Strandapósturinn - 01.06.2011, Page 108

Strandapósturinn - 01.06.2011, Page 108
106 Ólafur Briem segir, að öllum sögnum beri saman um, að Ey- vindur hafi farið til Vestfjarða og setzt í bú hjá ungri ekkju, Höllu Jónsdóttur á Hrafnfjarðareyri í Jökulfjörðum. Eyvindur Jónsson sé talinn bóndi á Hrafnfjarðareyri árið 1760 í tiptunarhússtollabók úr Ísafjarðarsýslu 1760–1767. Þau hafi lagzt út árið 1761 og sam- kvæmt öllum munnmælum fyrst á Hveravöllum, en Skagfirðingar flæmt þau þaðan og þau tekið sér bólstað á Arnarvatnsheiði. Í skjallegum heimildum sé þeirra fyrst getið sem útilegumanna, er Árnesingar fundu hreysi þeirra undir Arnarfellsjökli og hröktu þau burtu þaðan haustið 1762. Hreysi þeirra er sagt hafa verið vestan til við Arnarfell, og þess hefur verið leitað undir Arnarfells- múlum. Greinarhöfundi þykir staðsetningin í Arnarfellsmúlum íhug- unarverð, en kemst ekki að neinni niðurstöðu, enda ókunnugur á þessu svæði. Af þeim 73 sauðarhöfðum, sem fundust með þekkt- um mörkum við hreysið (tvö voru með óþekktum mörkum), voru 70 af sauðum, sem vænta hefði mátt með vissu á Hrunamanna- afrétti, hin þrjú úr Biskupstungum og því öll ótengd afréttum milli Stóru-Laxár og Þjórsár. Þá hefur þurft að reka skjarra sauði norðan Kerlingarfjalla og austur í Þjórsárver, gegnum Illahraun, yfir Blautukvísl og Múlakvísl, í þveröfuga átt við það, sem líklegt væri, að sauðirnir vildu renna. Ágúst Guðmundsson jarðfræðing- ur, höfundur bókarinnar „Ofan Hreppafjalla“, sem birtist sem Árbók Ferðafélagins árið 1996, var spurður, hvort Illahraun mundi ekki hafa torfært með sauðfjárrekstur. Hann taldi, að yfir það mætti komast með fé, en sagðist ekki muna aðstæður svo vel, að hann vildi fullyrða neitt um slíkt. Þá er líklegt, að aðstæður hafi breytzt nokkuð á þeirri hálfu þriðju öld, sem nú er liðin, síð- an þessir atburðir gerðust. Lesendum skal bent á að hafa hugfast árið 1762 í tengslum við það, sem síðar verður getið. Eyvindur og Halla eiga eftir flóttann að hafa haldið til Vest- fjarða og farið þar huldu höfði, verið tekin við hreysi sitt á fjöllum vorið 1763, send Halldóri Jakobssyni sýslumanni í Strandasýslu og dæmd 30. maí sama ár í ævilanga hegningarhússvist og húðstroku í fangelsinu. Þau þá sótt til konungs um uppgjöf á hegningu. Vor- ið 1764 struku Eyvindur og Halla frá Halldóri sýslumanni. Var lýst eftir þeim á alþingi sumarið 1765.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.