Bændablaðið - 23.09.2021, Page 73

Bændablaðið - 23.09.2021, Page 73
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 73 Prjónaður hálskragi á börn með axlarsæti. Stykkið er prjónað í garða- og stroffprjóni úr dún- mjúka Drops Merino Extra Fine. Húfuna má finna á heimasíðu okkar www.garn.is. xx: DROPS Design: Mynstur me-068-bn Stærðir: 12/18 mánaða (2) 3/4 (5/8) 9/12 ára Breidd á öxlum ca: 18 (20) 24 (26) 28 cm Garn: Drop Merino Extra Fine (fæst hjá Handverkskúnst) - 100 (100) 100 (150) 150 g litur á mynd nr 34, ljung Prjónfesta: 21 lykkja með sléttprjóni = 10 cm Prjónar: Hringprjónn 40 cm nr 4 og sokkaprjónar nr 3,5 fyrir stroff Garðaprjón (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. Garðaprjón (prjónað fram og til baka): Prjónið slétt allar umferðir Útaukning: Aukið út hvoru megin við axlalykkjur með því að taka upp lykkjur. Aukið út á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið fram að prjónamerki, færið prjónamerki yfir á hægri prjón, notið hægri prjón til að lyfta upp hlekknum á undan næstu lykkju á vinstri prjón þannig að hægri hlið á hlekknum komi á réttu á stykkinu, prjónið 1 lykkju slétt í aftari lið á hlekknum (hlekkurinn verður nú snúinn þannig að ekki myndist gat og lykkjan hallast til vinstri). Aukið út á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki á undan axlalykkjum, notið hægri prjón til að lyfta upp hlekknum á undan næstu lykkju á vinstri prjón þannig að vinstri hlið á hlekknum komi á réttu á stykki, prjónið 1 lykkju slétt í hlekkinn (hlekkurinn verður nú snúinn þannig að ekki myndist gat og lykkjan hallast til hægri), færið prjónamerkið yfir á hægri prjón. Affelling: Til að koma í veg fyrir að affellingarkantur- inn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) KRAGI: Fitjið upp 88 (96) 104 (112) 120) lykkjur á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 7 (7) 8 (9) 9 cm, skiptið yfir á hring- prjón nr 4 og prjónið áfram þannig (frá miðju ofan á öxl): Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (látið prjóna- merkið sitja í stykkinu, það á að nota það síðar til að mæla frá). Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 1. prjónamerki, prjónið 34 (38) 42 (46) 50 lykkjur garðaprjón og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 3. prjónamerki, prjónið 34 (38) 42 (46) 50 lykkjur garðaprjón og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki og endið með 2 lykkj- ur slétt og 2 lykkjur brugðið = 72 (80) 88 (96) 104 lykkjur. Axlalykkjurnar eru lykkjurnar á milli 1. og 4. prjónamerkis og 2. og 3. prjónamerkis. Haldið áfram með stroff yfir axlalykkjurnar og garða- prjón yfir lykkjur á framstykki/bakstykki, á meðan aukið er út um 1 lykkju við hvert prjónamerki í hverri umferð – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð). Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garða- prjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 3 (3) 4 (4) 4 cm frá prjónamerki = ca 104 (112) 132 (140) 148 lykkjur. Í næstu umferð eru axlalykkjurnar felldar af þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið garðaprjón eins og áður yfir næstu ca 42 (46) 56 (60) 64 lykkjur fram að 2. prjónamerki, fellið af næstu 10 lykkjur, prjónið garðaprjón eins og áður yfir næstu ca 42 (46) 56 (60) 64 lykkjur fram að 4. prjónamerki, fellið af síðustu 4 lykkjurnar. Prjónið nú hvort stykki til loka fyrir sig. Prjónið garðaprjón fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, yfir ca 42 (46) 56 (60) 64 lykkjur á framstykki/ bakstykki, þar til stykkið mælist ca 9 (10) 12 (13) 14 cm, mælt frá þar sem síðasta axlalykkjan á hvorri öxl var felld af. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá affelling. Prjónið hitt framstykki/bakstykki alveg eins. Prjónakveðja mæðgurnar í Handverkskúnst www.garn.is Hálskragi á börn HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 5 8 9 3 8 4 6 1 5 9 1 3 9 6 4 5 9 2 4 7 8 7 6 4 Þyngst 8 6 7 7 9 2 5 3 1 3 8 2 9 1 4 5 7 1 6 4 5 3 1 6 3 5 2 5 9 3 4 1 3 9 7 3 6 9 4 5 2 3 5 6 9 8 3 8 4 1 9 8 2 9 5 6 7 2 3 1 4 5 3 8 2 8 1 7 6 3 3 9 5 Kótelettur bestar FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Tómas Steinn er níu ára Esk- firðingur sem spilar á trommur. Nafn: Tómas Steinn Ástþórsson. Aldur: 9 ára að verða 10 í október. Stjörnumerki: Sporðdreki. Búseta: Eskifirði. Skóli: Grunnskóli Eskifjarðar. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Heimilisfræði, íþróttir, smíðar og stærðfræði. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hamstur, naggrís, hundur, hestur og kisa. Uppáhaldsmatur: Kótelettur í raspi. Uppáhaldshljómsveit: Måneskin. Uppáhaldskvikmynd: Grown ups 2. Fyrsta minning þín? Þegar ég datt á hjóli og slasaðist mikið í andlitinu. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og spila á trommur. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Fótboltamaður og vinna í dýragarð. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég ætlaði að stökkva af brú í sjóinn en mamma bannaði mér það, þá fór ég að vaða. Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór til Reykjavíkur og hitti fjölskylduna mína. Næst » Ég skora á Sonju Salín Hilmarsdóttur, frænku mína. Allir félagsmenn Bændasamtaka Íslands teljast til sjóðs félaga og geta sótt um: # Styrki til endurgreiðslu aukins rekstrarkostnaðar vegna veikinda þess sem að búrekstri stendur eða slyss. - Útlagður launakostnaður, verktakagreiðslur og sambærilegur kostnaður sem leiðir af óvinnufærni. # Styrki til forvarnarverkefna. - Verkefni tengd forvörnum og vinnuvernd, slysavarnir og önnur verkefni sem hafa það að markmiði að bæta velferð sjóðsfélaga. Nánari upplýsingar á bondi.is og umsóknareyðublöð má nálgast á félagsmannasíðum á Bændatorginu. Umsóknir skulu berast fyrir 15. október nk. með rekjanlegum bréfpósti (ábyrgðarbréf) merkt: VELFERÐARSJÓÐUR BÍ AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM Bændasamtök Íslands Bændahöllinni við Hagatorg 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.