Strandapósturinn - 01.06.2010, Qupperneq 81
79
skólahússins, sem byggt var 1946–48, og eru þar víst nú. Þessi tjöld
voru notuð, meira eða minna, við allar Skugga-Sveins uppfærslurnar
þrjár.
Leiktjöld sem notuð voru við fyrstu uppfærsluna 1925 voru að
hluta til fengin að láni frá Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur
(Iðnó). Þau reyndust of stór og var sagað neðan af flekunum.
Síðan urðu tjöldin innlyksa og var aldrei skilað. Þorkell Hjaltason
sagði mér þetta fullum fetum. Alllöngu seinna bar ég málið undir
Finn Magnússon en hann þvertók fyrir að nokkur tjöld hefðu
komið frá Iðnó, það hefði ekki við nein rök að styðjast. Báðir voru
þetta hinir mestu heiðursmenn og nákunnugir málavöxtum.
Þetta hlýtur því að skýrast með því, að Þorkell tali um fyrstu
sýninguna (1925) sem hann tók þátt í sjálfur, en Finnur eigi við
þá næstu (1931).
Tryggvi Magnússon kom heim frá námi 1923, eins og fyrr segir.
Þó að ekkert sé um það vitað, hefur það trúlega verið hann sem
útvegaði leiktjöldin frá Iðnó. Þá hafi hann séð hvað vantaði og
teiknað það og málað sjálfur: Tvö stór baktjöld, sem náð hafa um
þvera senuna, Eyjafjallajökul og Grasafjallið. Og hið fræga fortjald.
Þau munu öll vera á skólaloftinu. (Sjá Strandapóstinn, 33. árg., bls.
49.) Önnur tjöld nefnd í sambandi við Iðnó voru smærri, t.d. var
eitt sem átti að sýna helli Skugga-Sveins. Öðrum (smábleðlum)
hef ég gleymt en þau voru fleiri en eitt og fleiri en tvö. Mig minnir
að enginn botnaði almennilega í þeim 1945 og voru þau a.m.k.
ekki notuð við sýninguna þá.
Vökutjöldin. Um þau er getið í kaflanum um Málfundafélagið
Vöku.
Stöðu Ljósameistara þurfti ekki að auglýsa því að ljósabún-
aður var aldrei annar en tvær eða þrjár perur öðrum hvorum
megin við 40 vött í sínum föstu ljósstæðum.
Leikmunir
Atgeir Skugga-Sveins var lengi til. Hann var mikið vopn og
mátti heita húsgagn í barnaskólahúsinu alla mína skólagöngu
þar, stóð þar uppi við vegg úti í horni. Við bekkjarfélagarnir
bárum mikla virðingu fyrir honum, tókum okkur hann oft í hönd
og þóttumst frægir kappar. Hvar skyldi atgeirinn vera niður
kominn núna? Kannski á skólaloftinu innan um leiktjöldin