Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 75

Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 75
MENNING 75 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ @CliffordMovie CliffordMovie.com #CliffordMovie ÞVÍ MEIRA SEM ÞÚ ELSKAR HANN ÞVÍ STÆRRI VERÐUR HANN. KEMUR Í BÍÓ MEÐ ÍSLENSKU TALI 10. DESEMBER 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali SÝNDMEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI JÓLAMYND S öngvamyndir eru ekki eins og aðrar kvikmyndir þar sem í söngvamyndum er ekki verið að vinna með söguframvindu heldur paranir eða hliðstæður. Það sem er átt við er að kvikmyndin er ekki skrifuð eða tek- in upp þannig að hún fylgi beinu orsakasamhengi. Í söngvamyndinni er formgerðin sú að við höfum tvö- faldan frásagnarfókus. Áhorfandinn skoðar tvö atriði til jafns en ekki eitt á eftir öðru. Tökutækninni er ætlað að mynda paranir með því að sýna þessar andstæður hlið við hlið að gera sömu hlutina eða í sama rým- inu sem neyðir áhorfandann til að bera þessar andstæðu persónur, konu og karl, saman. Markmiðið er að færa þessar andstæðu persónur hvora nær annarri og erkilausnin er síðan hjónaband milli persónanna tveggja. Dæmi um þetta má t.a.m. finna í söngvamyndinni The Sound of Music í leikstjórn Roberts Wise (1965), þar eru María (Julie Andrews) og Kapteinn Von Trapp (Christopher Plummer) andstæð- urnar sem teflt er saman í byrjun en færast svo nær hvort öðru í hegðun og ná með hjónabandi fullkomnu jafnvægi. Þessari hefðbundnu formgerð söngvamynda, þar sem áhersla er lögð á hliðstæður en ekki sögu- framvindu, er teflt fram í nýju mynd Leos Carax, Annette. Fyrst kynnast áhorfendur aðalpersónunum tveim- ur, andstæðum myndarinnar, sinni í hvoru lagi. Henry McHenry (Adam Driver) er sýndur sem skapmikill, dónalegur og narsissískur karl- maður á meðan Ann Defrasnoux (Marion Cotillard) birtist sem ljúf, falleg og góð kona. Andstæðurnar eru ekki einungis sýndar í gegnum persónuleikaeinkenni eða hegðun heldur líka störf þeirra. Henry er uppistandari sem leyfir sér að segja allt hálfnakinn í grænum slopp en Ann starfar sem óperusöngvari og syngur fyrir hástéttarfólk klædd hvítum kjól sem hylur hana frá toppi til táar. Áhorfendur sjá til skiptis atriði úr ólíkum sýningum þeirra og bera þannig andstæðurnar saman. Hins vegar er ferðalagið þar sem þessar tvær ólíku persónur mætast á miðri leið og sameinast í hjónabandi aðeins lítill en langdreg- inn hluti myndarinnar en ekki endir hennar eins og tíðkaðist í söngva- myndum á gullöld Hollywood. Í staðinn fer Carax í aðra átt og má segja að hjónabandið merki upphaf endaloka þeirra. Í söng og dansi í söngvamynda- greininni eiga persónur að geta tjáð sínar innstu þrár og tilfinningar án þess að skammast sín fyrir þær, því söngurinn og dansinn á sér stað í þykjustuleik eða einhverri fantasíu. Þannig geta þau tjáð ást sína eins og sjá má í The Sound of Music þegar Von Trap og María dansa sinn fyrsta dans í boðinu. Það er í því at- riði sem þau átta sig á tilfinningum hvors til annars. Í Annette gildir hið sama, þ.e.a.s. hinar innstu þrár og tilfinningar fá hljómgrunn sinn í söng og dansi en þær eru ekki endi- lega fallegar heldur innihalda eitt- hvað myrkt. Út frá lýsingum þeirra í lögunum um ást sína hvors til ann- ars mætti draga þá ályktun að ástin sé þeim þungbær eins og eitthvað sem er kvalafullt: „Love hurts.“ Annette er þannig ólík hinum klass- ísku Hollywood-söngvamyndum þrátt fyrir að formgerðin sé sú sama. Myndin er mun myrkari og tekst á við erfið málefni eins og flækjur milli ástar og metnaðar en allt virðist fara á niðurleið þegar frami Ann verður mun meiri en hjá Henry. Það er þó ekki nýtt af nál- inni enda takast allar myndirnar undir heitinu „A Star Is Born“, eða Stjarna er fædd, á við það söguefni en þar endar karlkyns aðalpersónan alltaf á því að drepa sig af því hann getur ekki horft á konu sína verða sigursælli en hann. Carax gengur skrefinu lengra en þær myndir, en lesendur sem ekki vilja vita hvernig ættu að sleppa því að lesa næstu línu. Í staðinn fyrir að láta aðalkarl- persónuna drepa sig þá drepur hann konuna sína. Eitt af einkennum söngvamynd- arinnar er flutningur milli raunveru- leikans og hins ímyndaða eða fant- asíunnar. Fyrsta atriðið í kvik- myndinni sýnir þennan flutning á skemmtilegan máta og ber merki þess hversu vel Carax þekkir söngvamyndina sem kvikmynda- grein. Myndin hefst í hljóðveri þar sem sést í leikstjórann, Carax, tæknimennina og tónlistarfólkið á bak við myndina, þ. á m. Ron Mael og Russell Mael en þeir sömdu handritið og tónlistina fyrir mynd- ina. Tónlistarmennirnir byrja að syngja opnunarlagið sem heitir „So May We Start“ og ganga síðan út úr hljóðverinu á götuna. Með því að ávarpa áhorfandann á þennan máta varpa þeir ljósi á gervileika mynd- arinnar. Aðalleikarar myndarinnar slást í hópinn og þegar laginu lýkur setur Adam Driver á sig svarta hár- kollu og mótorhjólahjálm og Marion Cotillard sest á mótorhjólið, nú eru þau komin í karakter, orðin Henry og Ann. Þetta er ekki fyrsta og eina skipt- ið sem Carax leyfir áhorfandanum að finna fyrir gervileikanum. Einnig mætti nefna þá töfrandi bakvörpun þar sem myndir renna saman á milli atriða á skjánum á listrænan máta, eða ófríðu brúðuna sem leikur Ann- ette, dóttur þeirra. Aðalgagnrýni á söngvamyndir hefur beinst að tengslum þeirra við hið óraunverulega eða ímyndaða og það hlutverk sem tónlist leikur þar. Ofuráhersla söngvamynda á paranir og tónlist í stað söguframvindu og tengslin við hið ímyndaða varð henni að falli eftir gullöld Hollywood en svo virðist sem Carax sé óhræddur við hið ímyndaða og gervileikann. Eflaust eiga margir áhorfendur eftir að hneykslast á hinum síendurteknu tilraunum Carax til þess að minna áhorfendur á að um sé að ræða kvik- mynd en ekki raunheim. Markhópur myndarinnar er þar af leiðandi tak- markaður en vafalítið eiga margir unnendur söngvamynda eftir að hylla Carax fyrir hugrekki sitt, eða heimsku, að gera söngvamynd eftir greinarhefðinni. Allt í plati Myrk „Myndin er mun myrkari og tekst á við erfið málefni eins og flækjur milli ástar og metnaðar en allt virðist fara á niðurleið þegar frami Ann verður mun meiri en hjá Henry, “ segir um kvikmyndina Annette með Adam Driver og Marion Cotillard í hlutverkunum sem Henry og Ann. Bíó Paradís Annette bbbnn Leikstjórn: Leos Carax. Handrit: Ron Mael, Russell Mael. Aðalleikarar: Adam Driver, Marion Cotillard og Simon Hel- berg. Frakkland, 2021. 140 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Jólatónleikar kórs Fella- og Hóla- kirkju verða haldnir í kvöld, fimmtudaginn 16. desember, kl. 20. Efnisskráin verður fjölbreytt en meðal annars verða flutt sívinsæl jólalög á borð við Dansaðu vindur og Hin fyrstu jól. Einsöngvarar úr röðum kórsins eru að þessu sinni: Kristín R. Sig- urðardóttir, Garðar Eggertsson, Inga J. Backman, Hulda Jónsdóttir og Bjarki Þór Bjarnason. Kórnum stýrir Arnhildur Valgarðsdóttir organisti. Ekki er krafist hraðprófa þar sem kirkjunni verður skipt upp í sóttvarnarhólf. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Kirkjan Ljúfir tónar munu óma um Fella- og Hólakirkju á tónleikunum í kvöld. Jólatónleikar kórs Fella- og Hólakirkju Unnendur skrifa glæpasagnahöf- undarins Ragn- ars Jónassonar geta á laugardag milli kl. 12 og 14 fengið smásögu eftir hann að gjöf hjá forlagi Ragn- ars, Veröld, á Víðimel 38 í Reykjavík. Smá- sagan Jólanótt er prentuð í 100 tölusettum og árituðum eintökum og verður gefin þennan eina dag. Þar gildir reglan að fyrstir koma fyrstir fá. Í smásögunni snýr lögreglumað- urinn Ari Þór Arason aftur í stutta stund en hann er aðalpersónan í Siglufjarðarseríu Ragnars. Þess má geta að þýsk þýðing Hvítadauða eftir Ragnar er núna fimmtu vikuna í röð á meðal sölu- hæstu bóka í Þýskalandi. Gefa 100 eintök af jólasögu Ragnars Ragnar Jónasson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.