Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 20216
Ég vil óska Svandísi Svavarsdóttur til
hamingju með nýtt embætti matvæla-,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. við
í landbúnaðargeiranum vonumst eftir góðu
samstarfi við nýskipaðan ráðherra í þeim
málefnum er snúa að starfsemi landbúnaðar
og matvælaframleiðslu til framtíðar. Þar er
af ýmsu að taka og mörg málefni sem þarf
að taka á.
Fram kemur í nýjum stjórnarsáttmála að
fjölmörg atriði snúa að landbúnaði sem ný
ríkisstjórn leggur áherslu á. Eins og fram kemur
í sáttmálanum um landbúnað eru eftirfarandi
atriði sérstaklega tiltekin:
1. Tillaga að landbúnaðarstefnu fyrir
Ísland verður lögð fram á Alþingi á fyrri
hluta kjörtímabilsins. Verður þar byggt
á grunni vinnu verkefnisstjórnar um
landbúnaðarstefnu, „Ræktum Ísland!“,
sem nú liggur fyrir.»
2. Sett verða metnaðarfull markmið um
að auka hlutfall hollra og næringarríkra
innlendra matvæla til að treysta
fæðuöryggi. Með öflugri, innlendri
matvælaframleiðslu er stuðlað að heilnæmi
matvara og auknu matvælaöryggi, til að
mynda til að viðhalda góðri stöðu Íslands
varðandi sýklalyfjaónæmi. Tryggja
þarf framhald aðgerðaáætlunar um
matvælaöryggi og vernd búfjárstofna.»
3. Við endurskoðun búvörusamninga verður
lögð áhersla á að tryggja fæðuöryggi
á Íslandi með því að efla innlenda
landbúnaðarframleiðslu. Stuðningur hins
opinbera verður samhæfður með það að
markmiði að styrkja og fjölga stoðum
landbúnaðar á grunni sjálfbærrar nýtingar
í þágu loftslagsmála, umhverfis- og
náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun.»
4. Aukinni framleiðslu á grænmeti verður
náð með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á
raforkuverði til ylræktar og sérstökum
stuðningi við útiræktun í gegnum
búvörusamninga. Mótuð verður heildstæð,
tímasett aðgerðaáætlun til eflingar
lífrænnar framleiðslu og akuryrkju.»
5. Efla þarf landgræðslu, skógrækt og
endurheimt votlendis til að mæta
skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum.
Útfærður verður rammi um framleiðslu
vottaðra kolefniseininga í landbúnaði og
annarri tengdri landnotkun.»
6. Lokið verður við endurskoðun
viðskiptasamningsins við Evrópu-
sambandið um landbúnaðarafurðir.»
7. Skilvirkni og afköst við tolleftirlit verða
efld með innleiðingu stafrænna lausna á
því sviði.»
8. Ráðist verður í heildstæða endurskoðun
á fyrirkomulagi matvæla- og
heilbrigðiseftirlits á Íslandi. Markmið
þeirrar vinnu verður að tryggja samræmt
einfalt og skilvirkt eftirlit í þágu atvinnulífs
og almennings.»
9. Huga þarf sérstaklega að regluverki svo
það hamli ekki nýsköpun og framþróun,
svo sem sölu afurða beint frá býli á
neytendamarkað.»
10. Mikilvægt er að starfsmennta- og háskólar
í landbúnaði séu öflugir og í fararbroddi
í rannsóknum á sviði landbúnaðar
og umhverfismála, svo sem í þágu
loftslagsmála, náttúruverndar, landgæða
og nýsköpunar í framleiðslu. Ýta þarf
undir framtak og frumkvæði bænda með
fræðslu, ráðgjöf, þróun og nýsköpun.
Ég vil þakka starfsmönnum Bænda samtakanna
fyrir frábæra vinnu við hugmyndir inn í
stjórnarsáttmálann og samstöðu um þau
málefni sem landbúnaðurinn leggur mesta
áherslu á. Eins og áður segir hlakka ég til að
takast á við þau verkefni sem áður eru talin
ásamt fjölmörgum öðrum atriðum sem við
þurfum að sinna.
Ýmis önnur atriði eru í stjórnarsáttmálanum
sem snýr að landbúnaði, eins og loftslagsmál,
byggðamál og jarðarmál, því allt eru þetta atriði
sem skipta landbúnað miklu máli. Einnig eru
atriði í kafla um menntamál sem eru okkur
hugleikin þar sem enn hefur ekki verið
skilgreind staða Garðyrkjuskólans á Reykjum.
Ég vil hvetja nýjan ráðherra menntamála að
gera það að sínum fyrstu verkum að koma
þeim málum á hreint og það helst fyrir áramót.
Eins og áður hefur komið fram þá
horfa menn fram á gríðarlegar hækkanir á
áburðarverði á heimsmarkaði, nágrannalönd
okkar hafa brugðist við þeim áhrifum á
sinn landbúnað með fyrirhuguðum beinum
stuðningi til bænda vegna þessara hækkana.
Ég hvet til þess að þetta samtal verði tekið
við forystu Bændasamtakanna um og þá
hvernig ríkisvaldið geti hugsanlega komið
að þessum tímabundnu hækkunum þar sem
þetta er verulegur útgjaldaliður í íslenskri
matvælaframleiðslu.
Ég vil óska nýrri ríkistjórn til hamingju og
treysti á gott samstarf á komandi kjörtímabili.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 11.600 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 7.600 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Heimsfaraldur vegna Covid-19 er smám
saman að koma jarðarbúum í skilning um
að sýn þeirra á lífið á jörðinni til þessa
hefur verið verulega brengluð. Þar eru
margir hlutir sem fólk hefur gengið að
sem sjálfgefnum til þessa, allt annað en
sjálfsagðir.
Með stöðugt auknum fólksfjölda á
jörðinni og kröfur um aukin lífsgæði handa
hverjum og einum þarf heimsbyggðin að
horfast í augu við að sjálfbærni í nýtingu
jarðargæða er úrslitaatriði varðandi afkomuna
til framtíðar. Það eyðist sem af er tekið og við
munum ekki endalaust geta gengið á auðlindir
jarðar án þess að það komi í hausinn á okkur
á endanum.
Þeim, sem vilja ráða ferðinni á pólitíska
sviðinu og vilja stjórna því hvernig við
högum okkur, er gjarnt á að leiða fólk inn á
sínar skoðanir með því að skrúfa upp ákveðin
mál til að fela oft vafasaman tilgang. Þekkt
er í gegnum söguna að þegar pólitíkusar
stórþjóða hafa átt erfitt með að tryggja sín
völd heima fyrir, þá hefur verið fundinn
óvinur í útlöndum sem þjóðin á að sameinast
um að berjast við. Þetta „trikk“ hefur oftast
gengið upp og venjulega fattar fólk ekki að
það hefur verið dregið á asnaeyrunum fyrr
en viðkomandi pólitíkus er löngu hættur
störfum. Það eru þó ekki bara hefðbundin
stríð sem slíkir tækifærissinnar reyna að nýta
sér, því öfgafull umræða um loftslagsmál
hljómar nú örugglega eins og englasöngur
í þeirra eyrum.
Nú hnykla menn vöðvana í Austur-
Evrópu þar sem átök um orkumál munu
skipta höfuðmáli. Það snýst ekki síst um
vandræði Evrópuríkja í orkumálum og þá
skrítnu stöðu að lífæðarnar, gasleiðslurnar,
liggja frá Rússlandi og í gegnum lönd sem
nú eru suðupottur pólitískra átaka.
Án orku geta tannhjól atvinnulífsins
ekki snúist og krafan um stöðugt aukinn
hagvöxt hættir að ganga upp. Í Evrópu er
krafan um að hætta notkun kola og annars
jarðefnaeldsneytis í orkuframleiðslu samfara
kröfu um að loka kjarnorkuverum að breytast
í martröð hjá evrópskum pólitíkusum. Það
eru fáir kostir í stöðunni. Vatnsaflið er nær
alveg uppurið til raforkuframleiðslu og þá er
fátt annað eftir en vind- og sólarorka. Stöðug
uppbygging vindorkuvera með risastórum
vindmyllum er mjög farin að fara í taugarnar
á umhverfisverndarfólki. Þar hefur þó aðeins
fengist slaki á umhverfiskröfurnar með því að
beina fólki meðvitað í baráttu fyrir bættum
loftslagsmálum. Sú barátta hefur hins vegar
ýtt undir gríðarleg náttúruspjöll í öðrum
heimshlutum.
Í öllu þessu umróti á Ísland einstaka
möguleika. Hér er hægt að framleiða
næga hreina og vistvæna orku með
sjálfbærum hætti. Þannig geta Íslendingar
á næstu árum og áratugum orðið algjörlega
sjálfbærir í orkumálum ef rétt er á spöðum
haldið. Hér er líka enn nægt land til að
stórauka framleiðslu matvæla og stórauka
matvælaöryggi þjóðarinnar. Það lofar því
góðu að nýr matvæla-, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, Svandís Svavarsdóttir,
hafi áttað sig á þessu. Það rammar hún
ágætlega inn í viðtali hér í Bændablaðinu
þar sem hún segir:
„Það sem mér finnst skipta mestu máli er að
finna fyrir þessum miklu sóknarmöguleikum
sem eru til í landbúnaði. Þar eru heilmargir
sprotar sem hafa verið að láta á sér kræla
og verðskulda athygli og uppbyggingu í
matvælaframleiðslu og framleiðslu henni
tengdri. Fæðuöryggi og matvælaöryggi
skiptir sífellt meira máli, við höfum ekki síst
verið minnt á það í faraldrinum. Þegar öllu er
á botninn hvolft skiptir miklu máli að búa við
sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Það spilar
líka saman við orkunotkun, loftslagsmál og
að draga úr kolefnisspori.“
– Vonandi veit þetta á gott. /HKr.
Strandarkirkja er kirkja við Engilvík á Suðurstrandarvegi. Núverandi kirkja var reist 1888 og endurvígð eftir endurbætur 14. júlí 1968 og endurbætt
frekar og endurvígð aftur 13. október 1996. Ein af nokkrum helgisögnum um kirkjuna og tilurð hennar er um ungan bónda frá uppsveitum
Árnessýslu sem fer til Noregs að sækja smíðavið í hús sín en lendir í sjávarháska og hafvillum og dimmviðri og veit ekki hvar skipið er. Hann
ákveður í örvæntingu sinni að gefa allan smíðaviðinn til kirkjubyggingar á þeim stað þar sem hann næði landi heilu og höldnu. Þá sá hann
ljósengil fram undan stefni skipsins og verður sá engill stefnumið sem hann stýrir eftir. Hann lendir í sandvík milli sjávarklappa og þá hvarf
engillinn. Skipsmenn sáu í birtingu morguninn eftir að þeir höfðu verið leiddir eftir bugðóttu lendingarsundi milli boðaskerja á úthafsbrimströnd.
Var hin fyrsta Strandarkirkja reist úr viðnum sem kom úr skipinu. Vorið 1950 var reistur minnisvarði um kraftaverkið í Engilsvík norðvestan við
kirkjuna. Minnisvarðinn, sem er standmynd á stalli sem sýnir hvítklædda konu sem heldur á skínandi krossmarki, er eftir Gunnfríði Jónsdóttur
myndhöggvara og nefnist Landsýn. Mynd / Hörður Kristjánsson
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Blaðamenn: Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is –
Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303
Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Sími smáauglýsinga: 563 0300 – Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Ágústa Kristín Bjarnadóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Miklir möguleikar Mörg málefni sem þarf að taka á