Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
LÍF&STARF
Landið Georgía liggur við
austurmörk Evrópu eða vestur
hluta Asíu í fjalllendi milli Svarta
og Kaspíahafs sem kallast Kákasus.
Landamæri Georgíu liggja að
Rússlandi, Armeníu, Aserbaídsjan
og Tyrklandi.
Georgía er um 63.000 ferkílómetrar
og svipað á stærð og Írland. Íbúafjöldi
landsins er rúmlega 3,9 milljónir og
þar af býr einn fjórði þjóðarinnar, rúm
ein milljón, í höfuðborginni Tbilisi.
Borgin er staðsett í miðju landsins og
greitt þaðan til allra landshluta. Heitið
Tbilisi þýðir heitur staður og vísar til
þess að í borginni og umhverfis hana
er mikið um heitar brennisteinslaugar.
Gott útsýni er yfir gömlu borgina
frá Narikala, sem er virki sem var
upphaflega reist á 4. öld. Virkið var
endurbyggt á 13. öld eftir að hafa
brunnið til grunna og gerðar á því
miklar endurbætur árið 1997.
Eftir að hafa skoðað virkið,
kirkjuna því tengdu og garðinn
umhverfis var farið í skoðunarferð um
gamla bæinn sem óneitanlega er mjög
tilkomumikill. Í miðjum bænum er gil
og við enda þess er fallegur foss og um
gilið lítil á sem fellur í Mtkvari-ána
sem rennur um Tbilisi.
Jósep Stalín fæddist í borginni Gori
og samstarfsmaður hans, Lavrenriy
Beria, er einnig Georgíumaður og
tónskáldið Aram Khachaturian fæddist
í Tbilisi.
Grasagarðurinn í Tbilisi
Staðarleiðsögumanni til talsverðrar
mæðu ákvað ég að slíta mig frá
hópnum sem ég var með og var á leið
að skoða helstu menningarmiðstöðvar
borgarinnar, þinghúsið, óperuna,
Anchiskhati-kirkjuna og íkonana þar,
og fara í grasagarðinn í Tbilisi.
Garðurinn er í gamla hluta
Tbilisi og var upphaflega hluti
af lendum Narikala-virkisins.
Hans er fyrst getið í ferða-
sögu Frakkans
Jean Chardin
frá 1625 en það
var ekki fyrr
en árið 1845 sem hann var
formlega gerður að grasagarði.
Lægsti punktur garðsins er í
417 metra hæð yfir sjávarmáli
en sá hæsti í 714 metra hæð.
Ganga frá aðalinnganginum
í gömlu borginni um garðinn
er talsvert upp á við og tekur
í þegar lítill tími er í boði og
ætlunin er að komast yfir sem
mest, en garðurinn er í heild yfir
100 hektarar að stærð.
Samkvæmt opinberum
tölum er að finna um 40 þúsund
plöntur í garðinum og yfir 4.500
tegundir plantna sem upprunnar
eru í Kákasuslöndunum og víðar í
heiminum. Á ólíkum sýningarsvæðum
í garðinum er meðal annars að
finna safn af sjaldgæfum plöntum
í útrýmingarhættu frá Kákasus,
lækninga- og nytjajurtum og safn
trjáa og runna víða að úr heiminum. Í
garðinum er einnig að finna sýnishorn
af japönskum garði sem tákn um
vináttu Japan og Georgíu og var
hannaður sem samvinnuverkefni
japanska sendiráðsins í Georgíu og
ráðhússins í Tbilisi.
Nálægð við guð
Í næsta áfanga ferðarinnar var
haldið frá Tbilisi og
í norðaustur í átt að
Jvari-klaustrinu frá 6.
öld. Klaustrið er
eitt af mörgum
slíkum og kirkjum
í Georgíu sem eru á
Heimsminjaskrá UNESCO. Jvari
er byggt á fjalli í 2.150 metra hæð
yfir sjávarmáli og því drjúgur spölur
þangað á bíl. Á leiðinni er gaman
að sjá hvernig gróðurfarið breytist
úr graslendi yfir í þéttar breiður af
hafþyrni og svo greni og furu en aftur
graslendi þar sem klaustrið stendur.
Eins og flestar kirkjur og klaustur
í Georgíu er Jvari hluti af trúarhefð
sem kallast rétttrúnaðarkirkjan í
Georgíu og er hluti af Austurkirkjunni.
Yfir 80% landsmanna tilheyra
rétttrúnaðarkirkjunni, tæp 11% eru
múslimar, 3% tilheyra armensku
postulakirkjunni, 0,5% játast kaþólsku
kirkjunni og páfanum í Róm en 2,5%
öðrum eða engum trúarbrögðum.
Rétttrúnaðarkirkjan í Georgíu er
ein af elstu kristnu trúarhreyfingum í
heimi og rakin til 4. aldar eftir Krist og
trúboðs heilagrar Nino, þjóðardýrlings
Georgíu. Vínviðarkrossinn, sem er
tákn Nino, er með eilítið slútandi
þverslá. Sagan segir að Nino hafi
bundið fyrsta vínviðarkrossinn saman
úr greinum vínviðar og hári sínu.
Ef mark er takandi á goðsögunni
um staðsetningu Jvari var klaustrið
reist á grunni heiðins hofs þar
sem heilög Nino reisti einn af
vínviðarkrossum sínum. Vesturhlið
klaustursins stendur nánast á blábrún
og um tveimur kílómetrum ofan við
bæinn Mtskheta.
Á Sovétárunum, þegar kristni
og önnur trúarbrögð voru bönnuð
í Sovétríkjunum, var Jvari breytt í
safn. Til að auðvelda fólki aðgang að
safninu var settur upp kláfur til að ferja
fólk frá Mtskheta í safnið. Kláfurinn
náði aldrei að uppfylla tilgang sinn
þar sem bilanir í honum voru tíðar.
Sagt er að heimafólk hafi aldrei
sætt sig við að leiðin að klaustrinu
væri auðveld og því reglulega unnið
skemmdarverk á gangverki kláfsins.
Leiðin að helgidóminum átti að vera
píslarganga og erfið og að lokum var
kláfurinn tekinn niður.
Of langt mál yrði að segja frá
öllum þeim fallegu, bæði að utan
og innan, og sögu þeirra guðshúsa
sem heimsótt voru á ferðalagi mínu
um Georgíu. Staðaleiðsögumaðurinn
naut þess greinilega að fræða mig og
samferðafólk mitt um gildi trúarinnar
í sögu landsins og hvernig hún er
þjóðinni haldreipi enn í dag.
Persónulega þótti guðfræðingnum
í ferðinni reyndar nóg um og hugsaði
stundum með sér: „Ó nei, ekki önnur
kirkja,“ þegar líða tók á ferðina.
Matur í Georgíu
Georgíumenn eru stoltir af innlendri
matarhefð og innlendum vínum og
mega vera það því hvort tveggja er
afskaplega gott. Landsmenn gefa sér
góðan tíma til að borða enda iðulega
margir réttir í boði og sjálfsagt þykir
að hafa vín með öllum mat.
Brauð er borið fram með nánast
öllum mat og yfirleitt er það nýbakað
og heitt. Réttur sem kallast khachapuri
adjaruli samanstendur af bátlaga
brauði, bræddum osti og eggjum.
Framreiðslan er ólík eftir héruðum og
sums staðar er rétturinn borinn fram
með baunum, grænmeti eða kjöti.
Churchkhela er búið til með því
að þræða hnetur, oft valhnetur, á
þráð þannig að það líkist talnabandi.
Bandinu er síðan dýft í þykkan vín-
berja- og vínviðarlaufslög nokkrum
sinnum. Smám saman storknar lög-
urinn utan á hnetubandinu og verður
eins og pylsa í laginu. Útkoman er
afskaplega góð og seld sem sælgæti.
Kninkala svipar til þess sem
almennt kallast dumplings hér
heima og er vinsælt sem smáréttur
í Georgíu, bæði eitt og sér eða með
öðrum mat. Inni í hveitibögglunum
sem rétturinn líktist í mínum augum
Georgía:
Perla Kákasusfjalla
Kokgleypt churchkhela. Mynd / Michaela Krejcova
Svipmynd frá grasagarðinum í Tbilisi og fáni Georgíu. Myndir / VH
Michaela Krejcova, fararstjóri í Georgíu.
Kross
heilagrar Nino.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is