Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 45
ÞJÓNUSTUMAÐUR
Bústólpi ehf - fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri • bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Bústólpi óskar eftir að ráða öflugan aðila í þjónustudeild DeLaval með
starfsstöð á Akureyri. Við leitum að starfsmanni sem hefur brennandi áhuga á
að veita góða þjónustu, er lausnamiðaður, úrræðagóður og hefur áhuga á
tækni. Vinna starfsmannsins fer að mestu fram á sveitabæjum og fylgja starfinu
því nokkur ferðalög um landið.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2021.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Sækja skal um á
www.mognum.is . Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is .
Bústólpi starfrækir fóðurverksmiðju á Oddeyrartanga á Akureyri ásamt því að
reka verslun með vörur sem tengjast landbúnaði. Bústólpi er þjónustuaðili
DeLaval á Íslandi. Hjá Bústólpa starfa 24 manns. Bústólpi hefur verið valið
framúrskarandi fyrirtæki 11 ár í röð af Creditinfo.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónusta við DeLaval mjaltaþjóna ásamt
öðrum DeLaval tæknibúnaði og þátttöku í
uppsetningum mjaltaþjóna. Starfið er því
afar fjölbreytt og spennandi og býður upp
á góða möguleika á að vaxa í starfi í ört
stækkandi deild.
Hæfniskröfur
• Þjónustulund
• Jákvæðni og hæfni í samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þekking á landbúnaði er kostur
• Iðnmenntun eða reynsla af
sambærilegu starfi er kostur
• Bílpróf er skilyrði
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til
rannsókna- og þróunarverkefna í garðyrkju, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar
nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju- og þróunarverkefna í sauðfjár- og
nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan
stuðning í landbúnaði.
Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir,
leiðbeiningar og þróun í greinunum svo sem ráðgjafar-, kynningar-, rannsókna-
eða tilraunaverkefni sem og, vöruþróunar- og endurmenntunarverkefni.
Fagráð hverrar búgreinar veitir umsögn um allar umsóknir sem berast í
þróunarsjóð hennar.
Umsókn skal skila rafrænt á mínum síðum (eyðublaðavef) Stjórnarráðsins.
Sérstök umsókn er fyrir hverja búgrein þ.e. garðyrkju, nautgriparækt og
sauðfjárrækt og umsækjendur eru beðnir að gæta að því.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2021.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu. Senda má fyrirspurnir á tölvupóstfang anr@anr.is
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Styrkir til rannsókna-
og þróunarverkefna búgreina
Borgarbyggð er í heilmiklu
umhverfisátaki í haust með
aðstoð endurvinnslufyrirtækis-
ins Hringrásar, sem aðstoðar við
hreinsunarátakið í dreifbýli með
því að útvega gáma undir brotajárn,
íbúum að kostnaðarlausu.
Efni sem heimilt er að setja í gáma
er bílflök og annað almennt brotajárn,
ryðfrítt stál og ál, rafgeymar, rafmót-
orar og hjólbarðar. Almennt er gert ráð
fyrir að ekki líði nema einn dagur frá
því að komið er með gám og þar til
hann er fjarlægður. Borgarbyggð tekur
við beiðnum um þjónustu á heimasíð-
unni www.borgarbyggd.is, í síma 433
7100 eða á póstfangið borgarbyggd@
borgarbyggd.is. Frestur til að senda
pöntun er til 15. október 2021.
/MHH
Umhverfisátak í Borgarbyggð
Fallið frá því að fækka flugferðum
til og frá Vopnafirði
Vegagerðin lagði nýverið til
breytingu á flugi til Vopnafjarðar
og Þórshafnar þar sem fækka
átti flugferðum úr fimm í þrjár
á viku.
Sveitarstjórnir Langanesbyggðar
og Vopnafjarðarhrepps mótmæltu
þessari fyrirhuguðu breytingu
harðlega og nú hefur svo farið
að Vegagerðin hefur fallið frá
breytingunni.
Fyrir liggur minnisblað frá
Vegagerðinni um breytingar á flugi
til og frá Vopnafirði og Þórshöfn
vegna fyrirhugaðs útboðs á flug-
leiðinni Akureyri-Vopnafjörður-
Þórshöfn-Akureyri, sem gert verð-
ur í haust. /MÞÞ
Nemendur frá 17 löndum
í Sjávarútvegsskólanum
Erlendir nemendur í Gró Sjávarútvegsskóla. Eftir vel heppnaðan dag var
gengið að hrauninu í Nátthaga á Reykjanesi. Myndir / Hafrannsóknastofnun
„Gró Sjávarútvegsskóli“,
sem starfar undir hatti
UNESCO, hefur fengið
nema að nýju eftir árs hlé
vegna Covid-19. Þetta er
stærsti hópur sem komið
hefur á vegum skólans og
eru nemarnir víðs vegar
að og koma frá 17 lönd-
um, segir í tilkynningu frá
Hafrannsóknastofnun.
Þriðjudaginn 14. sept-
ember var hefðbund-
inn dagur brotinn upp
og farin vettvangsferð í
Tilraunaeldisstöðina að Stað við
Grindavík þar sem starfsmenn
stöðvarinnar, þeir Matthías, Agnar
og Tómas, tóku á móti hópnum
og kynntu fyrir honum starfsem-
ina. Stöðin vakti mikinn áhuga og
útskýrðu starfsmennirnir hin ýmsu
verkefni sem þar eru unnin. Fólkið
var mjög áhugasamt og spurði mikið
út í starfsemina. Auk starfsmanna
Sjávarútvegsskólans, þeirra Stefáns,
Agnesar og Zaw, var Haraldur
Einarsson veiðarfærasérfræðing-
ur með í för og leiddi fólk í allan
sannleika um ólík veiðarfæri og
virkni þeirra við netaverkstæðið í
Grindavík. Saltfisksetrið í Grindavík
var einnig skoðað og farið laus-
lega yfir sögu og þróun fiskveiða
á Íslandi. Að lokum var gengið að
hrauninu í Nátthaga á Reykjanesi.
/MHH
Haraldur Einarsson að fræða nemendur um
veiðarfæri.
Nýtt hjúkrunarheimili í Vík
Nýlega undirrituðu Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
og Einar Freyr Elínarson, oddviti
Mýrdalshrepps, viljayfirlýsingu
um byggingu nýs hjúkrunarheim-
ilis á Ránarbraut 3 í Vík.
Nýja heimilið mun leysa af hólmi
þau 15 hjúkrunarrými, sem eru á
Hjallatúni og ef vel tekst til gætu
framkvæmdir hafist á árinu 2023.
„Nú ríður á að íbúar sýni samstöðu
um verkefnið og fylgi því þétt eftir
svo við getum loksins flutt starfsem-
ina í glæsilegt nýtt hjúkrunarheimili
sem við getum öll verið stolt af,“
segir Einar Freyr. /MHH