Morgunblaðið - 18.09.2021, Síða 48

Morgunblaðið - 18.09.2021, Síða 48
Kómedíuleik- húsið sýnir brúðuleikinn Bakkabræður í Gaflaraleikhúsinu í dag, laugardag, og sunnudaginn 26. september kl. 13 báða daga. Sýningin var frumsýnd fyrir vestan í sumar en kemur nú í leið- ferð suður. Sýningunni er lýst sem bráðfjörugu brúðu- leikrit um hina einu sönnu bræður frá Bakka þá Gísla, Eirík og Helga. Leikari og þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem einnig er höfundur verksins ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir. Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen gítarleikari semur og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og brúður. Bakkabræður í Gaflaraleikhúsinu LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 261. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Fram hafnar í efsta sæti í úrvalsdeild kvenna í hand- knattleik, Olísdeildinni, ef marka spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna fyrir komandi keppnistímabil. Val er spáð öðru sætinu og ríkjandi Íslandsmeisturum KA/ Þórs því þriðja. „Ég held að þetta verði skemmtilegt mót og við væntum þess að vera í toppbaráttu,“ segir Stefán Arnarson, þjálfari Fram, m.a. í grein um deildina í blaðinu í dag. „Deildin er sterkari núna, flest liðin hafa bætt mikið við sig,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson þjálf- ari Vals. » 41 Margir telja deildina vera orðna enn sterkari en á síðasta tímabili ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Blóðgjafafélag Íslands átti 40 ára af- mæli í sumar. Á aðalfundi félagsins skömmu áður hætti Jón Svavarsson sem formaður eftir sjö ára setu. Hann er samt ekki hættur að gefa blóð, hefur gefið svonefnda heilgjöf 168 sinnum og hefur sett stefnuna á 175 skipti. „Ég má bara gefa blóð á um þriggja mánaða fresti og til sjö- tugs, ef heilsan heldur, en blóðgjöf er ekki aðeins lífgjöf heldur veldur hún ákveðinni endurnýjun og við- heldur þannig betri heilsu,“ segir hann. Jón er menntaður rafeindavirkja- meistari og einkaflugmaður, hefur komið víða við, jafnt í atvinnulífinu sem í félagsstörfum, og alltaf hefur myndavélin verið með í för. „Þegar ég var tíu ára fékk ég mína fyrstu myndavél, Kodak Instamatic 104, og miða ég fyrstu myndatökurnar við þann dag, þótt ég hafi byrjað að taka myndir á vél pabba löngu áður. Í myndasafninu frá 1966 til alda- móta eru á aðra milljón mynda og stöðugt bætist í bunkann, að minnsta kosti annað eins á stafrænu formi.“ Ljósmyndun var aðalstarf Jóns 1996 til 2013, en hann byrjaði að mynda í atvinnuskyni um 1980 og stofnaði fyrirtækið Motiv-Mynd 1982. „Ég hef myndað fyrir marga í 55 ár og er stoltur af því að hafa fengið mörg tækifæri til þess að skrásetja augnablik sem aldrei koma aftur, verið trúað fyrir að mynda viðburði sem enginn annar á myndir frá.“ Afmælisljóð á fésbókinni Máttur elsku og eilífðar engu má þar gleyma. Forsögu okkar fortíðar farsælt er að geyma. Undanfarin ríflega 20 ár hefur Jón samið ljóð og reglulega birt þau til afmælisbarna dagsins á fésbók- inni samanber ofanritað. „Ég hef föndrað við kveðskapinn frá barns- aldri, fiktaði við ljóðagerð þegar ég var í skóla en það voru bölvaðar ambögur og ég geymdi þær ekki.“ Hann segist einu sinni hafa sent ljóð í samkeppni en ekki haft erindi sem erfiði. Hins vegar hafi hann reglu- lega sent afmælisljóð ársins til vina og vandamanna og gert þeim hærra undir höfði á stórafmælum. Eins hafi hann verið fenginn til þess að semja afmælisljóð fyrir vini til að gefa þeirra vinum. „Fyrir nokkrum árum fylltist vinahópurinn minn á andlitsbókinni og ég sendi að með- altali tíu til fimmtán manns afmæl- iskveðju með þessum hætti dag- lega.“ Ljóðin koma til Jóns með ýmsum hætti. „Oft verður eitthvað til þegar ég hlusta á fréttir, sérstaklega ein- hverjir fyrripartar, og þá er eins gott að hafa penna og blað til taks því annars er hætta á að hugmynd- irnar hverfi og ekkert standi eftir.“ Jón hefur verið í ótal stjórnum, er ritari stjórnar Iðnaðarmannafélags- ins í Reykjavík, formaður lóða- félagsins þar sem hann býr og hús- félagsins. Hann var lengi í Frímúrarakórnum, hefur verið í kirkjukórum um árabil og er í kirkjukór Víðistaðakirkju. Hann hefur líka verið í hlutverki jóla- sveins við ýmis tækifæri í áratugi. „Ég var hjá móður minni í Svíþjóð um jólin í fyrra og var þá ekki í jóla- sveinabúningi á aðfangadag í fyrsta sinn í yfir 40 ár,“ segir hann. „Ég er stoltur af öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur, markmiðið hefur alltaf verið að skila einhverju góðu, að láta gott af mér leiða, og ég held að það hafi tekist ágætlega.“ Blóðgjöf endurnýjar og viðheldur betri heilsu - Jón Svavarsson ætlar að gefa blóð eins lengi og hann má Ljósmyndari Jón Svavarsson hefur myndað fyrir marga í 55 ár, þar á meðal ótalmargar danssýningar og -keppni í öllum aldursflokkum. Kertasníkir Jón hefur verið í hlut- verki jólasveins í áratugi. Ljósmynd/(C) MOTIV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.