Luxus - 01.12.1984, Blaðsíða 83
STEVEN SPIELBERG
Frh. aj bls. 81
litið svo á að Indy sé frábrugð-
inn t.d. James Bond, þvi meðan
Bond er óstöðvandi er hægt að
stöðva Indy. Það gerir hann trúverð-
ugri gagnvart áhorfendum og ég
held að þetta hafi verið framlag
Harrison Ford til persónunnar. Indi-
ana Jones tekur sjálfan sig ekki of
alvarlega. Þegar hann særist þá sýn-
ir hann það. Hann óttast snáka.
Hann er harður en sveigjanlegur. Og
það er nokkuð sem helst í báðum
myndunum.
Spielberg er áhorfandinn
Um framtíðarverkefni Steven
Spielbergs er fátt áreiðanlegt hægt
að fullyrða um á þessari stundu.
Aftur á móti er ýmislegt á pijónun-
um hjá honum. Eins og áður var
minnst á er verið að skrifa handritið
að E.T. II og samstarf við Michael
Jackson hefur verið til umræðu, en
þessir gulldrengir eru miklir vinir.
Þeir hafa m.a. rætt um að gera nýja
útgáfu af Peter Pan. f burðarliðnum
er mynd eftir bókinni Schindler’s
List sem fjallar um þýska iðjuhöld-
inn Otto Schindler og athafnir hans
í síðari heimsstyrjöldinni við að
bjarga þúsundum gyðinga undan
ógnarstjórn nasista. Og nýverið bár-
ust þær fréttir að Spielberg hefði
tryggt sér kvikmyndaréttinn á nýj-
ustu metsölubók Stephen King, The
Talisman.
Hvert þessara verkefna verður
íýrst til að birtast á hvíta tjaldinu er
erfitt að spá um, en eitt er víst að
Steven Spielberg á eftir að halda
áfram að veita gestum kvikmynda-
húsa hlutdeild í snilld sinni um
ókomin ár.
Grípum að lokum niður í það sem
hann hefur að segja um bíó og kvik-
myndir yfirleitt. Spielberg hefur
orðið:
.Pyrir mér er sú reynsla að sitja í
kvikmyndahúsi, horfa og hlusta á
bíómynd í félagsskap þúsunda
okunnugra mest heillandi athöfn
sem til er. Það er ekkert sem jafnast
a við það. Þú nærð þessari tilfinn-
>ngu aldrei heima í stofu þar sem þú
glápir á bíómynd í kassanum. Og ég
tel að áhorfendur viti það jafnvel og
kvikmyndagerðarmaðurinn. Það
kemur fyrr eða síðar að því að maður
uerður að komast út af heimilinu.
a sér ferskt loft! Setjast inn í bílinn!
eSSa í bílastæði og fara í bíó.
Kaupa sér poppkorn eða hvað annað
sem maður þarf, setjast niður í tvo
úma og vera hrífinn burt! í raun og
veru snúast kvikmyndimar um það.
a r eru Ijós og skuggi, en þær skapa
annan heim, aðra tilveru . . . á af-
mörkuðu svæði.“
Að allra síðustu skal vitnað til
orða Melissu Mathison um sam-
s arfsfélaga sinn. „Steven gerir kvik-
myndir sínar sitjandi í bíóinu fyrir
miðjum sal, étandi poppkom. Hann
er ahorfandinn.“
MJUkflR ijrfUR Að HQRÐAn
KÁpUR&MkAR
Góðir Mokka
jakkar og kápur standa alltaf fyrir sínu. Við
bjóðum gott úrval fallegra Mokka jakka á einkar
hagstæðu verði. Veidu þér fallegan Mokka og
láttu þér líða vel í vetur.
Austurstræti 10
sími: 27211