Luxus - 01.12.1984, Qupperneq 86
86 LUXUS FEBDALOG
Hvemig má verja vetrarfninu?
LUXUS kannar ýmsar leiðir
Sumarleyfi fólks, sem vinnur
fullt starf, er yfirleitt 24 til
28 dagar. - Virkir dagar vel
að merkja og laugardagar ekki taldir
með. - Raunverulegt leyfi er því um
fimm til sex vikur á ári. Mörgum
veitist erfitt að hafa ofan af fyrir sér
í svo löngu leyfi. Fyrstu þrjár til
fjórar vtkumar em kannski ágætar,
en svo fer athafnaþráin að segja til
sín. Og ef hvorki þarf að mála húsið
né stússa í garðinum em leiðindin
oft á tíðum skammt undan.
Það er allt of sjaldgæft að fólk
skipti sumarleyfi sínu í tvennt og
geymi nokkrar vtkur til vetrarins.
Sömuleiðis heyrir það til undan-
tekninga að atvinnurekendur bjóði
upp á slíkt fyrirkomulag af fyrra
bragði. í nágrannalöndum okkar
þykir það hins vegar bæði sjálfsagð-
ur hlutur og eðTilegur að taka sér
bæði sumar- og vetrarleyfi.
Þetta þýðir þó ekki, að allir lands-
menn hírist hér heima í frosti og
byljum frá hausti til vors með viðeig-
andi skammdegisþunglyndi, gikt og
flensum. Ferðaskrifstofumar bjóða
upp á spennandi ferðir út í hinn
stóra heim, þar sem hægt er að
þreyja þorrann og góuna með sól-
skinsbros á vör, hvort sem það er á
sandströnd eða í skíðabrekkum Mið-
Evrópulanda. Og vitaskuld em ferð-
imar ekki bundnar við strendur eða
TEXTI: ÁSGEIR TÓMASSON
skíðastaði, þó svo að skipulagðar
hópferðir séu flestar á slík mið.
Að Kanaríklúbbnum standa
Flugleiðir og ferðaskrifstof-
umar Útsýn, Úrval og Sam-
vinnuferðir-Landsýn. Aðrar ferða-
skrifstofur selja einnig Kanaríeyja-
ferðir með þotum Flugleiða, þótt þær
séu ekki í þeim klúbbi. Ferðimar
suður á bóginn hefjast með jólaferð-
inni 19. desember. Löngu er uppselt
í þá ferð og biðlistar langir. JFöstu
áskrifendumir fylltu þessa ferð fljót-
lega. Þeir, sem einu sinni hafa kom-
ist upp á lag með að eyða jólum og
áramótum á Kanaríeyjum, fara
þangað aftur og aftur," segir Helgi
Daníelsson hjá Samvinnuferðum.
Ferðir Kanaríklúbbsins standa
fram í apríl á næsta ári. Aðsókn
hingað til hefur verið góð í fyrstu
ferðimar í janúar og febrúar. Þá er
að sögn Sæmundar Guðvinssonar
fréttafulltrúa Flugleiða nokkuð
meira um það nú en áður, að fólk
hyggist dvelja sex vikur á Kanarí í
vetur í stað þriggja.
J>að er tiltölulega ódýrt að bæta á
þennan hátt við öðm tímabili," sagði
hann. „Fólk vill reyna að stytta svart-
asta skammdegið hér heima og það
verður sífellt algengara að þeir, sem
á annað borð ráða tíma sínum eða
geta valið um hvenær þeir taka frí
sitt, velji veturinn.“
Hægt er að komast til Kanaríeyja
á annan hátt en með Kanaríklúbbn-
um. Amarflug selur þangað ferðir. I
pakka flugfélagsins em innifaldir
tveir dagar í Amsterdam, í upphafi
og enda ferðar. Hægt er að fram-
lengja Amsterdamdvölina eins og
hver vill. Þá bjóða Flugleiðir upp á
Kanaríferðir með viðkomu í London.
Þá getur fólk staldrað þar við eins og
það lystir og síðan flogið til Kanarí-
eyja með spænska flugfélaginu
Iberia.
Þegar sólin á Kanarí leggur sig að loknum annasömum sólbaðsdegi
tekur kallinn í tunglinu við. En það er næstum eins og hann falli í
,,skuggann“ fyrir ljósadýrðinni á Playa del Ingle’s og í Puerto Rico,
því næturlífið er rétt að byrja.
Það byrjar í rólegheitum á kaffihúsi, færist svo yfir á næsta
veitingahús, þjóðlegt eða alþjóðlegt og endar í ærlegum snúningi á
góðu diskóteki. Skipulagðar næturklúbbaferðir og grísaveislur, eru
löngu orðnar heimsfrægar á Kanarí og hér heima, en menn fara í
spilavítið á eigin ábyrgð.
Það má með sanni segja að þegar sólin sest spretta allir aðrir á fætur
og einbeita sér að þeim hluta lífsins sem
stendur langt fram yfir sólsetur.
Verð frá: Leiguflug 3 vikur kr. 25.747,-
Áætlunarflug 1 vika kr. 20.633,-
Brottfarir: Leiguflug: 19. des., 9. jan., 30.
jan., 20. febr., 13. mars og
3. apríl.
Áætlunarflug: alla miðviku-
daga frá og með 31. október.
Innifalið: flug, gisting i 2ja manna
stúdíóíbúð, akstur til og frá
flugvelli á Kanarí og íslensk
fararstjórn.
J