Bændablaðið - 23.09.2021, Page 4

Bændablaðið - 23.09.2021, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 20214 FRÉTTIR Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi í Skarði í Þykkvabæ: Alveg hætt að lítast á blikuna – Mygla kom upp og síðan tók við þrálát vætutíð „Mér er alveg hætt að lítast á blikuna,“ segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi í Skarði í Þykkvabæ. Viðvarandi rigningartíð undanfarið gerir að verk- um að ekki er hægt að sinna upptökustörfum, garðar eru blautir og ekki hægt að fara um þá þó svo að einn og einn þurr dagur komi inn á milli. Sigurbjartur segir að allt leggist á eitt og hvert áfallið á fætur öðru komið upp. Vorið var kalt og seint sett niður og lítið að gerast í görðunum fram eftir sumri. „Þetta leit ekki vel út í sumar, tíðin var ekki hagstæð en breyttist aðeins þegar kom fram í ágúst og þá tók allt vel við sér og spretta góð. Það má segja að sú uppskera sem náðist á þeim tíma hafi verið bærileg,“ segir hann. Mun valda einhverju tjóni Einmitt á þeim tíma sem tíð var til friðs uppgötvaðist mygla í kar- töflum á svæðinu en Sigurbjartur segir kartöflubændur reyna hvað þeir geta að verjast henni og séu ávallt í viðbragðsstöðu. Það flæki málið að um þessar mundir er búið að banna notkun lyfja sem reyndust gott vopn í baráttunni gegn myglu og þeirra í stað er boðið upp á önnur sem virka ekki eins vel. „Við getum haldið þessu niðri og drepið mygluna með því að nota lyf og fresta upptöku á meðan þau eru að virka, við þurfum 10 daga upp í hálfan mánuð til að fá lyfin til að virka,“ segir Sigurbjartur. Hann segir ljóst að myglan muni valda kartöflubændum í Þykkvabæ einhverju tjóni en ekki ljóst enn hversu miklu. Þegar upp kemur sýking í görð- um þarf að gæta sérlega vel að því að hún nái ekki inn í húsin, þá er voðinn vís. Telur hann að það hafi tekist núna. Lítið sem ekkert byrjað á upptöku Þegar baráttu við myglu var lokið var eins og við mann- inn mælt, næsta áfall reið yfir, rigningartíðin sem veldur því að ekki er hægt að taka upp að neinu gagni. „Þetta gengur hægt, það er mikið eftir enn þá, þannig að við erum ekki í góðri stöðu þegar komið er þetta langt fram í september. Sem betur fer hefur ekki enn komið frostnótt hér um slóðir,“ segir Sigurbjartur. Litlar breytingar séu fram undan í veðurfari, rigningartíð virðist ríkj- andi áfram. /MÞÞ Anna Bára Bergvinsdóttir, kartöflubóndi í kartöflugeymslunni á Áshóli í Eyjafirði. Annað veðurfar er ríkjandi á norðanverðu landinu og upptökustörf hafa gengið vel í blíðviðrinu sem þar hefur verið nú liðna daga. Nokkuð vindasamt var þó í liðinni viku og moldrok gerði fólkinu sem var við upptöku lífið leitt. „Við vorum aðeins fyrr á ferðinni en í meðalári og uppskeran hjá okkur er ágæt, sérstaklega þegar mið er tekið af gríðarlegum þurrkum hér í sumar,“ segir Anna Bára. Það sem af er sýnist henni sem uppskera verði svipuð að magni og í fyrrahaust. „En það kemur auðvitað betur í ljós þegar öllu er lokið.“ Mynd / Aðsend Ágæt kartöfluuppskera í Eyjafirði Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi í Skarði í Þykkvabæ, segir hvert áfallið á fætur öðru hafi komið upp í kartöfluræktinni í Þykkvabæ þetta árið. Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar BÍ. Mynd / HKr. Góð uppskera hjá garðyrkju- bændum og allt selst – Rigning tefur og mannskap vantar „Uppskera hefur alls staðar verið mjög góð og almennt bera garð- yrkjubændur sig vel,“ segir Axel Sæland, formaður garðyrkju- deildar BÍ. Sprettan var góð, uppskeran mikil en tafir hafa orðið á upptöku vegna rigninga- tíðar sunnan- og vestanlands og eins hefur ekki alltaf tekist að fá nægan mannskap til upptöku- starfa. Axel segir að sumarið hafi komið vel út, „það selst allt sem í boði er nánast jafnóðum og það er komið á markað,“ segir hann. Íslenskt grænmeti eigi greinilega upp á pallborðið hjá landsmönn- um, það njóti mikilla vinsælda og bendir hann á að í því liggi fjöl- mörg tækifæri til að auka við. „Ég sé fyrir mér að bæði þeir sem fyrir eru í greininni geti bætt við sig og eins er örugglega pláss fyrir nýja framleiðendur,“ segir hann. Vantar mannskap Það setur svolítið strik í reikninginn að sögn Axels hversu þrálát rign- ing hefur verið bæði um sunnan og vestanvert landið og hefur hún hamlað upptökustörfum. Við það bætist að skólafólk sem starfaði fyrir garðyrkjubændur í sumar er nú komið í skólann á ný og erfiðlega hefur gengið að fá fólk til starfa. Axel segir að yfirleitt sjái garð- yrkjubændur sölu rjúka upp að haustinu en þá fara landsmenn að gæða sér á súpum sem alla jafna eru fullar af grænmeti, hvort heldur sem er íslenska kjötsúpan eða aðrar. Tækifæri á að auka við í selleríræktun Hann segir að sellerí hafi verið að ryðja sér til rúms í fæðuvali Íslendinga og umræður nýverið um skort á því sé augljóslega ákall til bænda um að auka framleiðslu sína á þeirri vöru. „Sellerí er að koma mjög sterkt inn, það er mikið notað í súpur og fleiri rétti og það er alveg ljóst að þarna eru tækifæri fyrir okkar garðyrkjubændur að spýta í lófana,“ segir Axel. Íslenskir bændur anni ekki eftirspurn nú, en hann vonar að einhver taki boltann á lofti og nýti sér tækifærið. Uppskera á rófum og gulrótum er rétt að hefjast og stendur upptökutíð yfirleitt fram í október. Axel segir að hann heyri ekki annað en spretta sé góð og búast megi við ágætri upp- skeru á því grænmeti. Vissulega hafi veðurfar skipst í tvö horn, þurrkar sett svip á veðrið fyrir austan og norðan en væta annars staðar, en hvarvetna hafi verið hlýtt og þar af leiðandi góð spretta. /MÞÞ Slátrun hófst þann 16. september hjá Fjallalambi. Mynd / Framsýn Fjallalamb og Framsýn: Samkomulag um launakjör Skrifað hefur verið undir sam- komulag um launakjör við sauð- fjárslátrun milli Fram sýnar og Fjallalambs á Kópaskeri. Sláturtíðin hófst þann 16. sept- ember síðastliðinn og er áætlað að hún standi yfir í um 5 vikur. Slátrað verður um 25.000 fjár. Frekar illa hefur gengið að manna sláturhúsið í ár en um 70 starfsmenn þarf til starfa í sláturtíð. Að staðaldri starfa um 17 starfsmenn hjá fyrirtækinu. /MÞÞ Hornafjörður: Upptökustörfum lokið fyrir vætutíð Hjalti Egilsson á Seljavöllum segir að upptökustörf hafi gengið vel í Hornafirði og þar hafi náðst að taka upp úr öllum görðum áður en haustrigningar hófust. „Upptökustörf gengu vel og fóru fram við góðar aðstæður, veður var fínt og kartöflur eru fallegar og góðar,“ segir hann. Uppskera er svipuð að magni og var í fyrra. „Það er svipað magn í húsum og var í fyrrahaust og ég er ánægður, því þetta leit ekki vel út í vor og fram á sumar. Það var mjög kalt framan af en svo þegar kom fram í júlí fór að hlýna hér um slóðir og spretta tók vel við sér. Við gátum byrjað upptöku á góðum tíma, fyrstu kartöflur voru komnar í hús um miðjan ágúst. Við náðum að taka allt upp áður en rign- ingartíðin hófst,“ segir Hjalti. /MÞÞ Kartöflugarður hjá Sigurbjarti Pálssyni, kartöflubónda í Skarði í Þykkvabæ, umflotinn vatni. Mynd / SP

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.