Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 64
Það er vert að hafa í
huga að ef þú ert að
kaupa eitthvað sem lítur
út fyrir að vera glænýtt
og ógallað, þá er yfirleitt
ástæða fyrir því að verð-
ið er svona lágt.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
„Outlet“ er áhrifaríkt orð
sem kveikir upp í frum-
stæðu veiði- og söfnunareðli
mannsins og bendir til þess
að á bak við prósentutöluna
sé að finna ógrynnin öll af
fínasta varningi á ótrúlegum
afslætti.
Outlet-verslanir bjóða neytendum
alla jafna upp á lægra verð en
gengur og gerist í hefðbundnum
verslunum og upprunalega voru
outlet-verslanir hógvær vöru-
hús þar sem seldar voru gallaðar
vörur á lágu verði. Síðan þá hafa
outlet-verslanir orðið að neytenda-
vænum búðum sem slökkva þorsta
viðskiptavina í merkjavörur á hag-
stæðara verði. Erlendis má jafnvel
finna heilu outlet-verslunarmið-
stöðvarnar með fjöldanum öllum
af afsláttarverslunum.
Ekki sömu vörurnar
Samkvæmt SmartMoney eru 82%
allra vara í outlet-verslunarmið-
stöðvum framleiddar sérstaklega
fyrir outlet-búðirnar. Þetta þýðir
að vörurnar eru sannarlega nýjar,
en ekki endilega í sama gæða-
flokki og upprunalegu vörurnar
sem finna má í hefðbundnum
verslunum. Í raun má segja að
f lestar þessara vara séu fram-
leiddar úr ódýrari efnum og án
sérstakra smáatriða, sem gera
merkjavöru yfirleitt dýrari en
aðrar vörur.
Fyrir marga er þetta ekki vanda-
mál. En það er vert að hafa í huga
að ef þú ert að kaupa eitthvað sem
lítur út fyrir að vera glænýtt og
ógallað, þá er yfirleitt ástæða fyrir
því að verðið er svona lágt. Til að
mynda selur Gucci outlet-verslun
ekta Gucci vörur, sem eru fram-
leiddar af merkinu, en sérstaklega
fyrir outlet-verslunina. Þú finnur
því ekki endilega nákvæmlega
sömu vörur í venjulegri verslun
og outlet-verslun. Í sumum til-
fellum er þó um að ræða afganga
Ekki kaupa köttinn í tilboðssekknum
Það jafnast
fátt á við það
að finna flíkina
sem þig hefur
langað í lengi
á útsölurekka
á niðursettu
verði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Verslunareigendur reyna að sjálfsögðu að stilla út dýrustu vörunum til þess
að selja okkur það sem þeir græða mest á að selja. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
frá liðnum árstíðum og gallaðar
eða skemmdar flíkur, sem seldust
einfaldlega ekki í hefðbundnu
búðunum.
Vertu á varðbergi
Það er líka mikilvægt að vera á
verði gagnvart afsláttarloforðum.
Þrátt fyrir að skiltið segi 65%
afsláttur af upprunalegu verði,
þá er líklegt að varan hafi aldrei
verið seld á upprunalega verðinu.
En það myndir þú ekki vita nema
ef þú hefðir heimsótt hefðbundnu
verslunina, þar sem varan á að
hafa verið seld á upprunalega
verðinu. Einnig má nýta sér
snjallsímaforrit eins og RedLaser
og ShopSavvy til að gera verð-
samanburð. Það er því ekki hægt
að ganga út frá því að allt sem þú
finnur í outlet-verslun sé endilega
á jafngóðu verði og það virðist
vera í fyrstu.
Hornkerlingar allar hlýðið á
Það má þó vel njóta þess að versla
í outlet-verslunum og verslana-
miðstöðvum, enda hljómar fátt
betur í eyrum en fimmtíu pró-
senta afsláttur. Þegar þú gengur
inn í outlet-verslun er líklegt að
við þér blasi fínasta útstilling á
nýjum og lokkandi vörum líkt og
í hefðbundinni búð. En lát eigi
blekkjast því hér finnur þú ekki
besta verðið. Mesti afslátturinn
er yfirleitt gefinn af vörum sem
komnar eru á útsölurekkana úti í
hornum verslunarinnar. Eitt sinn
sagði fræg kona að engin horn-
kerling vildi hún vera, en í outlet-
verslunum eru hornin einfaldlega
safaríkustu staðirnir.
Annað gott ráð er að versla
utan árstíðarinnar. Vantar þig
til dæmis vetrarúlpu? Þá er best
að kaupa hana að vori til. Og eru
sundfötin að gefa sig? Þá skaltu
bíða þangað til í haust. Verslanir
vita að neytendur eru fiska eftir
góðum kaupum, en þær vilja
einnig hámarka gróðann. Því er
varningur frá öðrum árstíðum
yfirleitt ekki það fyrsta sem þú
sérð í verslunum. n
Það er því ekki
hægt að ganga út
frá því að allt sem þú
finnur í outlet-verslun sé
endilega á jafngóðu verði
og það virðist vera í
fyrstu.
20% afsláttur af
skíðapökkum
#A
LL
IR
Ú
TA
Ð
LE
IK
A
Selásbraut 98, 110 Reykjavík, sími 419 7300
6 kynningarblað 15. janúar 2022 LAUGARDAGURÚTSÖLUR OG OUTLET