Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 26
Myndin er
tekin rétt fyrir
hreystikeppn-
ina.
MYND/AÐSEND
Hulda fór í þyrlu
á ströndina.
Með henni á
myndinni eru
þær Angel frá
Kanada og
Mayra frá Arg-
entínu.
MYND/AÐSEND
Hulda klæddist ýmsum glæsilegum
klæðnaði í keppninni. MYND/AÐSEND
banana, eggjum og hnetum. Allt
annað áttum við bara að finna á
eyjunni. Alger „Survivor“-stemn-
ing,“ segir Hulda og hlær.
Æfði þar til hana svimaði
Hún segir annað verkefni sem
þær fengu í keppninni hafa verið
hreystikeppni þar sem þær áttu að
gera æfingar samfellt á ströndinni
í 30 stiga hita án þess að fá hlé eða
næringu.
„Keppnin kallast Last Woman
Standing og snýst um það að sú
sem stendur eftir síðust vinnur. Þau
hentu smá vatni í okkur (í rauninni
bara nokkrum dropum upp í okkur
á meðan við vorum að), en ekkert
annað en það. Ég held að ég hafi
verið í um fjóra og hálfan tíma en sú
sem var lengst var í fimm og hálfan.
Ég vildi alls ekki hætta, þvertók
fyrir það og grátbað í orðsins fyllstu
merkingu um að fá að hamast þarna
áfram, en það voru eiginlega fram-
leiðendur sem létu mig hætta. Enda
var það kannski skynsamlegt því
mig var farið að svima,“ segir Hulda.
Þá segir hún að í annað sinn hafi
þeim verið skutlað á ströndina í
þyrlum þar sem þær fóru í sjóinn,
fengu dóminískan hádegisverð og
fóru í reiðtúr eftir strandlengjunni.
„Eitt af því fyrsta sem við gerðum
var greindarvísitöluprófið. Við feng-
um 20 eða 30 mínútur til að svara
prófinu. Allar spurningarnar voru
sjónrænar því við höfum ólík móð-
urmál og því er það sanngjarnt.“
Hulda segir að annað sem henni
hafi líkað vel sé að keppnin sé mjög
ólík öðrum keppnum sem hún hafi
verið í, eins og til dæmis Miss Uni-
verse Iceland.
„Það er enginn klíkuskapur og
einkunnagjöf er byggð á stigagjöf.
Það eru engir dómarar og þó að
við komum fram í þjóðbúningum,
sundfötum og síðkjólum, miðast
keppnin ekki við það. Á hverjum
degi vorum við búnar að vinna
okkur inn ákveðinn stigafjölda í
ólíkum áskorunum,“ segir Hulda en
vegna þess að keppnin er líka raun-
veruleikaþáttur þá varð það að vera
skýrt hvernig stigin voru gefin.
Hún segir að til greina komi að
sýna keppnina á Netflix og að það
sé mjög spennandi.
„Það er alveg geggjað. Við vorum
alltaf í viðtölum og þetta hefur
opnað margar dyr nú þegar. Við
förum líklega á „prómó túr“ en ég
fer í það minnsta aftur til Dómin-
íska lýðveldisins þegar ég þarf að
krýna þar í desember.“
Góðgerðarstarfið stór þáttur
Nokkuð stór hluti af keppninni er
góðgerðarstarfsemi þar sem kepp-
endur safna fyrir eitthvert ákveðið
verkefni. Í ár var lögð áhersla á að
byggja upp skóla og undirbúa skóla-
starf í Yamasa og öðrum fátækum
hverfum í Dóminíska lýðveldinu.
„Verkefnið gefur þessum börnum
kost á að sækja sér menntun sem
þau hafa annars ekki aðgang að.
Eins og er þurfa börnin að ferðast
langa og óörugga leið til að komast
í skólann og langflest þeirra búa við
mjög mikla fátækt svo menntunin
situr á hakanum,“ segir Hulda og að
góðgerðarþáttur keppninnar hafi í
raun verið það sem fékk hana til að
slá til og taka þátt að lokum.
„Góðgerðarstarfið nær út fyrir
þátttöku í Miss Multiverse en verk-
efnið snerti okkur allar og hreyfði
við okkur. Við sem komumst í topp
tíu erum f lestar staðráðnar í að
halda áfram og ég er þegar farin að
skipuleggja næstu ferð til Dómin-
íska lýðveldisins. Við tíu komum
frá misvelstæðum löndum; Íslandi,
Noregi, Nígeríu, Serbíu, Filipps-
eyjum, Kanada, Argentínu, Ung-
verjalandi, Belgíu og Rúmeníu. Ég
á sjálf menntun mikið að þakka og
hef fengið mýmörg tækifæri í lífinu
vegna hennar. Ég veit að þar spila
margir þættir inn í, svo sem hvar og
hvenær ég er fædd sem og ómældur
stuðningur foreldra minna en ég
trúi einlæglega að menntun opni
fjölmarga möguleika og sé á vissan
hátt lykill að árangri og tækifærum
framtíðarinnar,“ segir Hulda einlæg.
Hægt að styrkja góðgerðar-
verkefnið með því að leggja inn á
bankabók á nafni Huldu sem var
stofnuð fyrir verkefnið. Kennitala:
2901942299 og reikningsnúmer:
0123-15-044830.
„Þannig er hægt að gefa þessum
börnum einhverja dýrmætustu gjöf
sem völ er á: menntun og betri fram-
tíð,“ segir Hulda. ■
Gætið þess að börn nái ekki í vöruna. www.msb.is
illjant
þvottaefni fyrir
26 Helgin 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ