Bændablaðið - 23.09.2021, Síða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202130
LÍF&STARF
„Ég sáði smávegis af Finola hampi
í fyrra á hálfgerðum berangri
bara til að vita hvort þessi planta
gæti lifað.
Það er skemmst frá því að segja
að hann lifði, varð um einn metri á
hæð og kom með dálítið af blóm-
um,“ segir Ragnar Þorsteinsson,
bóndi í Sýrnesi í Aðaldal.
Hann hélt áfram nú í byrjun sum-
ars og 1. júní sáði hann í gamlan
skjólgóðan kálblett og setti á hann
skít. Í blettinn sáði hann hálfum fræ-
skammti af Finola og smávegis af
Felina 32 og síðan fullum skammti
af Hvítsmára.
Sumarið byrjaði ekki vel hvað
veðurfar varðar, frekar kalt var fram-
an af og þegar vika var af júlí voru
hæstu plöntur um það bil 7 sentí-
metrar á hæð. Þá hófst hitabylgjan
fræga sem stóð vel fram í septem-
ber og segir Ragnar að í ágústlok
hafi Fiona plönturnar verið orðnar
um 180 sentimetra háar og Felina
plöntur um 260 sentímetrar á hæð.
„Blómvöxtur á Finola er mjög
góður en lítill sem enginn á Felina en
það er hávaxnara kvæmi, með svera
stöngla. Við höfum mest
verið að tína blóm sem
verða nýtt í CBD olíur
og te,“ segir Ragnar.
Kannar hvort uppskera
verði næg svo ræktun
standi undir sér
Þorste inn Snævar
Benediktsson, bruggari
hjá Húsavík öl, prófaði að
brugga bjór úr þeim hampi
sem kom á markað í byrjun
september og fékk það
góðar viðtökur að framhald
verður á þeirri framleiðslu.
Ragnar segir að markaður
fyrir hampafurðir sé á byrj-
unarreit og lítið sem ekkert
sé til af tækjum í landinu til
að koma uppskeru í hús.
„Við höfum boðið fólki
að koma og kynnast hampin-
um og taka hann upp til eigin
nota án endurgjalds og það
hafa nokkrir nýtt sér það en
grunnhugmyndin snerist fyrst
og fremst um að kanna hvern-
ig hampur kemst af í íslenskri
veðráttu og hvort uppskera
verði næg til þess að ræktun á
honum geti staðið undir sér,“ segir
Ragnar.
Hampurinn smellpassar í
bjórframleiðsluna
Þorsteinn Snævar stofnaði Húsavík
öl 2017 og hefur að sögn alla tíð
verið forvitinn um náttúruna og
leitast við að nýta alls kyns ber
og jurtir, eins og kerfil, hvönn og
blóðberg, í sínar afurðir með góðum
árangri. Hann var því ekki lengi að
hugsa sig um þegar Ragnar hafði
samband og bauð honum að prófa
að brugga úr hampi og stökk strax
til. Bjórinn sem hann bruggaði er
„West coast Ipa“ og fær bjórinn að
njóta sín í bjórstíl þar sem beiskja,
sæta og malt vinna saman.
„Að mínu mati smellpassar
hampurinn þar inn með grösuga
undirtóna og örlítið jurta-eftirbragð.
Ég var örlítið smeykur við að olíu-
rnar í hampinum hefðu neikvæð
áhrif á froðumyndun en það varð
ekki.
Ég er alsæll með þessa til-
raun, bjórinn hefur fengið mjög
góðar viðtökur svo það verð-
ur gaman að þróa þetta verk-
efni áfram,“ segir Þorsteinn.
/MÞÞ
Ragnar Þorsteinsson á Sýrnesi hóf tilraun í fyrra með því að sá smávegis af Finola hampi á hálfgerðum berangri
til að vita hvort plantan lifði. Það gerði hún og nú í byrjun sumars sáði hann fleiri tegundum í skjólgóðan kálgarð.
Sýrnes í Aðaldal:
Hampurinn óx hratt í hitabylgjunni
– Markaður fyrir afurðir á byrjunarreit og lítið til af tækjum til að koma uppskeru í hús
Hampurinn óx vel í hitabylgju sumarsins, Ragnar Þorsteinsson á Sýrnesi er hér innan um hampinn.
Myndir / Ragnar Þorsteinsson
Þorsteinn Snævar Benediktsson, bruggari hjá Húsavík öl, prófaði að brugga bjór úr þeim hampi sem
kom á markað í byrjun september og voru viðtökur góðar svo framhald verður á.
MÓ ÐIR JÖRÐ - LÍFRÆN RÆK TUN Í VALL ANESI
ÍSLENSKT BYGG
ER SANNKÖLLUÐ
OFURFÆÐA.
ÚRVALS HEILKORN
Í HOLLAN MAT.
Sjá nánar á www.modirjord.is
Í ágústlok voru Fiona plönturnar orðnar um 180 sentí-
metra háar og Felina plöntur um 260 sentímetrar á
hæð.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is