Fréttablaðið - 15.01.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 15.01.2022, Síða 4
Útvarpsstjóri segir að Sam- herjamálið hafi reynst frétta- fólki stofnunarinnar erfitt. Helgi Seljan segir að Ríkisút- varpið sem og aðrir fjölmiðlar verði að draga lærdóm af því að svo fór sem fór. bth@frettabladid.is FJÖLMIÐLAR „Það segir sig sjálft að það eru ekki góðar fréttir fyrir okkur þegar reynslumiklir blaða- og fréttamenn hverfa frá okkur,“ segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, um hrinu uppsagna hjá starfsfólki RÚV. Margir burðarásar í hópi frétta- og dagskrárgerðarfólks hafa hætt störfum hjá RÚV undanfarið. Helgi Seljan, rannsóknarblaðamaður í Kveik, nú síðast í fyrradag. Viðbragð Samherja í kjölfar Namibíumálsins, að fara í áróðursherferð gegn Helga og RÚV, hafði neikvæð áhrif á frétta- menn RÚV, að sögn útvarpsstjóra. „Það er ljóst að þetta var nýtt fyrir okkur öllum, enginn sá fyrir hvers konar brjálæði skapaðist,“ segir Helgi, spurður hvort skortur á stuðningi innan RÚV eftir Nami- bíumál Samherja hafi haft áhrif á þá ákvörðun hans að segja skilið við Ríkisútvarpið. „Auðvitað hefði verið hægt að taka öðruvísi og betur á málum þegar árásir Samherja hófust. Það er hins vegar eitthvað sem ég held að allir hafi lært af,“ segir Helgi. Hann segist þó kveðja RÚV hvorki beiskur né bitur. „Ég vona að RÚV eins og allir aðrir fjölmiðlar standi betur í lappirnar ef eitthvað sambærilegt gerist á ný.“ Uppsagnirnar á RÚV tengjast fremur álagi og vinnslu stórra mála líkt og Samherjamálsins en vanda við mannauðsstjórnun, að mati Stefáns útvarpsstjóra. Sem dæmi henti það ekki öllum að ganga vaktir og vinna á kvöldin og um helgar. Í sumum tilfellum hafi fólk hætt störfum þar sem því bjóðist betri kjör annars staðar fyrir styttri vinnutíma og minna álag. „En ég dreg enga fjöður yfir að þau stóru mál sem okkar fólk hefur fjallað um að undanförnu hafa reynst starfsfólki erfið. Ekki síst fordæmalausar árásir á Helga Selj- an vegna umfjöllunar um málefni Samherja,“ segir Stefán. Spurður hvort líta megi svo á sem Samherji hafi unnið sigur með því að áhöfn Kveiks á RÚV sem starfaði að Namibíumálinu hefur nánast þurrkast út, svarar útvarpsstjóri að hann telji svo alls ekki vera. „Hvað Helga Seljan varðar sér- staklega þá er það sigur fyrir íslenska þjóð og blaðamennsku að þessi öf lugi blaðamaður haldi áfram sínum störfum.“ Hann segir að það muni taka tíma að þjálfa þá upp sem eigi að fylla skarð þeirra sem hafa hætt störfum, en margt öflugt og hæfi- leikaríkt fólk standi eftir. „Við vitum að það er mikið álag á fréttamenn, það mælist hátt í vinnustaðagreiningum hjá okkur og jafnvel meira en hjá öðrum fjöl- miðlum. Upplifun fólks af álagi hér er mikil,“ segir Stefán. Í Fréttablaðinu í dag auglýsir Ríkis útvarpið bæði eftir fréttastjóra og dagskrárstjóra Rásar 2. n Það er ljóst að þetta var nýtt fyrir okkur öllum. Helgi Seljan Hvað Helga Seljan varðar sérstaklega þá er það sigur fyrir íslenska þjóð og blaða- mennsku að þessi öflugi blaðamaður haldi áfram sínum störfum. Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri Enginn sá brjálæðið fyrir segir Helgi bth@frettabladid.is COVID-19 Dóra Guðrún Guðmunds- dóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá Landlæknisembættinu, segir að unnið sé að mótvægisaðgerðum til að verja geðheilsu barna vegna áhrifa Covid. Þrjú ráðuneyti taki þátt í þeirri vinnu í samstarfi við Embætti landlæknis. Fréttablaðið hefur fjallað um að neikvæð áhrif af Covid-faraldrinum hafi mælst meiri meðal framhalds- skólanema en grunnskólanema. Ein líkleg ástæða er, samkvæmt upplýs- ingum frá Landlækni, að meiri tak- markanir voru í framhaldsskólum en grunnskólum þegar rannsókn um líðan barna og ungmenna var unnin hérlendis. „Við fylgjumst grannt með óbein- um áhrifum Covid á lýðheilsu," segir Dóra Guðrún. Settur hefur verið á laggirnar sérstakur hópur til að fylgjast með áhrifum Covid á geðheilsu. Land- læknisembættið hefur skilað af sér einni áfangaskýrslu og er unnið að Aðgerðir til að bæta geðheilsu í undirbúningi Dóra Guðrún Guðmundsdóttir. þeirri næstu. Í skýrslunni segir að flestum börnum á grunnskólaaldri á Íslandi hafi farnast vel. „Faraldurinn virðist hins vegar hafa haft afgerandi neikvæð áhrif á líðan framhaldsskólanema, sem voru nánast alfarið í fjarnámi frá vori til ársloka 2020," segir í skýrslunni. „Það eru einnig vísbendingar um að þau sem höfðu það erfitt fyrir Covid hafi farið verst út úr faraldr- inum. Það er því mikilvægt að huga sérstaklega að þeim hópi," segir Dóra Guðrún. n Helgi Seljan segir að RÚV hefði getað tekið betur á málum þegar árásir Samherja hófust. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI 100% RAFMÖGNUÐ ÍTÖLSK HÖNNUN FIAT 500e ER FYRSTI FALLEGI RAFMAGNSSMÁBÍLLINN. SJÓN ER SÖGU RÍKARI UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • FIAT.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 TÍMALAUS ÍTÖLSK HÖNNUN MEÐ ALLT AÐ 460 KM DRÆGNI. lovisa@frettabladid.is SAMFÉLAG Ríkisstjórn Íslands sam- þykkti á fundi sínum í gær að taka á móti 35 til 70 manns frá Afganistan, til viðbótar við þann hóp sem tekið var á móti í haust, vegna ástandsins sem ríkir í landinu. Flóttamannanefnd hefur verið falið að útfæra tillögu ríkisstjórnar- innar, en horft verður sérstaklega til einstæðra kvenna og mæðra í við- kvæmri stöðu sem hafa náin tengsl við Ísland og barna þeirra. Alls komu 78 einstaklingar komið hingað til lands í haust frá Afgan- istan. n Taka á móti enn fleira flótta fólki Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra, að fundi loknum í gær. birnadrofn@frettabladid.is REYK JAVÍK Björgunarsveitir tóku þátt í útköllum Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins (SHS) á gamlárs- kvöld. Ásdís Gíslason, upplýsinga- fulltrúi SHS, segir það ekki vanalegt. Það hafi þó gerst þegar gróðureldar geisuðu í Heiðmörk í fyrra. Síðastliðið gamlárskvöld voru 220 útköll hjá SHS sem er mun meira en vanalega. Kalla þurfti út fólk á bak- vakt og var allt starfsfólk á annarri vakt einnig kallað út til að sinna útköllum. „Á svipuðum tíma hafði Landsbjörg samband við okkur og bauð fram aðstoð sína, sem við þáðum og þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra starf,“ segir Ásdís. Hún segir útköllin hafa verið mis- alvarleg, þau hafi byrjað um klukkan hálf átta og staðið fram eftir nóttu. „En aftur á móti var rólegt þegar Áramótaskaupið var í gangi, strax að því loknu jókst þunginn í útköllum á ný,“ segir Ásdís. n Sinntu útköllum slökkviliðsins 220 útköll voru á gamlárskvöld og á nýársnótt. 4 Fréttir 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.