Bændablaðið - 23.09.2021, Síða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 55
Hafðu samband: bondi@byko.is
ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKU-
EININGAR SEM FÁST
MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA
STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðar-
miklar og fást með mismunandi
yfirborði og litum að eigin vali.
Helstu kostir þess að nota
samlokueiningar er auðveld og
fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil
burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við
hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri
gripahús þar sem skipta þarf út
þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar
undir ströngu eftirliti samkvæmt
viðurkenndum evrópskum stöðlum.
YLEININGAR
Alvöru dælur sem vinna verkið á methraða. Þú færð Nilfisk hjá Rekstrarlandi
í Vatnagörðum, við Austurveg á Selfossi og í útibúum Olís um land allt.
NILFISK
HÁÞRÝSTIDÆLUR
Passaðu þrýstinginn – hann þarf nefnilega að vera nægur
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | rekstrarland.is
Bænda
7. október
TÆKNI&UMHVERFISMÁL
Umhverfisvæn
haglaskot
Eftir 10 ára rann-
sóknir og þróun hefur
spænska fyrirtæk-
ið Bioammo skráð
einkaleyfi á framleiðslu
nýrra, umhverfis-
vænna haglaskota sem
nú eru komin á mark-
að og hafa vakið mikla
athygli um allan hinn
vestræna skotveiði-
heim síðustu misserin.
Eftir töluverðu er að
slægjast með að losna við
plasthylkin. Hefðbundin
haglaskot, framleidd úr
plasti, brotna niður á um
450 árum. Bioammo skotin brotna
hins vegar niður í náttúrunni á um
tveimur til þremur árum.
Mikið af skothylkjum
verða eftir í náttúrunni
Virkir veiðikortshafar á Íslandi eru á
milli 15.000 og 20.000. Gefum við
okkur að hver veiðimaður skjóti 200
æfinga- og veiðiskotum árlega eru
skilin eftir þrjár til fjórar milljónir
forhlaða og talsvert magn skothylkja
í náttúrunni á ári hverju.
Skothylki og forhlöð í venju-
legum haglaskotum eru úr plasti.
Í stað plasts eru skothylki og for-
hlöð Bioammo skotanna framleidd
úr efnum unnum úr jurtaríkinu sem
brotna niður í náttúrunni á um tveim-
ur til þremur árum. Niðurbrotið er
hreint og lyktarlaust þar sem skot-
hylkin og forhlöð eyðast fyrir til-
stuðlan náttúrulegra örvera, sveppa
og þörunga og breytast í hreinan,
lífrænan úrgang. Þess má geta að
Bioammo fékk nýsköpunarverðlaun
í Evrópu í ár.
Veiðihornið er með umboð fyrir
Bioammo á Íslandi. Ef menn vilja
frekari upplýsingar um þessi „nátt-
úruvænu“ haglaskot má finna þær
á vefsíðunni www.Bioammo.es og
auðvitað hjá umboðinu. /HKr.