Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 64

Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Sigurður flytur á Sléttu ásamt foreldrum sínum og systkinum frá Nesi í Loðmundarfirði árið 1953. Síðan féll faðir hans skyndilega frá árið 1974 og tók Sigurður þá við búinu á Sléttu að fullu. Dagbjört flytur á Sléttu 1975 og hefjast þau þá handa við að byggja upp jörðina þar sem húsakostur var lítill og lélegur. Þuríður og Guðjón byggðu annað einbýlishús á jörðinni 2019 og eru smám saman að taka við búinu. Býli: Slétta. Staðsett í sveit: Reyðarfjörður, Fjarðabyggð. Ábúendur: Sigurður Baldursson og Dagbjört Briem Gísladóttir, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Guðjón Már Jónsson. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Sigurður og Dagbjört eiga saman 2 börn, Þuríði Lillý og Róbert Marinó, fyrir á Sigurður einn son, Brynjar Sindra. Þuríður og Guðjón eiga svo saman eina dóttur, Dagbjörtu Ósk. Á Sléttu eru svo fjórir hundar og einn köttur, svo telur fiðurfénaðurinn 19 stykki sem eru óttaleg gæludýr. Stærð jarðar? Um 3.000 hektarar en þar af er mikið fjallendi. Gerð bús? Sauðfjárbú með sölu jarðefna sem auka tekjur. Fjöldi búfjár og tegundir? Á Sléttu eru 520 gripir á vetrarfóðrum. Við framleiddum 12,5 tonn af lambakjöti 2021 og settum á 90 lömb. Einnig erum við með 11 hross okkur til yndisauka. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Þuríður og Sigurður gefa fénu á morgnana, sinna tilfallandi störfum á daginn eftir árstíma og gefa aftur seinni partinn. Guðjón vinnur sem verkstjóri á vélaverkstæði VHE á Reyðarfirði og Dagbjört vinnur í Lyfju Reyðarfirði. Skemmtilegustu/leiðinleg- ustu bústörfin? Skemmtilegustu bústörfin eru klárlega smala- mennskur, sauðburður og hey- skapur. Leiðinlegasta bústarfið er skítmokstur. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Við höfum hug á því að bæta við búgrein sem vonandi kemur í gagn- ið á næstu tveimur árum. Fjárhúsin eru full og höfum við ekki hug á að byggja við þau eða fjölga fénu eins og staðan er í dag. Við höldum þó áfram að efla stofninn hjá okkur og auka við framleiðsluna. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Við teljum helstu sóknar- færin í sauðfjárrækt vera að bjóða upp á ferskt lambakjöt fleiri mánuði ársins. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Á báðum heimilum er alltaf til þorska- lýsi, mjólk, ostur og smjör. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakótilettur í raspi og ýmsir réttir úr ærhakki. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar Guðjón var að dreifa skít og fór inn í skíthúsið til að opna næsta hólf. Það fór ekki betur en svo að hann sat fastur upp að mitti í miðjum skítahaugnum, í svarta myrkri og engu símsambandi. Hann greip á það ráð að grafa sig upp með höndunum og komst þannig út, fór niður að á til að skola gallann og mætti Sigurði þegar hann kom til baka. Sigurði fannst þetta frekar hlægi- legt en benti Guðjóni á að taka með sér planka til að leggja ofan á skít- inn og gátu þeir þá loks opnað án vandræða. Hugmyndir að huggulegri aðventu Aðventan er nú gengin í garð og við hæfi að gefa svolítinn for- smekk að jólunum. Laxakrans › 400 g sneiddur grafinn eða reyktur lax › Extra virgin ólífuolía, til að setja yfir › Sýrður rjómi eða graflaxsósa › Glútenlaust kex eða skorpulaust þunnt ristað brauð, til að bera fram Það getur verið einföld lausn að skera lax þunnt og raða saman í jólakrans og svo skreyta með jurtum og salati til að borða í jólaundirbúningnum. Jólabrauðsneiðar Notaðu afganga af einhverjum jólalegum mat eða keyptu niðursneitt álegg til að komast í aðventuandann og til að búa til fullkomnar samlokur eða smurbrauð. Setjið majónes, í stað smjörs, á brauðið og steikið á þeirri hlið í stað þess að rista. Raðið skinku, osti eins og brie, sýrðum rjóma með piparrót eða sósu að eigin val og skreytið með jólalegu meðlæti. › 4 sneiðar hvítt brauð eða flatkökur (ef það er hangikjöt á veisluborðinu) › 4 msk. majónes › Skinka eða hangikjöt › (soðin egg) › 8 brie ostasneiðar › 3 msk. fínt skorið hvítkál eða ferskt rauðkál Skreytt kex og cookies Hægt er að skreyta fleira en pipar- kökur og því er gaman að baka cookies og skreyta í anda jóla. Svo er líka hægt að kaupa kex og orkustangir fyrir fullorðna og gera jólaleg hreindýr og jólabjöllur. › 20 litlar saltkringlur › 10 rauðar M&M › 20 sælgætisaugu › 50 g dökkt súkkulaði, brætt, kælt Setjið kexið og súkkulaðikökurnar inn í ísskáp áður en þið skreytið. Það hjálpar til við að flýta fyrir bráðnun á súkkulaðinu. Jólasmákökur fjölskyldunnar Við vonum að þið hafið gaman af hátíðarundirbúningi og skemmtun við bakstur á þessu tímabili. Þetta eru uppáhalds jólasmáköku uppskrift fjölskyldunnar okkar! Þær eru ekki bara ljúffengar heldur líka frábærar til að gefa fjölskyldu, vinum og nágrönnum eða setja í glugga fyrir jólasveininn. › 1 bolli púðursykur › 1 bolli sykur › ½ bolli smjör › ½ bolli olía › 2 egg › 1 tsk. matarsódi › 1 tsk. salt › 1 tsk. lyftiduft › 1 tsk. vanilla › 3 bollar hveiti › ½ bolli smá súkkulaðibitar › 1 bolli M&M Hitið ofninn í 350 gráður. Hrærið saman smjör, olíu og sykur. Bætið eggjum út í og þeytið þar til það er ljóst. Bætið matarsóda, salti, dufti, vanillu og hveiti út í. Blandið vel saman. Notið kökuskeið til að setja deigið á smurðan kökubakkann. Skreytið efst með 4-5 stk M&M. Bakið við 170 gráður í 7-8 mínútur. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari bjarnigk@gmail.com Slétta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.