Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
List Klukkuturn í háskólanum.
– Hvað tekur svona spurningalota
langan tíma?
Arna: „Það fer eftir faginu. Þú
dregur þrjár spurningar, og hefur
kannski fimmtán til tuttugu mínútur
til að undirbúa þig, svo kemurðu
fram fyrir kennarann, byrjar á
fyrstu spurningunni og útskýrir
svarið. Kennarinn hlustar og þeir
geta spurt nánar um efnið ef ein-
hverjar upplýsingar vantar.“
Auður: „Við förum í munnleg próf
en heima eru þetta mikið lotur. Við
förum reglulega í kaflapróf og svo í
munnlegt lokapróf í lok áfangans þar
sem námsefnið getur verið frá allt að
þremur önnum. Þannig að maður
man mikið úr efninu frá fyrri árum
og það er mikill kostur.“
Skóli lífsins
– Styrkir þetta sjálfstraustið?
Eva Mey: „Klárlega. Maður
þroskast mikið við að koma hingað
og taka þetta nám í útlöndum. Þetta
er ekki aðeins skóli, læknaskóli,
heldur líka skóli lífsins, að vera hér
sjálfstæður, eignast nýja vini og
læra nýtt tungumál í nýju umhverfi.“
– Þú ert nýkominn, Bjarni Fannar
[Kjartansson]. Hvar var inntöku-
prófið?
„Það fór fram á netinu. Ég tók það
heima.“
– Hvernig undirbjóstu þig?
„Ég var að undirbúa mig fyrir ís-
lenska prófið [hjá læknadeild Há-
skóla Íslands]. Það hélst í hendur.“
– Þú hefur tekið bæði prófin?
„Já.“
Hver er munurinn á þeim?
„Það er prófað í líffræði og efna-
fræði í slóvakíska prófinu og farið
dýpra í efnið en í íslenska prófinu
eru mörg fög undir.“
I forystu Ján Danko, borgarstjóri í Martin, ræddi við Morgunblaðið.
– En þú, Edda Þórunn? Hvað
sérðu fyrir þér að gera eftir út-
skrift?
„Ég vildi snemma verða læknir og
hugsaði sem svo að ef ég gæti ekki
orðið læknir þá vildi ég verða ljós-
móðir. Þetta helst svolítið í hendur
en mig langaði alltaf mest að verða
fæðingar- og kvensjúkdómalæknir.“
– Hvar sjáið þið fyrir ykkur að
starfa í framtíðinni?
Alexandra: „Ég sé ekki fyrir mér
að starfa á Íslandi. Ég er búin að
skoða nokkur lönd. Mamma bestu
vinkonu minnar er í Sviss. Og hún
sagði frábært að vera þar. Þannig að
ég er að skoða þann möguleika. Svo
er það England en mig langar að
komast aðeins frá Skandinavíu og
upplifa meira í gegnum starfið.“
Eva Mey: „Ég er opin fyrir öllu,
en fjölskylda mín er búsett í Noregi
og bróðir minn Victor er að vinna
sem læknir á Íslandi svo það er aldr-
ei að vita nema við systkinin sam-
einum krafta okkar þar!“
Auður: „Ég hugsa að ég muni
enda á Íslandi. Það er allavega
draumurinn. En ég hugsa að ég sér-
hæfi mig í Noregi eða Svíþjóð.“
Ósanngjarnar skerðingar
Alexandra: „Mig langar til að nota
tækifærið og gagnrýna stefnu LÍN.
Við megum nefnilega ekki vinna eins
mikið og við viljum á sumrin. Við
vinnum oft næturvaktir og um leið
og launin ná vissu hámarki, 1,2-1,3
milljónum, þá skerðist lánið, sem ég
tel afar ósanngjarnt. Við höldum
enda til dæmis áfram að greiða
húsaleigu yfir sumarið. Margir af-
þakka því vaktir vegna þess að það
skerðir lánið en samtímis vantar
alltaf starfsfólk á spítölunum.“
Í Martin Erika Halasová og Runólfur Oddsson við skrifstofu ræðismanns.
Ján Danko, borgarstjóri Martin, tók á móti blaðamanni og
öðrum gestum frá Íslandi á skrifstofu sinni.
Danko er menntaður læknir en hann var áður deildar-
forseti Jessenius-læknaskólans í Martin.
Danko svaraði spurningum á slóvakísku og túlkaði Erika
Halašová, ræðismaður Íslands í Slóvakíu, með aðsetur í
Martin, svörin yfir á ensku. Eftir stutta kynningu berst talið
að læknadeild Martin-háskóla sem Danko segir hafa verið
stofnaða árið 1963 sem útibú frá Comenius-háskóla í Brati-
slava, sem var stofnaður árið 1919, og 1969 varð lækna-
deildin í Martin sjálfstæð.
Læknadeildin í Martin hóf að taka við erlendum nem-
endum árið 1991 og voru þeir fáir í fyrstu.
Um aldamótin var námið fyrir erlenda læknanema endur-
skipulagt og var kynning á náminu í Evrópu efld. Voru
Norðmenn fyrstu nemendurnir í þeim hópi.
Danko segir erlendum nemendum hafa fjölgað eftir því
sem gæði námsins spurðust út en ætíð hafi verið lögð
áhersla á að kenna í fámennum hópum og ná vel til hvers
einasta læknanema. Um 600 erlendir nemar eru í lækna-
náminu sem tekur sex ár.
Læra slóvakísku fyrstu tvö árin
Námið er á ensku og fyrstu tvö árin læra íslensku nem-
endurnir slóvakísku til að geta hafið verklega þáttinn á
sjúkrahúsi á þriðja ári. Um 90% af þeim sem ná inntökupróf-
inu ljúka náminu. Deildin útskrifar nú að jafnaði 40-50 er-
lenda nemendur á ári og um hundrað heimamenn. Boðið er
sérnám en nemendurnir þurfa að starfa í vissan tíma í Sló-
vakíu.
Vorið 2012 var ákveðið að bjóða íslenskum nemendum í
læknanámið. Tólf þreyttu inntökuprófið í ágúst 2012 og
náðu níu prófinu og hófu nám þá um haustið.
Danko segir að á þessum tíma hafi læknadeildin í Martin
verið álitin sú besta í Slóvakíu og hafi hún haldið því orð-
spori síðan. Deildin njóti virðingar um alla Evrópu og víðar
um heim, þ.m.t. í Bandaríkjunum, en árið 2004 hafi námið
verið samræmt læknanámi í álfunni með tilskipun frá Evr-
ópusambandinu.
Danko segir íslensku nemana hafa staðið sig vel en ís-
lenska menntakerfið sé greinilega gott.
Árið kostar tæplega 11 þúsund evrur
Læknanámið kostar erlenda nemendur um 10.900 evrur á
ári og helst árgjaldið óbreytt, þótt það sé hækkað á náms-
tímanum. Um fjórðungur þeirra sem þreyta inntökuprófið
kemst í deildina, þar af tíundi hver heimamaður, en að jafn-
aði þreyta það 450 á ári.
Spurður hvort til standi að fjölga íslenskum læknanemum
enn frekar segir Danko skólann ekki geta bætt við nemum
að sinni en að það verði skoðað síðar.
Fram undan sé uppbygging nýs og fullkomins sjúkrahúss
í Martin en það geti skapað tækifæri. Hópurinn kveður þá
og þakkar góð kynni. Við göngum næst til fundar við And-
reu Calkovská, lækni og prófessor og deildarforseta Jesse-
nius-læknaskólans frá árinu 2019. Hún útskrifaðist sem
læknir frá Martin árið 1990 og starfaði meðal annars á Kar-
olinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð. Henni til fulltingis er Janík
Martin, varadeildarforseti erlendra nema og dósent, rétt-
armeinafræðingur og læknir.
Spurð um sérstöðu læknadeildarinnar bentu þau meðal
annars á þá áherslu skólans að kenna í fámennum hópum.
Þá muni nýtt sjúkrahús styrkja Martin í sessi sem miðstöð
læknarannsókna í Slóvakíu.
Við hittum loks dr. Katarinu Murceková, yfirmann skrif-
stofu fyrir erlenda stúdenta, en hún kennir nemendum jafn-
framt slóvakísku. Hún hrósar íslensku læknanemunum sem
séu iðnir og vel búnir undir námið. Margt sé líkt með hug-
arfari íslenskra og slóvakískra læknanema. Það auðveldi Ís-
lendingunum að læra slóvakísku að eignast vini meðal
heimamanna.
Í fremstu röð í Slóvakíu Fjöldi erlendra nema við Jessenius-lækna-
skólann í Martin
800
600
400
200
0
'00/'01 '03/'04 '06/'07 '09/'10 '12/'13 '15/'16 '18/'19 '21/'22
52
76
81 101 102
141
156 179 1778
4 26 22 12Úskrifaðir íslenskir nemendur:*
Skólaárin 2000/2001 til 2021/2022
Íslenskir læknanemar
Aðrir erlendir læknanemar
*Þá hafa um
20 Íslendingar
lokið læknanámi í
Danmörku sem hófu
námið í Martin
Dr. Andrea
Calkovská
Janík
Martin
Katarina
Murceková