Bændablaðið - 23.09.2021, Síða 50

Bændablaðið - 23.09.2021, Síða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202150 LÍF&STARF SKÓGRÆKT&SKÓGARNÝTING Skrifað hefur verið undir samn- ing um lagningu göngu-, hjóla- og unaðsstígs í Vaðlareit sem er í eigu Skógræktarfélags Eyfirðinga. Stígurinn mun liggja eftir endi- löngum Vaðlareit, samtals um 2,2 kílómetra, en í þessum áfanga verð- ur farið frá jarðgöngum í norðri að væntanlegum Skógarböðum í suðri. Í framhaldi er fyrirhuguð tenging til Akureyrar sem og frekari stígalagn- ing norður Svalbarðsstrandarhrepp. Verkið verður unnið í sam- vinnu Svalbarðsstrandarhrepps, Vegagerðarinnar, Norðurorku og Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem mun sjá um fellingu og að fjarlæga tré sem þurfa að víkja fyrir stíga- lögn. Stígurinn er 3,5 metra breið- ur og malbikaður, undir honum verða lagðar vatnslagnir sem flytja munu heitt og kalt vatn frá Vaðlaheiðargöngum til Akureyrar auk þess að tryggja Skógarböðunum sem nú rísa í suðurhelmingi skógar- ins vatn til sinnar starfsemi. Stórbætir aðgengi að perlum skógarins Jafnframt því að þjóna umferð gang- andi og hjólandi vegfarenda mun stígurinn stórbæta aðgengi að perlum skógarins sem eru ófáar og auðvelda mjög alla umhirðu hans. Síðast en ekki síst gerir hann fleiri samfélags- hópum kleift að njóta náttúrunnar og bæta heilsu sína t.d. þeir sem teljast fótafúnir, glíma við fötlun, elli, skert þrek eða annað sem til trafala er. Þá er fyrirhugað að útbúa þrjá áningar- staði við stíginn þar sem lúnir geta hvílt sig, hægt er að njóta útsýnis, samskipta við samferðafólk, upplifa náttúruna, listviðburði og fræðast um hina merkilegu sögu skógarins Svalbarðsstrandarhreppur og Skógræktarfélagið hafa sammælst um að þróa með sér samstarf um þjónustu við stíginn „og erum við full tilhlökkunar að vinna með því dug- mikla fólki að mikilvægu lýðheilsu- verkefni sem í senn verður sannköll- uð sveitarprýði,“ segir í frétt á Facebook-síðu Skógræktarfélagsins. 240 þúsund trjám plantað í Vaðlareit Árið 1936, fyrir 85 árum síðan, hóf Skógræktarfélag Eyfirðinga skóg- rækt í Vaðlareit og hefur plantað þar alls um 240.000 trjám. Auk al- gengari trjátegunda sem við þekkjum úr skógrækt má þar einnig finna fágætar tegundir líkt og hlyn, álm, síberíuþin, hvítþin, alaskasýprus, eik, hrossakastaníu hæruöl og svo framvegis og skógarfururnar sem lifðu af lúsafaraldur á 6. áratugnum eru nú margar hverjar mikilfenglegir risar og afar verðmæt minnismerki í íslenskri skógræktarsögu. Byggjum á þessum grunni „Fyrir okkur sem fögnum í dag er líka vert að þakka sporgöngufólkinu, félagsmönnum sem fyrir 85 árum hrintu af stað skógræktarverkefni á tímum þar sem nánast enginn ræktaður skógur var til í landinu, landeigendum sem lögðu okkur til land af ótrúlegri framsýni og allra þeirra þúsunda sjálfboðaliða sem lagt hafa hönd á plóg með draum um betra Ísland að leiðarljósi. Á þessum verðmæta grunni byggjum við í dag og eyfirskt samfélag á eftir að njóta um ókomna tíð,“ segir Skógræktarfólkið enn fremur. /MÞÞ Skógræktarfélag Eyfirðinga og Svalbarðsstrandarhreppur: Samningur um lagningu göngu-, hjóla- og unaðsstígs um Vaðlareit Góð stund í blómlegum Vaðlareit. Skrifað hefur verið undir samning um lagningu göngu-, hjóla- og unaðsstígs í Vaðlareit sem er í eigu Skógræktar- félags Eyfirðinga. Myndin er tekin eina ljúfa og liðna stund í reitnum. Myndir / Skógræktarfélag Eyfirðinga. Skógarhöggsmenn Skógræktarfélags Eyfirðinga að störfum. Glæsileg skógarfura í Vaðlareit.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.