Luxus - 01.12.1984, Síða 61
París fer óumdeilanlega með
forystuhlutverkið í tísku-
heiminum. Tískuhúsin þar í
borg gefa línuna og tvisvar á ári
fyllist borgin af innkaupastjórum
tískuverslana annars staðar að úr
heiminum sem og tískufréttaritur-
um og öðrum, sem láta sig tískuna
einhveiju varða. Sýningar standa
frá morgni til miðnættis og ljós-
myndarar sjást út um alla borg við
myndatökur af tískusýningarstúlk-
um. Stærsta myndin hér á opnunni
er tekin í Rue du Faubourg Saint-
Honoré þar sem stærstu nöfnin eru
með verslanir í röðum, svo sem eins
og Lanvin, Dior, Yves Saint-Laurent,
Gucci, Louis Feraud, Ungaro,
Balmain og fleiri. Og í þessari götu,
sem og öðrum í París þar sem eitt-
hvað er um vegfarendur að ráði, er
kaffihús þar sem notalegt er að tylla
sér niður í lengri eða skemmri tíma
og fjárfesta í kaffisopa.
Carmen er til sýnis í París líkt og
við Ingólfsstrætið. Hér að vísu aðeins
á hvita tjaldinu. En viljir þú njóta
lifandi tónlistar er af nógu að taka í
París. Þú getur t.d. farið í hina
frægu óperu - og þú munt njóta
þess þó óperusöngur sé ekki þitt
uppáhald; í París er nefnilega eitt
íburðarmesta óperuhús veraldar.
Annars er líka nóg af annars lags
músík í borginni, jazz, rokk og
hvaðeina. Nefndu það bara. Nú, og
svo ert þú líka alltaf að ganga fram
á götusöngvara sem slá ekki hend-
inni á móti smápeningunum
þínum. Strákamir með gítarana á
myndinni hér fyrir neðan sungu full-
um hálsi lög Simons og Garfunkels
af svo mikilli snilld, að mannfjöldinn
sem safnast hafði saman til að hlýða
á sönginn, ætlaði af göflunum að
ganga þegar tveir lögreglumenn
stöðvuðu skemmtunina.
Karlinn á myndinni lengst til
hægri átti ekki gítar og var of rámur
til að geta önglað saman fyrir máftíð
með sönglist. En þá var bara að
aðgæta, hvort einhver hefði ekki
hent ætilegum matarleifum í rusla-
dallinn við gangstéttarbrúnina.
Hann hefði trúlega fengið vatn í
munninn við þá sjón sem blasti við
okkur í næstu götu, tveim stómm
kössum fullum af þessum löngu,
góðkunnu franskbrauðum.
Hér til vinstri sjáum við leiðsögu-
mennina Henríettu og Rósamundu
gera heiðarlegar tilraunir til að lesa
út úr landakorti með eiginkonu höf-
undar þessa greinarstúfs. Þær vom
þarna komnar í sitt fínasta tilbúnar
að taka á móti 30 íslenskum
kvensum, sem ætluðu að kynnast
París undir handleiðslu þeirra.
Myndin þar fyrir neðan sýnir eina
nýjustu verslunarmiðstöð Parísar,
Fomm Les Halles, sem er skammt
frá Pompidou safninu. Þar em eink-
um fataverslanir og úrvalið geysi-
gott, hvort sem þú ert að leita að
gallabuxum eða spariklæðum sam-
kvæmt nýjustu tísku. í verslunar-
miðstöðinni og í nágrenninu er líka
að finna marga fyrirtaks matsölu-
staði. Sjáið sérkennilegt byggingar-
lag miðstöðvarinnar og aldagamla
bygginguna í baksýn. Það er ekki
óalgengt að rekast þannig á and-
stæður tímanna tvennra í henni
París.
Loks er að geta skemmtanalífsins,
sem París er svo margfræg fýrir.
Næturlífið er ótrúlega fjölskrúðugt
og þú hefur það á tilfinningunni, að
borgin taki aldrei á sig náðir. Kaffi-
húsin em mörg hver opin fram til
a
I
o
Q
klukkan fimm á morgnana og alls
staðar er fólk á ferli. Þú getur alltaf
fundið stað sem selur þér eitthvað í
svanginn. Nokkuð sama hvar þú
sest að snæðingi, Fransmenn em
allir snillingar í matargerð.
Næturklúbbar Parísar em margir
heimsfrægir og nægir þar að minna
á Rauðu mylluna og Lido. Einnig
em sýningamar á Crasy Horse Sal-
oon vel þekktar. Hér á síðunni er
mynd frá sýnignaratriði þar á bæ.
r
c
c/a
ON