Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Úrvals grjón í fína matseld.
MÓ ÐIR JÖRÐ - LÍFRÆN RÆK TUN Í VALL ANESI
Lög um landgræðslu nr. 155/2018
voru samþykkt 14. desember 2018
með 60 atkvæðum (þrír fjarstaddir).
Í lögunum er grunntónn sjálfbær
landnýting.
Í níundu grein laganna segir; „nýt-
ing lands skal vera sjálfbær þannig að
ekki sé gengið á auðlindir þess og þær
endurheimtar eins og unnt er, og jafn-
framt að viðgangur og virkni vistkerfa
haldist. Nýting lands skal byggjast á
viðmiðum um sjálfbærni, sbr. 11. gr.“
Í 11. greininni segir að ráðherra
skuli setja reglugerð með það að mark-
miði að tryggja sjálfbæra landnýtingu,
„m.a. varðandi beit búfjár, umferð
fólks og ökutækja, framkvæmdir og
akuryrkju. Landgræðslan gerir tillögur
að slíkum leiðbeiningum og viðmiðum
að höfðu samráði við hlutaðeigandi
stofnanir, sveitarfélög og hagsmuna-
aðila eftir því sem við á hverju sinni.
Ráðherra birtir opinberlega drög að
leiðbeiningum og viðmiðum og skal
frestur til að skila athugasemdum vera
að lágmarki fjórar vikur.“
Reglugerðardrögin voru til
umsagnar í 6 vikur og er því lokið.
Alls bárust 88 umsagnir og margar
gagnlegar ábendingar en greinilegt er
að munur er á því hvað fólk telur að
eigi að leggja til grundvallar þegar
meta á hvað teljist sjálfbær nýting.
Byggt á alþjóðlegri vinnu
.
Þegar vinna við drög að reglugerð hófst
var rætt við fjölmarga aðila um aðstoð
og ábendingar en fljótt kom í ljós að
leita yrði fyrirmynda erlendis. Sjálfbær
landnýting hefur hins vegar verið í
umræðunni og rannsóknir stundaðar
um áratuga skeið víða um heim.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna FAO og Global
Soil Partnership hafa t.d. fjallað um
málefnið á aðildarríkjafundum og
gefið út fjölda leiðbeiningarrita.
Landgræðslan skoðaði fyrst hvort
við gætum tekið upp það fyrirkomulag
sem Norðmenn leggja til grundvallar
í sínu mati á landnýtingu, en það var
ljóst að beitilönd sem við teljum í
ásættanlegu ástandi hefðu kolfallið
með beitingu norsku reglnanna. Því
var nauðsynlegt að innleiða stað færslu
á reglum sem tækju meira tillit til
ástands lands og aðstæðna á Íslandi.
Reglugerðardrögin byggja því
á staðfærslu sérfræðivinnu FAO
– Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unar Sþ sem lagt hefur grunninn að
þeirri aðferðafræði sem notuð er og
hefur verið aðlöguð að aðstæðum
um allan heim og er notuð í mörg-
um Evrópulöndum, Nýja-Sjálandi,
Ástralíu, Banda rík j unum og hefur verið
kennd í áratug í Landgræðsluskóla Sþ
á Íslandi. Nemendur sem stundað hafa
nám í Landgræðsluskólanum vinna
nú að innleiðingu sjálfbærnireglna í
sínum heimalöndum byggða á þessari
aðferðafræði.
Jarðræktar- og akuryrkjukafl-
inn byggir á faglegri vinnu FAO
og Evrópusambandsins og á þeim
reglugerðum sem í gildi eru í
Evrópusambandinu. Ástæða er til
að leiðrétta misskilning sem hefur
farið hátt undanfarnar vikur og árétta
að jarðræktar/ akuryrkjuhluti drag-
anna, sjöunda grein og viðauki tvö,
eru aðeins leiðbeinandi viðmið um
betri búskaparhætti; tilraun til þess
að stuðla að betri og loftslagsvænni
landbúnaði. Aukin akuryrkja kallar
á innleiðingu nýrra vinnubragða og
vandi okkar á Íslandi er stuttur vaxtar-
tími. Bændur í Evrópu standa frammi
fyrir svipuðum vanda og íslenskir
bændur því þar er sífellt verið að
innleiða ræktun suðrænni afbrigða
og tegunda og því eru áskoranir þeirra
þær sömu og okkar. Við getum því
lagt til grundvallar þær reglur sem
notaðar eru í Evrópu og byggja þar á
áratuga hefðum, reynslu og rannsókn-
um. Ég treysti bændum landsins vel
til að takast á við þessar áskoranir og
sem betur fer eru þeir færri og færri
akrarnir sem opnir eru á veturna með
tilheyrandi foki og tapi á næringarefn-
um og jarðvegi.
Samráð
Landgræðslan hafði samráð við fjöl-
marga aðila við gerð reglugerðardrag-
anna og átti m.a. nokkra formlega
vinnufundi með Bændasamtökum
Íslands og Lands samtökum sauð-
fjárbænda og fékk þar fjölda mjög
gagnlegra ábendinga.
Í vinnuferlinu sendi stofnunin
helstu beitarsérfræðingum landsins
einnig drögin til skoðunar og óskaði
eftir athugasemdum og ábendingum.
Flestir brugðust vel við og eru þeim
þakkaðar gagnlegar ábendingar.
Drög að reglugerð –
grundvallarmunur á viðmiðum
Það var ljóst af samtölum við
hagsmunaaðila að grundvallarmunur
er á hugmyndum um skilgreiningu á
sjálfbærri landnýtingu. Landgræðslan
hefur lagt til grundvallar aðferðafræði
sem notuð er og lögð er til grundvallar í
alþjóðlegu starfi FAO og þeim löndum
sem við kjósum að bera okkur saman
við. Samkvæmt þessari aðferðarfræði
telst landnýting ekki sjálfbær ef
jarðvegs-, vatns- og næringaefnaferlar
eru skertir eða ekki til staðar. Það
að land sé í framför er vissulega
frábært en ef allan grunn vantar er
áfallaþol landsins ekkert og stutt í
landeyðinguna. Þetta á sérstaklega við
um land sem nýlega hefur verið grætt
upp því þótt gróðurþekja hafi myndast
á skömmum tíma á það sama ekki við
um jarðveginn. Nýting á slíku landi
verður þá undir þeim formerkjum
að hún sé ósjálfbær. Ef land ber ekki
merki hnignunar og virkni jarðvegs er
til staðar skal nýtingin teljast sjálfbær.
Beit á landi í yfir 700 metra hæð
yfir sjó getur með engu móti talist
sjálfbær því við slíkar aðstæður er
vaxtartími beitarplantna vart meiri en
5-6 vikur því hiti lækkar um 0,6 °C til
0,7 °C við hverja hundrað metra. Grös
og blómjurtir byrja að vaxa við 4-6
°C. Slíkir dagar eru fáir í 700 metra
hæð og ef gróður við þær aðstæður er
bitinn í lok vaxtartíma er enginn tími
til að safna orku, hann drepst líklega
eða skrimtir veturinn.
Skrif Bændablaðsins og umfjöllun
í fjölmiðlum
Bændablaðið hefur birt greinar
um drögin og aðallega fjallað um
ómöguleika þess að innleiða þær reglur
sem þykja orðið sjálfsagðar víða um
heim. Í þessum umfjöllunum er þess
vandlega gætt að nefna ekki að þegar
um er að ræða land í miklum halla sem
ekki er rofið skal það metið sérstaklega
eða að jarðræktarhluti draganna er
leiðbeinandi. Upphrópanir benda
til þess að sumir virðast ekki hafa
lesið drögin en velja að tjá sig með
stórum orðum. Þær upphrópanir minna
helst á umfjöllun Bændablaðsins um
endurheimt votlendis þar sem skrif
andstæðinga endurheimtar eru lögð
að jöfnu við rannsóknaniðurstöður
vísindamanna.
Árni Bragason,
landgræðslustjóri.
Sjálfbær landnýting og vinna
við drög að reglugerð
Árni Bragason.
LESENDARÝNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Bændablaðið hefur í mörg
ár óskað eftir að fá í hendur
vísindagögn og mælingar sem
staðfesta hver raunveruleg losun
er úr framræstu landi á Íslandi
með hliðsjón af mismunandi
jarðvegsgerð. Þessi gögn hafa
enn ekki fengist.
Fyrirspurn Bændablaðsins er
sprottin af umfjöllun virtra vísinda-
manna í þessum fræðum, eins og
dr. Þorsteins Guðmundssonar og
dr. Guðna Þorvaldssonar og fleiri.
Þeir hafa gagnrýnt fullyrðingar
sem byggja ekki á vísindalegum
gögnum og mælingum á Íslandi.
Einnig málatilbúnað í kringum
mokstur í framræsluskurði sem
byggja upphaflega á rannsóknum
á mýrum í Brandenburg í nágrenni
Berlínar þar sem meðalhiti er 9
gráður á C en ekki 4 °C eins og
á Íslandi. Hitastig hefur einmitt
veruleg áhrif á örverumyndun í
jarðvegi og losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
Meira að segja mælingar á
skurðakerfinu hafa verið byggðar
á ágiskunum þar til að nýverið er
farið að hnitasetja skurði. Þar hafa
því verið settar fram ýmsar tölur
um skurðalengd og lengi var miðað
við 34.000 kílómetra og að áhrifa-
svæði losunar á gróðurhúsaloft-
tegundum næði 200 metra beggja
vegna skurða. Á þessum forsendum
var m.a. fullyrt af umhverfisráðu-
neyti, ráðherra þess, umhverfis-
verndarsamtökum og fulltrúum
Votlendissjóðs að losun frá fram-
ræstu landi á Íslandi væri um 70%
af heildarlosun Íslendinga á CO2.
Þegar farið var í framhaldinu að
áætla frekar skurðalengdina fór
hún í 32.500 km, síðan í 31.610
km og loks í 29.700 km. Enn heyr-
ist því samt haldið fram að 70% af
heildarlosun Íslendinga á CO2 stafi
af framræstu landi.
Eftir skrif vísindamanna og
umfjöllun Bændablaðsins þar
sem fullyrðingar án sannana voru
gagnrýndar, fjarlægði umhverfis-
ráðuneytið ófaglegar fullyrðingar
um 70% losunina af vefsíðu sinni
og í staðinn var farið að tala um
60% án þess að rökstyðja það nánar
með vísindalegum gögnum.
Þorsteinn og Guðni sýndu líka
fram á að áhrifasvæði framræslu-
skurða sem miðað var við stæðist
ekki í veruleikanum og munaði
þar miklu. Bændablaðið óskaði
því sérstaklega eftir vísindagögn-
um og gasmælingum á landi áður
en mokað hefur verið í skurði og
eftir mokstur til að sýna raunhæfan
samanburð. Þau gögn hafa enn ekki
verið lögð fram.
Hörður Kristjánsson,
ritstjóri Bændablaðsins
Skortur á vísindalegum gögnum