ég nota til þess að
gera það sem mig langar til! Vissu-
lega finnst mér gaman í vinnunni,
sem er bæði áhugaverð og krefjandi.
Ég vinn sem sölumaður (-kona) hjá
Skrifstofuvélum hf. Því fylgja mikil
samskipti við fólk og ferðalög en þó
stefni ég að því að fara í framhalds-
nám í tölvunarfræði.
- Ferðu svo í keppnina um
Ungfrú Európu?
— Þessari keppni verður sjónvarp-
að beint til milljóna áhorfenda um
heim allan. Þetta verður í byijun
janúarmánaðar árið 1985 og mun
að öllum líkindum eiga sér stað í
Madrid. Ég vona að ég verði verðugur
fulltrúi.
Brosa?! Ég ætla að gera mitt besta
í þeim efnum, segir Sólveig - og
brosir.